Teningur - 01.05.1988, Qupperneq 30

Teningur - 01.05.1988, Qupperneq 30
HELGI ÞORGILS FRIÐJÓNSSON NORÐAN VIÐ LIST: TALAÐ VIÐ NORBERT WEBER Hvers vegna rekur þú gallerí í Þýskalandi sem sýnir mest list frá Noróurlöndunum ? Galleríiö er í Norður Þýskalandi aðeins 70 kílómetra frá dönsku landa- mærunum, svo ein af ástæðunum er að hugsa um listina í nágrenninu. Vegna þess að enginn hugsar um Noðurlandalist hér í Þýskalandi ákvað ég að sjá hvað væri að gerast handan við landamærin. Breytti sú eftirgrennslan einhverju um hugmyndirþínarum listina þar? Það má segja að ég hafi byrjað á núlli. Úr listasögunni þekkti ég Edward Munch og þegar ég bjó í Frankfurt sá ég sýningu með Ernst Josephson og Carl Fredrik Hill. En þetta voru ekki nútímalistamenn. Af nútímalist vissi ég aðeins um Per Kirkeby, þar sem hann hefur mikið unnið í Þýskalandi og meðal annars sýnt hjá Michael Werner og á Documenta. En í sann- leika sagt, þá var ég ekki að leita að Norrænni list, heldur list frá Norður- löndunum. Og var sú list sem þú fannst þar á einhvern hátt frábrugöin list annarra landa? Þegar ég lít til baka og hugsa um hvað geti verið sérstakt við Norðurlandalist þá er erfitt að útskýra það, ef það er þá þess virði. En þar sem þú spyrð, þá held ég að Norðurlandalistin sé að miklu leyti svipuð list annarra vestrænna þjóða. Sérstaklega núna, og skýringin er líklega sú, að þar er lifað samskonar lífi og annars staðar, fólk ekur um á samskonar bílum, sér sömu sjónvarpsþættina, borðar sama mat og svo framvegis: Hver er þá munurinn frá einum landamærum til annarra? Stærsti munurinn er land- fræðileg lega landanna. Það er til dæmis mikill munur á hitastigi í Róm og Norður-Noregi, og það þýðir að gróður og landslag er ööruvísi og oft flýtur þessi litur iandslagsins inn í myndlistina, sérstaklega málverkin. Samt sá ég á sýningu hér (í Reykja- vík) verk landslagsmálara sem gæti veriðfrá hvaða landi sem er, þrátt fyrir sérstöðu íslensks landslags. Ekki er svo mikill munur á málurum sem fást sérstaklega við lit eða sérstaklega við ákveðin efni, róttækir málarar. Þjóðverjinn Gunter Ucker og Banda- ríkjamaðurinn Phil Sens gætu alveg eins verið Norrænir listamenn í þessum samanburði. En í öörum liststefnum kann að gæta meiri mismunar á landfræðilegri stöðu landanna og hugmyndafræðilegri stöðu. í Miöjaröarhafslöndunum er Kaþólskan ríkjandi, en hér er það Lútherstrúin. Ljósið er öðru vísi, Ijós löngu sumardaganna og myrkur vetranna hefur sín áhrif á málverkið og tegund efnis á skúlptúr, þú finnur ekki marmara í landslaginu í norðrinu heldur tré og stein og það er líka hefð fyrir að vinna í þessi efni. Ólík saga landanna kemur einnig inn í mynd- listina, þó ekki hafi allir listamenn áhuga á henni. Danski listamaðurinn Ásgeir Jorn leitar fanga alls staðar og ekki minna til Miðjaröarhafsins, í Kaþólskuna og klassíkina til dæmis. En grundvallarspumingin sem hann fæst við og sem allir listamenn fást við er spurningin um líf og dauða, ást og hatur og trú. Þetta eru þau grund- vallaratriði sem alltaf hafa veriö, og listamenn og aörir hafa þurft að leggja mat sitt á og gefa yfirlýsingar um. En hvaö er allt þetta tal um Norræna list og allar þessar Norrænu sýningar? Ef ég ætti að kryfja þetta til mergjar, hversvegna allt þetta Norðurlandatal, Noröanað, Nordic lights, Sleeping beauty og svo framvegis, þá er þetta - tegund almennra samskipta. Þið í Norðrinu hafið það á tilfinningunni aö þið þurfið að upplýsa um ykkar list vegna þess að þið finniö að það er góð list sem verður til hjá ykkur og aö markaðurinn er stór. Þiöfinniö líka að list ykkar er afskipt, stóru sýningarnar eins og Documenta hafa enga norræna list fyrir utan Per Kirkeby og þið eruð ekki á stóru listmörkuðunum í Köln og New York. Meö þessum Norrænu sýningum er verið að reyna að fá gæðastimpil á listina. Þetta eru mikil örlög, ekki satt? Þetta er sú tilfinning að listinni frá ykkur sé ekki veitt athygli, og ekkert sé upplýst um ' Norræn gæði. Svo eru þessir hlutir pólitískir, það er sérstakt listráöuneyti sem fer með þessi mál, Nordisk kulturrád. Það er hin hliðin á þessum örlagadansi, að það er ekkert mark tekiö á gagnrýninni og bara sagt aö úr því að þeir skilja okkur ekki þá eigum við bara okkar list sjálf. Þannig eru gerð listaverk sem sýnast vera alþjóö- - leg, en veröa bara heimóttarskapur 28
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Teningur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.