Morgunblaðið - 09.06.2011, Side 40
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 160. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Átti í kynferðislegu sambandi...
2. Alvarlega slasaður eftir slys
3. Kjánar finnast við Ísland
4. Íhugað var alvarlega að loka...
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Dagana 10.-12. júní verða Pólskir
kvikmyndadagar í Bíó Paradís. Sýnd-
ar verða fjórar kvikmyndir frá sjötta
og sjöunda áratug síðustu aldar. Óp-
erusöngkonan Gabriela de Silva kem-
ur fram á opnunarkvöldinu 10. júní kl.
19:00 og er frítt inn. Myndirnar verða
sýndar með enskum texta.
Frítt inn á Pólska
kvikmyndadaga
Þýska frétta-
veitan Zeit Online
fjallaði um ís-
lensku hljómsveit-
ina Retro Stefson
á heimasíðu sinni í
gær. Þar er
tónlistarstefnu
Retro Stefson lýst
og hljómsveitin
ásamt nýrri plötu sinni Mama Angola
fær góðar undirtektir hjá veitunni.
Þýsk fréttaveita lofar
Retro Stefson
Starfsfólk kanadísku sjónvarps-
stöðvarinnar MTV kom til Íslands í
tilefni af hátíðinni Aldrei fór ég suður
sem haldin var á Ísafirði. MTV hitti
þar meðlimi Prins Póló
og elti þá meðal ann-
ars í afmælispartí
þar sem þeir átu,
drukku og spiluðu
óvænt fyrir afmæl-
isbarnið. Hægt er
að skoða MTV-
myndbandið á
Youtube-
.com.
MTV elti Prins Póló
um allan Ísafjörð
Á föstudag Norðaustan 8-13 m/s og rigning vestast á landinu
fram yfir hádegi, en annars mun hægari og stöku skúrir. Hiti 4 til
13 stig, hlýjast suðvestan- og sunnanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Bætir smám saman í vind, 10-18 síðdegis
með rigningu eða slyddu norðaustanlands, en yfirleitt bjartviðri
suðvestanlands. Hiti 3 til 13 stig, hlýjast sunnanlands.
VEÐUR
Afturelding mætir til leiks með nýtt
kvennalið í blaki á Íslandsmótinu
næsta vetur og ætlar sér stóra
hluti. Mosfellingar hafa samið við
þjálfarann sigursæla frá Íslands-
meisturum Þróttar í
Neskaupstað, Apostol
Apostolov, og fá jafn-
framt til liðs við sig
eiginkonu hans, Mig-
lenu Apostolovu, og
væntanlega einnig dæt-
ur þeirra, þær Kristinu
og Velinu. »1
Afturelding fær
blakfjölskylduna
„Leikurinn við Austurríki á sunnu-
daginn er klárlega upp á líf og dauða í
keppninni fyrir bæði lið. Við mætum
þeim í hreinum úrslitaleik um sæti í
lokakeppninni og það er að mörgu
leyti draumaverkefni að fá tækifæri
til þess að spila á heimavelli svo mik-
ilvægan leik sem hann er. Ég vona
bara svo sannarlega að við fáum fulla
Laugardalshöll,“ sagði Guðmundur
Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálf-
ari í handknattleik,
eftir sigur lands-
liðsins á Lettum í
undankeppni Evr-
ópumótsins í
handknattleik
í gær,
29:25. »3
Hreinn úrslitaleikur um
EM-sæti á sunnudag
Nýliðar ÍBV héldu áfram sigurgöngu
sinni í Pepsi-deild kvenna í knatt-
spyrnu í gær þegar þeir unnu 2:0 sig-
ur á hinum nýliðunum, Þrótti. ÍBV
hefur unnið alla fjóra leiki sína og á
enn eftir að fá á sig mark en hefur
skorað 14. Stjarnan vann KR 2:1, Fylk-
ir vann Aftureldingu 3:1 og Breiðablik
vann Grindavík 5:1 þar sem þrenna
var skoruð á 13 mínútum. »2
Eyjakonur með fullt hús
stiga og markatölu 14:0
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
„VIÐ ERUM EKKI Í LÖGFRÆÐILEGUM LOFTFIMLEIKUM“
Eiga oft á brattann að sækja
Haukur Guðmundsson, einn liðsmanna íslenska liðsins, segir hið ímynd-
aða mál sem tekist verður á um að þessu sinni eiga einkar vel við sé litið
til nýliðinnar þjóðfélagsumræðu. Álitaefnið er að hans mati bæði krefj-
andi og áhugavert í senn. Haukur segir það vera mikil forréttindi að fá að
taka þátt í keppni sem þessari.
„Að fá að flytja mál fyrir dómurum Mannréttindadómstóls Evrópu eru
mikil forréttindi og í raun ekki hægt að búast við að geta gert það aftur,“
segir hann. „Það er oft á brattann að sækja fyrir okkur Íslendingana og
er það aðallega tungumálið sem veldur því. Þrátt fyrir það erum við orðn-
ir ansi sleipir í dönskunni,“ segir Haukur og reiknar ekki með erfiðleikum
hvað það varðar. Er því ljóst að íslenska liðið ætlar sér að ná langt í
keppninni.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Allir helstu háskólar á Norður-
löndum eru um þessar mundir að
undirbúa lið sín fyrir Norrænu mál-
flutningskeppnina sem að þessu
sinni verður haldin í húsnæði hæsta-
réttar Finnlands í Helsinki um
næstkomandi helgi. Alls taka ellefu
lið þátt í keppninni og mun íslenska
liðið verða skipað sex einstaklingum
frá lagadeild Háskóla Íslands. Liðs-
menn í ár eru þau Benedikt Hall-
grímsson, Hjalti Geir Erlendsson,
Haukur Guðmundsson, Valgerður
Guðmundsdóttir, Daði Ólafsson og
Víðir Smári Petersen.
Reynir á dönskukunnáttu
Að venju munu keppnisliðin þurfa
að flytja mál sitt á einu af eftirfar-
andi skandinavísku tungum: dönsku,
sænsku og norsku og ákvað íslenska
liðið að notast við dönsku í málflutn-
ingi sínum að þessu sinni.
„Það er ótrúlegt hversu vel það
hefur gengið, eftir að hafa lesið og
skrifað á dönsku í nokkra mánuði er
þetta ansi fljótt að koma,“ segir
Haukur Guðmundsson, aðspurður
hvernig tekist hafi til á æfingum að
flytja mál á dönsku. Hann bætir þó
við að framburðurinn gæti komið
upp um hópinn.
Keppninni er háttað á þann veg að
liðin fengu senda til sín máls-
atvikalýsingu sem tengist ætluðu
broti á Mannréttindasáttmála Evr-
ópu og í ár snýst hið ímyndaða mál
um menntun barna í skólum og
hvaða takmarkanir eru á trúarlegri
kennslu þar á bæ. Að venju er lið-
unum skipt í sókn og vörn þar sem
annað liðið sér um að sækja hið
ímyndaða mál fyrir hönd hins
meinta brotaþola á meðan hitt liðið
sér um að svara fyrir hönd ríkisins.
Lagt er upp með að gera máls-
atvik og aðbúnað sem raunveruleg-
astan og mun t.a.m. dómnefndin
vera skipuð dómurum er starfa við
Mannréttindadómstól Evrópu sem
og hæstaréttardómurum frá öllum
norrænu ríkjunum. Undanfarnar
vikur og mánuði hafa staðið yfir stíf-
ar æfingar við undirbúning fyrir
keppnina og naut íslenska liðið að-
stoðar tveggja lögmanna hjá Laga-
stoð lögfræðiþjónustu, Guðmundar
Óla Björgvinssonar hrl. og Kristínar
Benediktsdóttur hdl. Jafnframt fer
Guðmundur með formennsku í liðinu
Club Lögberg sem keppir fyrir hönd
lagadeildar Háskóla Íslands. Í und-
anförnum keppnum hefur íslenska
liðið staðið sig með sóma og má
nefna að í fyrra hafnaði þáverandi lið
lagadeildar Háskóla Íslands í þriðja
sæti.
Vel stemmdir fyrir Nor-
rænu málflutningskeppnina
Í keppninni í ár mun lið lagadeildar HÍ takast á um trúmál barna í skólum
Morgunblaðið/Golli
Keppnisfólk Lið lagadeildar Háskóla Íslands heldur utan í dag og ætlar sér góðan árangur.