Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 11

Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 11
um, tangóum og jövum. Sartre er ekki nema 150 sentimetrar frá hvirfli til ilja, og þess vegna virð- ist hann vera dvergur á dansgólf- inu, og sjónin langt frá því að vera hrííandi þar eð skynjun heimspek- ingsins fyrir hrynjandi er á mun lægra stigi en rökskynjun hans. Stundum fer hin næturlanga gleði fram fyrir luktum dyrum existensíalistanna. Sartre á þá til að leggja á hilluna sína fíngerðu spauggreind og hefja óskapleg skrípalæti. Á einu slíku kvöldi, segir sagan, byrjaði Sartre að fara í hnefaleik við skraddaragínu. 1 her- berginu var gamalt rúm með sængurhimni yfir. Lærisveinn Sartres, Simone de Beauvoir, lag- leg bláeyg kona brúnhærð, sat á rúminu. Þar kom að lokiun, að lieimspekingurinn missti jafnvæg- ið, sængurhiminninn losnaði og hlunkaðist niður á höfuðið á de Beauvoir. Þá var skálað og því lýst yfir, að Sartre væri búinn að krýna hana drottningu existensíalismans. Margar af konunum i söfnuði Sartres eru aðeins laglegar skraut- brúður í samfélagi andans. Simone de Beauvoir er hins vegar gáfna- garpur. Hún er fyrrverandi jrrófess- or í heimspeki, eins og Sartre, og auk þess að hún skrifar hrífandi greinar um siðíræði, þjóðfélags- fræði og hugsjjeki, liefur hún sam- ið margar skáldsögur og leikrit. Síðasta skáldsaga hennar, Le Sang des Autres (Blóð annarra) liefur að geyma kjarnann úr kenningum existensíalismans og fékk góða dóma. En leikritið Les Bouches Inutiles (Gagnslausir kjaftar) fékk slæma útreið og gagnrýnar ujjp- nefndu það La Piéce Inutile (Gagnslaust leikrit). De Beauvoir er einn af liinum mjög fágætu og afburða þroskuðu lærisveinum Sartres. Langflestir hinna eru kornungir, á aldrinum frá 17 til 25 ára, og flestir stúdent- ar. Allmargir tónlistarmenn og list- málarar eru þó þeirra á meðal, t. d. Georges Patrix, fyrrverandi læri- sveinn Sartres, heldur því fram, að málverk sín séu existensíalísk list. En Sartre neitar því að málarar- og tónlistarmenn geti skapað existen- síalísk verk, þar eð existensíalism- inn „sé aðeins ætlaður iðnfræðing- unt og hcimspekingum." Fjöldinn af fylgismönnum Sartr- es er af hinni gáfuðu ungu kyn- slóð, af báðum kynjum. Þó er það viðurkennt af existensíalistum sjálfum, að margir þeirra sem telj- ast til hreyfingarinnar séu andlegir upjrskafningar, sem þarna hafi að- eins fundið tízkufyrirbrigði til að lianga í. Existensíalistinn er nauða- líkur hinum sífrægu umrenningum á Vinstri Bakkanum, hjákátlegur, síðhærður, með rólegt yfirbragð í víðum buxum, oftast með bækur eða handrit undir arminum, eins og eilífðarstúdent. Existensíalisminn er ekki að öllu leyti nýtt fyrirbæri. Sumpart er hann sprottinn af heimspeki danska trúarbragðahugsuðarins Sören Kierkegaard, sem leitaðist J Lærisveinn Sartres, listmálarinn Georges Patrix, og mynd eftir hann. við að byggja nýjan, heimspekileg- an grunclvöll undir kristnina með því að skilgreina tilveru mannsins, frekar en með abstrakt hugmynd- um um eðli hans. Sartres er guðleysingi og hafnaði því hinum trúarbragðalega kjarna í heimspeki Kierkegaards, en hirti hið írumspekilega hýði. Hann hafnar þeim arfgengu sjónarmið- um, að unnt sé að útskýra mann- inn og heiminn með abstrakt hugtökum og skýrum hugmyndum. Þegar existensíalisminn þreifar sig inn í leyndardóminn um örlög ntannsins, eðli hans og afdrif í ver- öldinni, hojjpar hann út frá þeirri steinköldu staðreynd, að maðurinn er til. Hann er ekki til með fast- mótaðri, fyrirfram ákvarðaðri skaphöfn, heldur með möguleika, sem leyfi honum að þróast í ýmis- legar áttir, sent er undir því kom- ið, hvað hann gerir við líf sitt. Því að maðurinn er sveigjanlegur (jjlastískur), og það er á valdi hvers einstaklings að fullskajra sína eig- in persónu, sitt eigið „mannlega eðli.“ Þannig veit enginn, hvað maðurinn er, fyrr en liann er dauð- ur. Existensíalistar orða þessa hug- mynd með reglunni „tilveran er á undan kjarnanum (innra eðlinu).“ Það sem meira er: Án þess að maðurinn hafi kosið sér það, er honum meiningarlaust troðið inn í veröld á ákveðnum tíma og inn í ákveðið þjóðfélag. Hann kaus sér ekki að fæðast, en hann er „hér“ og þannig „ábyrgur og honum fal- ið‘ að láta tilveru sína rætast, full- komna líf sitt. En náttúruöflin þjarma sífellt að tilveru mannsins og vegna óvissunnar í hinum fjandsamlega alheimi er hann haldinn ótta og kvíða. En þar eð hann þekkir ábyrgð sína á því að gera eitthvað úr tilveru sinni, þegar búið er að fleygja honum inn í tíma og rúm, festist í honum djúp sektarkennd. Hvað á maðurinn að gera við tilveru sína? Um leið verður manni á að spyrja: Hvert er eðli frelsisins? Því svarar Sartre þannig, að mann- inum sé frjálst að aðhafast, en LÍF og LIST 11

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.