Svart á hvítu - 01.10.1977, Blaðsíða 53

Svart á hvítu - 01.10.1977, Blaðsíða 53
Fúturisminn Bylting í listum og svo öfugt Einar Már Guðmundsson Fútúrisminn tjáir mjög ákveóna þætti veruleik- ans. Hann erfæddur íEvrópu og dáinn íEvrópu. Þó er fæðingarvottorð hans í Ameríku — og kannski dánarvottorð líka, en það hefur ekki enn séð dags- ins Ijós. Með öðrum orðum: fútúrisminn er dæmi um það hvernig hin ójafna þróun tengist á þverstæðu- kenndan hátt. Ameríka eignast tæknina, vélarnar, en snauðustu Evrópuríkin — ítalía og Rússland — eignast fútúrismann, eins og andlegt spegilbrot þessarar sömu tækni. Það voru svo félagslegar hræringar í þessum löndum sem gáfu fútúris- manum inntak. Án borgaralegrar tækni er fútúrisminn óhugs- andi. Hann speglar í listum þá sögulegu þróun sem hefst um miðbik 19. aldar og nær vissu hámarki í fyrri heimsstyrjöld. Sókn eftir nýjum mörkuðum, al- þjóðleg þensla kapitalismans, tæknilegarframfarir, nýjar hugmyndir í vísindum, ekki sízt í sálvísindum og heimspeki, — allt þetta gaf listrænni túlkun nýja möguleika og ekki fór Ijóðlistin þar varhluta af. Hið gamla og hefðbundna lendir í æ haróari kreppu, klassíkin á góðri leið með að kiikkast í geðkleyfu hárlosi nýjunga, skurðborðiö bíður og freudistinn glottir . . . Gamlar hugmyndir líða ekki undir lok, þær glata aðeins grundvelli sínum. Þar meö skapast forsendur efahyggju eða þess sem nefnt hefur verið gildiskreppa (værdikrise). Menn- ingin hefur drepið guð og hann er ekki lengur haldreipi nema til hengingar. Hin kapitaliska verkaskipting leysti heildina upp í agnir, jafnt í hinni efnislegu framleiðslu sem and- iegum störfum. Ljóðið verður leið inní þjáninguna, hreinsunareldur sem gubbar séníum, ein- angruöum skáldum. Hefðin og mandarínar hennar ónanera við arin klassíkur á meöan „hinir ungu“ þræða öngstræti hins nýja. Hér liggja rætur hinnar Ijóðrænu bóhemíu, skáldsins sem hlýtur ekki samþykki hins gamla en loitast við að marka ný spor. Það er svo háð félagslegum og sögulegum skilyröum hvaða heimssýn hinir nýju straumar drekka í sig. Mo- óernisku skáldin t. d. sem runnu undan blóði Parísarkommúnunnar, hneigöust að symbolisma °g bölsýni, m. a. vegna ósigursins. Eins er með symbolismann rússneska, hann er eins og kvein- stafir ósigursins 1905. En þegar fútúrisminn kemur fram er sá veruleiki á flótta, og ný kynslóð komin ný bóhemía, sem vill hverfa frá innheimum til útheima, frá tungli til jarðar. í Rússlandi taka frjóustu fútúristarnir upp félagslega róttæk markmið, gagnstætt hinum ítölsku. Rússneski fútúrisminn er þverstæðukennd blanda marxisma og formalisma. Róttækni þeirra veldur því að þeir manngerva vélarnar, líta á þær sem tæki til að þróa félagslegar aðstæður, þar sem ítölsku fútúristarnir aftur á móti vélgerva manninn. Þeir tjá hlutgerðan hugsunarhátt eða eins og Marinetti segir: „Við erum meðvitaðri um leikinn en leikarana." Eins og áður getur er þaó hin borgaralega tækni sem gerir fútúriska tjáningu mögulega. „Fútúris- minn á upptök sín í hringióu borgaralegrar listar, og án hennar væri hann ekki mögulegur. Greinilegt andstöðueðli hans er ekki í mótsögn við þetta þegar öllu er á botninn hvolft." (Trotsky) I Menntamenn- intelligentsan- eru ekki einsleitur hópur, hvorki félagslega né hugmyndafræðilega. Lagskipting þeirra, kynslóðabil o. fl. skapa ólíka strauma. Sérhver staðlaður skóli leitast við að við- halda sjálfum sér. Við félagslega árekstra og sam- fara nýjum hugmyndum hefur hann tilhneigingu til aó leysast upp eða stendur a. m. k. andspænis nýjum straumi eða straumum. Þannig ræðst mo- dernisminn — í byrjun þessarar aldar — gegn safngervingu listarinnar, gegn rímaðri naglasúpu næturgala og sértækum hugmyndum. Imagisminn heimtar hluttækar myndir, sjálfstæöar myndir eins og rifrildi úr verkaskiptum heimi. Expressionisminn leitast við að sviðsetja vitundina sem tjáningu hins fullkomna eða hins ófullkomna í manninum, og súrrealisminn fetar í fótspor hans er hann varpar draumnum á léreft eöa blað. Fútúrisminn snýst gegn hinni „háleitu tónlist" symbolisma og trúar, gegn ananassálmum Sévérjanins og hans líkra, og pegn þeirri hefð sem þetta hvílir á. Allt hnígur sömu braut: Hin yngri bóhemía er að tjá nýjan veruleik og um leið leitast hún við að hafna hinum gamla til að réttlæta sjálfa sig. Ytri búnaður þessa er oft áherslan á hiö hneykslanlega, tilraun til aó ganga fram af hinu gamla. Rimbaud og Baudelaire hökkuðu í sig ópíum, prédikuðu „ruglun skilningarvitanna". og Baudelaire talaði um „aristokratiskt stolt yfir van- þóknun annarra". Imagistar og fútúristar gáfu dólgslegar yfirlýsingar um fortíðina — þennan 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Svart á hvítu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.