Birtingur - 01.01.1955, Blaðsíða 29

Birtingur - 01.01.1955, Blaðsíða 29
EINAR BRAGI: / I listum liggur engin leið til baka Frá því á landnámsöld og fram á síðustu áratugi voru bókmenntir þvínær eina list- greinin sem iðkuð var með árangri hér á landi, og enn eru þær höfuðgrein íslenzkra lista. Allt frá því er ritun fornsagna lauk og fram yfir síðustu aldamát var kvæðagerð sú grein bókmennta er langsamlega mest rækt var lögð við hérlendis, svo að segja má með litl- um ýkjum, að allar fagurbókmenntir okkar frá þessum öldum séu í bundnu máli. Auk þess eigum við frá öllum tímum kynstur bundins máls sem ekki verður talið til fag- urbókmennta, og mikill hluti þess verður trauðla talinn til bókmennta í venjulegum skilningi. Ég ætla ekki að ræða að ráði orsakir þess, að menn lögðu svo mikla stund á kvæðagerð, aðeins drepa lauslega á eina hinna augljós- ustu. — „Kvæðin hafa þann kost með sér, þau kennast betur og lærast ger, en málið laust úr minni fer . . .“ kvað Einar eydala- skáld. Minnið var sú dugnaðargáfa sem reis að verulegu leyti undir hlut prentsmiðjuvéla, prentara, bókbandsvéla, bókbindara, útgef- enda bóka, blaða og tímarita, ritstjóra, blaða- manna, bóksala, bókavarða, starfsfólks í bókabúðum, útvarpsþula, fyrirlesara, götu- prédikara og fjölmargra fleiri í íslenzku nú- tímaþjóðfélagi. Meðan skáldverk voru aðeins til á dýrum handritum, en vinnuafl kostaði lítið, hefði verið lítil hagsýni í því að kaupa handrit til skemmtilestrar í stað þess að ráða til sín kvæðamenn sem komið gátu í stað margra handrita, en aflað heyja og hirt gripi að auki. Eins og gleggst kemur fram í vísu séra Einars í Eydölum hafa skáldin séð hina hagnýtu yfirburði kvæðanna, og ekkert var eðlilegra en þau notfærðu sér þá. Þegar sögu- efni gerðist áleitið við skáldið, tók það sér ekki fyrir hendur að rita skáldsögu eða þátt, heldur orti sögukvæði (epískt) eða rímu. Bærist því dramatískt efni í fang, hvarflaði ekki að því að semja leikrit, sem hvergi var hægt að sýna og fáir hefðu nennt að lesa eða læra, heldur vann skáldið úr efninu kvæði, stundum ætlað til söngs í dansi. Og fleira en skáldskaparþörf varð mönnum hvöt til kvæðagerðar. Þá sem nú hefur menn — þótt ekki væru þeir skáld — langað til að halda ræður, segja ferðasögur, lýsa hinu og þessu, prédika, fræða, minnast látinna vina, hylla frændur sína og kunningja á tyllidögum o. s. frv., og þar af spruttu aldarhættir, heimsádeilur, lýsingakvæði, eggjanir alls kon- ar, siðapréd., sálmar, trúaráróður, búnaðar- pistlar, stjarnfræði, afmæliskveðjur, eftirmæli og margskonar annað bundið mál sem greini- lega hefur sjaldan verið samið í þeim tilgangi að skapa ljóðlist, heldur sett saman til þess að koma erindi á framfæri í þannig búningi að það festist mönnum í minni. Og lof sé þessum kvæðasmiðum öllum. Þeim eigum við að þakka margvíslegan fróðleik um sögu okkar og menningu, og vafalaust hafa kvæði þeirra gert mikið gagn, þótt ljóðlistin yrði ekki alltaf að auðugri. En vegna þess sem á eftir fer vildi ég aðeins benda á hið f jölþætta hlutverk bundins máls á umliðnum öldum í þjóðfélagi gjörólíku því sem við búum í. Menn greinir vart á um, að til sé eitthvert (ef til vill óskilgreinanlegt) frumeinkenni ljóðs: póetískt líf sem skilur ljóð frá öðrum greinum orðsins. Án viðurkenningar á því væri allt tal um ljóðlist út í hött. En þar af leiðir: að bundið mál sem ekki er gætt póet- 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.