Húsfreyjan - 01.10.1962, Side 17

Húsfreyjan - 01.10.1962, Side 17
urðu látið bjóða þér í þrjá vetur. Þú, sem ættir að geta valið um vistir. — Ég veit, að þetta er roluskapur af mér, sagði Gróa, og ég var staðráðin í að fara þangað ekki aftur eftir fyrsta veturinn. En svo skrifuðu börnin mér elskuleg, bréf og sendu mér sælgæti í sveitina, og ég varð þó að fara og þakka þeim fyrir um haustið. Þá var frúin í vandræðum og hafði talið víst, að ég yrði áfram, svo að ég lét tilleið- ast. — Gaztu ekki sett einhver skilyrði, fyrst henni var svona mikið í mun að hafa þig áfram? — Ég hefði nú sjálfsagt getað það, sagði Gróa. En ég var hálfpartinn að vona, að þetta breyttist og batnaði svona af sjálfu sér. — En svo hefur allt verið óbreytt, og þú fékkst samt ekki nóg af því og lézt telja þig á að vera þarna þriðja veturinn. — Ég ætlaði nú sannarlega ekki að gera það, þó að börnin skrifuðu mér og sendu mér alls konar góðgæti, sagði Gróa. En þá veiktist frúin um það leyti, sem ég kom úr sveitinni, og ég gat ekki vitað af heimilinu í reiðileysi, vegna barnanna. — Ætli það verði ekki sama sagan í haust? Frúnni hugkvæmist sjálfsagt eitthvert ráð til þess að klófesta þig. — Nei, sagði Gróa einbeittlega. Ég verð þar ekki fleiri vetur. Ég þoli ekki þennan kulda. Þú sérð nú, hvernig hendurnar á mér eru farnar, auk þess var ég frá af gigt vikum saman síðastliðinn vetur. — Ég verð að segja, að ég hef ekki mikla trú á, að þú standir við þetta fremur en áður, fyrst ég gat ekki ráðið þig hjá mér. En ég hef sömu stúlkuna, sem verið hefur hjá mér undanfarna vetur. — Ég rengi það ekki, sagði Gróa og brosti hlýlega. Þessi stutti tími var liðinn áður en varði, og við kvöddum öll Gróu með söknuði. Ég bauð henni að koma til mín úr sveitinni og vera hjá mér, á meðan hún væri að útvega sér vist. Hún þakkaði fyrir boðið, en sagðist mundu fara til frænku sinnar, eins og hún væri vön á haustin. — Hún er ein að basla með barnahópinn sinn, bætti Gróa við, og ég ljæ henni hönd í nokkra daga. — Þú kemur þá fljótlega og heimsækir okkur, og ég vona, að þú sýnir nú hetjuskap og hrindir öllum áhlaupum, sagði ég. Sumarið leið, og það var komið fram und- ir veturnætur, án þess ég frétti nokkuð af Gróu. Mér varð oft hugsað til hennar, og satt að segja hafði ég illan bifur á því, að hún lét ekki sjá sig. Það kom fyrir, þegar hljótt var í húsinu, að mér heyrðist barið, án þess að nokkur sjáanlegur væri á ferðinni, og setti ég það jafnan í samband við Gróu. Svo var það um kvöld, að ég sat ein heima yfir sofandi börnunum, og Gróa fór ekki úr huga mínum. Skyldi hún enn hafa lent í sama staðnum, og það sé þess vegna, sem hún veigrar sér við að heimsækja mig? Þá heyrði ég greinilega, að barið var að dyrum. Ég reis á fætur og opnaði hurðina, en sá engan mann. Þetta hlaut að vera fylgj- an hennar Gróu, hvort sem hún birtist nú sjálf á eftir. Og viti menn. Skömmu seinna var barið aftur, og nú var það Gróa í eigin persónu. Ég bauð hana velkomna og sagði sem satt var, að ég væri lengi búin að von- ast eftir henni. — Ég er líka mikið búin að hugsa til ykk- ar, en eiginlega hef ég ekki átt heiman- gengt, sagði Gróa hálf vandræðalega. — Jæja. Hefurður svona mikið að gera í nýju vistinni, Gróa mín, eða á ég að trúa því, að þú sért ennþá í sama stað? — Ætli ég verði ekki að leggja það á þig, þó að mér falli það illa, sagði Gróa. Ég vona, að þú takir það ekki mjög nærri þér. — Jú, það geri ég sannarlega, og ég skil ekkert í þér. Þú ert alltof góð til þess að láta fara svona með þig, eins og ég hef marg- Húsfreyjan 17

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.