Morgunblaðið - 14.06.2011, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
7 2 9 1 8
9 5 4 2 6
8
8 9 5
5 4 9 2
7
2 6 5 1
6 9
2 7
9
3 8 4 9 6
7 9
4
6 5 8
8 9 7 6 3
3 4 2 7
6 3 8 4
9 3
8 6 5
6 2 3 8
5
4 1 7
3 6 4 7
2 3 1
7 3 4
9 6
6 3 7 9 5 8 1 2 4
8 9 5 4 1 2 3 7 6
4 1 2 6 7 3 8 9 5
7 4 9 5 3 6 2 1 8
2 6 1 7 8 4 9 5 3
3 5 8 1 2 9 6 4 7
9 7 6 3 4 1 5 8 2
5 8 3 2 9 7 4 6 1
1 2 4 8 6 5 7 3 9
2 9 5 8 3 6 1 4 7
7 1 8 9 4 5 6 3 2
6 3 4 1 2 7 5 9 8
9 6 3 5 8 4 2 7 1
4 2 1 6 7 3 8 5 9
5 8 7 2 1 9 4 6 3
1 5 6 3 9 2 7 8 4
8 4 9 7 5 1 3 2 6
3 7 2 4 6 8 9 1 5
9 5 4 8 6 7 3 1 2
6 2 1 5 9 3 7 8 4
7 8 3 1 4 2 5 9 6
3 9 8 7 5 4 2 6 1
4 1 7 6 2 8 9 5 3
5 6 2 9 3 1 4 7 8
2 7 6 3 8 5 1 4 9
1 4 9 2 7 6 8 3 5
8 3 5 4 1 9 6 2 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 14. júní, 165. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í
kenningu, hegðun, ásetningi, trú, lang-
lyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3, 10.)
Víkverji fagnar þeirri umfjöllunsem hefur verið á síðum Morgun-
blaðsins að undanförnu um okurverð á
ýmsum vörum hérlendis í samanburði
við verð erlendis, þar sem hægt er að
kaupa margfalt ódýrari vörur gegnum
netið. Vitað hefur verið lengi að verð-
lag á Íslandi er með því hærra á
byggðu bóli en að munurinn geti verið
svona gríðarlegur, þannig að það
skipti mörgum hundruðum prósenta,
kom Víkverja í opna skjöldu.
Er það óskandi að íslenskir kaup-
menn bregðist við og lækki álagningu
sína og að ríkið sömuleiðis láti af
skattpíningarstefnu sinni. Saman-
burður milli landa er heldur ekki alltaf
sanngjarn, þar sem þættir eins og
gengisþróun gjaldmiðla spilar inn í,
auk þess sem flutningskostnaður
leggst óhjákvæmilega á þá vöru sem
til landsins kemur með skipum eða
flugvélum. En það skýrir ekki þennan
mikla verðmun nema að hluta.
x x x
Hækkandi verðlag er ekki það einasem Víkverji hefur áhyggjur af.
Tónlistarhúsið Harpa er sannarlega
glæsilegt mannvirki og ber að lofa
hönnuði og arkitekta fyrir listasmíð
þeirra. En það er ekki nóg að horfa á
húsið og dásama innviði þess og útlit.
Jafn dýr bygging, kostuð af al-
mannafé, verður að hafa notagildi og
veita þeim ánægju sem þangað koma
og njóta lista af öllu tagi. Tónlist-
armenn eru margir hverjir óánægðir
með skilmála sem húsráðendur setja
og borið hefur á hnökrum í sam-
skiptum við fjölmiðla. Eigi Harpa að
vera opin fyrir alla tónlist þá verða orð
að fylgja efndum.
Annars fór Víkverji á tónleika í
Hörpunni með Páli Óskari og Sinfó og
skemmti sér konunglega. Hið eina
sem skyggði á gleðina var lofthræðsla
upp undir rjáfri í Eldborg. Efstu pall-
arnir eru tæpast fyrir lofthrædda.
Handrið fyrir framan hverja sætaröð
draga úr óörygginu en geta um leið
verið í sjónlínu niður á svið. Næst þeg-
ar leiðin liggur í Eldborg verður reynt
að finna sæti neðar, en það ku vera
dýrara þannig að Víkverji ætlar að
reyna að flagga læknisvottorði um
lofthræðslu og kría út afslátt!
víkverji@mbl.is
Víkverji skrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skömm, 4 híðin, 7
reyna að finna, 8 blauðar, 9
miskunn, 11 skyld, 13 all-
mikla, 14 skynfærið, 15
görn, 17 mjög, 20 tunna, 22
útdeilir, 23 varkár, 24 kvæð-
ið, 25 gera auðugan.
Lóðrétt | 1 beinið, 2 synji, 3
svelgurinn, 4 fjöl, 5 eldtung-
ur, 6 kroppa, 10 áleiðis, 12
tek, 13 þjóta, 15 er þögull,
16 rótarávöxtum, 18 sjald-
gæf, 19 trjágróðurs, 20
geislahjúpurinn, 21 lítil
alda.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gönuhlaup, 8 auðna, 9 fæddi, 10 nót, 11 tegla, 13 auð-
um, 15 skatt, 18 ógæfa, 21 rós, 22 flasa, 23 aftan, 24 glaðsinna.
Lóðrétt: 2 örðug, 3 uxana, 4 lyfta, 5 undið, 6 naut, 7 fimm, 12 let,
14 ugg, 15 sófi, 16 aðall, 17 trauð, 18 ósaði, 19 ættin, 20 agns.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Laun heimsins.
Norður
♠ÁD5
♥K82
♦ÁK
♣97432
Vestur Austur
♠10984 ♠K763
♥G3 ♥74
♦G6543 ♦D1092
♣108 ♣ÁDG
Suður
♠G2
♥ÁD10965
♦87
♣K65
Suður spilar 4♥.
Það er ekki að ófyrirsynju sem Hér-
inn hryggi kallar öryggisspilamennsku
„listina að tapa aukaslag“. Allir geta
spilað af sér slag, en fáir kunna að gera
slíkt af listfengi. Í suðursætinu var
mikill listamaður. Austur hafði opnað á
„víðáttulaufi“ og vestur ákvað að leita
þar fyrir sér í upphafi – spilaði út ♣10.
Austur tók með ás og spilaði ♣D til
baka. Og hvað?
Suður dúkkaði ♣D og hafði þá í huga
þann möguleika að ♣10 væri stök. Í
þeirri stöðu má ekki fara upp með
kónginn, því vörnin nær þá að sækja
slag á spaða. En með því að dúkka og
leyfa stungu á þriðja laufinu myndast
svigrúm til að fría fimmta laufið fyrir
spaðaniðurkast.
Virkilega fagurt stef. En laun heims-
ins eru óréttlæti og suður uppskar að-
eins hlátur frá spilafélögum sínum.
14. júní 1958
Sementsverksmiðja ríkisins á
Akranesi var vígð með við-
höfn. Í forystugrein Morg-
unblaðsins var sagt að það
væri búhnykkur fyrir Íslend-
inga að eignast slíka verk-
smiðju.
14. júní 1966
Agnar Kofoed-Hansen flug-
málastjóri stökk fyrstur Ís-
lendinga úr fallhlíf, úr 3000
feta hæð yfir Sandskeiði.
„Þetta er alveg yndislegt,“
sagði Agnar í viðtali við Vísi.
Síðan stukku fimm aðrir,
þeirra á meðal Sigurður M.
Þorsteinsson formaður Flug-
björgunarsveitarinnar.
14. júní 1975
Ferjan Smyrill kom til Seyð-
isfjarðar í fyrsta sinn, með
fimmtíu farþega og tíu bíla.
Þar með hófust ferju-
samgöngur milli Færeyja og
Íslands. Norröna tók við af
Smyrli árið 1983.
14. júní 1980
Stan Getz tenórsaxófónleikari
lék með djasskvintett sínum á
Listahátíð í Laugardalshöll.
„Fögnuðurinn var mikill – og
ekki að ástæðulausu,“ sagði í
Morgunblaðinu.
14. júní 2004
Kaupþing banki keypti danska
fjárfestingabankann FIH fyrir
84 milljarða króna. „Einhver
stærstu fyrirtækjakaup Ís-
lendinga,“ sagði Morg-
unblaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Bjarni Baldvinsson töframaður fagnar 35 ára af-
mæli sínu í dag. „Það er voðalega gaman hjá mér
þessa dagana. Ég er í próflestri og geri ráð fyrir
að fagna afmælinu með því að taka mér hálftíma
pásu og fá mér kannski eitthvað gott að borða,“
segir Bjarni. Hann segist jafnframt búast við því
að leggja leið sína upp á frisbí-golfvöllinn í Gufu-
nesi. „Ég kynntist þessari íþrótt þegar ég var við
nám í Bandaríkjunum og hef spilað hana alveg síð-
an þá.“
Bjarni lærir nú tæknifræði hjá Keili og segir
námið einkennast af mikilli keyrslu. „Ég er að
læra um allt sem snýr að tölvum, vélum, tækjum og rafeindabúnaði.
Þetta snýst um vélmenni og færibönd og allt þar á milli.“ Bjarni segir
að utan skemmtibransans hafi hann mjög gaman af íshokkí. „Ég æfi
íshokkí með Skautafélagi Reykjavíkur og spila sem markmaður. Svo
er ég í mótorhjólum og hef mjög gaman af því.“ Í sumar býst Bjarni
við að nýta tímann til að hlaða batteríin fyrir næstu önn. „Ég held ég
slappi bara af og reyni kannski að fara í veiði og upp í bústað og njóti
þess að vera með fjölskyldunni.“ Sambýliskona Bjarna er Rakel Jóna
Guðmundsdóttir. haa@mbl.is
Bjarni Baldvinsson töframaður er 35 ára
Próflestur og frisbí-golf
Flóðogfjara
14. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.49 3,5 11.03 0,5 17.21 3,9 23.40 0,4 2.58 23.59
Ísafjörður 0.57 0,4 6.45 2,0 13.06 0,3 19.21 2,3 1.33 25.33
Siglufjörður 2.49 0,1 9.18 1,1 15.14 0,3 21.28 1,3 1.16 25.16
Djúpivogur 1.52 1,9 7.58 0,5 14.27 2,3 20.46 0,5 2.14 23.42
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Gefðu þér tíma til að tala við systkini
þín, ættingja eða nágranna í dag. Einföld hug-
mynd tekst á loft eins og eldflaug. Nýttu þér
þennan hæfileika þér til framdráttar í dag.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur í mörg horn að líta varðandi
stefnumót og heimsóknir. Leyfðu öðrum að
deila velgengninni með þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú hefur í svo mörgu að snúast að
þú þarft að fá fólk í lið með þér til þess að
hlutirnir gangi upp. Deildu ásetningi þínum
og fáðu aðstoð við að gera hann að veruleika.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Gerðu ráð fyrir að lenda í sam-
skiptum við valdamikla einstaklinga eða
stofnanir í dag. Nú er kominn tími til að huga
að framtíðinni.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Minniháttar árekstur getur leitt til
margskonar erfiðleika ef þú tekur ekki strax
af skarið og leysir málið. Samræður við for-
eldra og fjölskyldumeðlimi gætu skipt máli.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú þráir að gleðja augun þín, kitla
snertiskynið og opna eyrun fyrir dásamlegri
tónlist.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Enginn getur verið léttur og sætur öllum
stundum. Eitthvað mun fara úrskeiðis, en
þannig er það og þú skalt slappa af.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér finnst álagið í vinnunni vera
orðið fullmikið. Vertu trúr í vináttu þó að þú
standir í viðskiptum. Mundu að ekki er allt
gull sem glóir og dreifðu áhættunni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert í rómantískum hugleiðum
og ættir að gera þér glaðan dag með ástvini
þínum. En mundu að tvo þarf til að takast á.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú nærð mestum árangri þegar þú
dregur þig út úr fjölmiðlaþrasi og leitar eftir
innihaldsríkum og áþreifanlegum áhrifavöld-
um.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Góðverk á ekki að gera með það í
huga að fá þau endurgoldin. Viðkomandi er
ómögulegt að setja sig í annarra spor og
grunsemdir um trúmennsku þína eru uppi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Leitaðu að nýju fólki í liðið þitt. Bættu
sambandið við eina manneskju, einbeittu þér
að einu verkefni, eða hringdu eitt símtal.
Stjörnuspá
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5.
d4 0-0 6. Be2 e5 7. 0-0 Rc6 8. d5 Re7 9.
Rd2 a5 10. a3 Kh8 11. Hb1 Rd7 12. b4 f5
13. f3 f4 14. Rb5 b6 15. Dc2 a4 16. Hd1
g5 17. g4 h5 18. h3 Hf6 19. Bb2 Hh6 20.
Kg2 Rg6 21. Hh1 Bf8 22. Kf2 Rf6 23. c5
dxc5 24. Rc4 Bd6 25. Bc3 Kg7 26. Db2
cxb4 27. axb4 De7 28. Hbg1 Bd7 29.
Rbxd6 cxd6 30. h4 hxg4 31. hxg5
Staðan kom upp í atskákhluta Am-
ber-mótsins sem lauk fyrir nokkru í
Mónakó. Bandaríkjamaðurinn Hikaru
Nakamura (2.774) hafði svart gegn
Rússanum Vladimir Kramnik (2.785).
31. … Rxe4+! 32. fxe4 Hxh1 33. Hxh1
f3 34. Rxb6 g3+! 35. Kxf3 Hf8+ 36. Ke3
Dxg5+ 37. Kd3 Bb5+ 38. Kc2 Hf2 39.
Bd2 Hxe2 40. Dc3 g2 41. Hg1 a3 42.
Kc1 Hxd2 43. Dxd2 a2 44. Kc2 Dxd2+
45. Kxd2 Bf1 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is