Vera - 01.02.1986, Blaðsíða 32

Vera - 01.02.1986, Blaðsíða 32
I Borgar bókasafn Borgarstjóm samþykkir aö auka bókakaupa- fé Borgarbókasafnsins, þannig að það hækki um 50% milli ára. Greinargerð: Undanfarin ár hefur safnið verið svelt að fé til bóka- kaupa. Árið 1984 var aukning til bókakaupa aðeins 20% milli ára, þ.e. aukning bókakosts allra deilda safnsins var 775 eintök. Á árinu 1985 er gert ráð fyrir að bókakosturinn aukist um 500 eintök. Afskrifuð eintök á þessum tveimur árum voru 7866 árið 1964 og 9500 árið 1985. Við þessari þróun þarf að stemma stigu og því verður að líta á það serji lágmark að safnið fái 50% aukningu til þess að koma í veg fyrir að það drabbist niður. Heilbrigðismál Borgarstjóm samþykkir að verja kr. 685 þús. til rannsókna á lifríki Grafarvogs og loftmeng- un í miðbæ Reykjavíkur. Borgarstjórn samþykkir að fyrstu tillögur að framlagi borgarinnar til framkvæmda á sviði heilbrigðismála haldist óbreyttar, þrátt fyrir niðurskurð ríkisvaldsins á framlögum til þessa málaflokks. Það felur í sér að framlag borgarinnar til heilbrigðismála verði áfram kr. 30.000.000 í stað kr. 25.360.000 eins og ný áætlun gerir ráð fyrir. Borgarstjórn samþykkir að verja kr. 425 þús. til fræðslustarfs starfsfólks á Heilsuverndar- stöð og heilsugæslustöðvum borgarinnar í samræmi við tillögur þeirra stofnana. Borgarstjórn samþykkir að verja kr. 320 þús. til rannsókna á sviði tannverndar. Rannsókn þessi miðar að því að finna áhættuhópa með- al barna á forskólaaldri að því er tekur til tann- skemmda. Tillagan er í samræmi við sam- þykktir heilbrigðisráös. Borgarstjórn samþykkir að verja kr. 834 þús. til þess að ráða tvo starfsmenn að Heilsu- verndarstöðinni, sem hafi það sérstaka verk- efni að annast kynfræðslu á vegum stöðvar- innar. Holræsi Borgarstjórn samþykkir að hækka framlag til aðalholræsa úr kr. 60.4 millj. í kr. 80.4 millj. Greinargerð: í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir kr. 5 millj. framlagi til byrjunarframkvæmda á dælustöð við Kalkofnsveg. Hækkunartillaga þessi felur í sér að þetta framlag hækki um kr. 15 millj., þannig að hægt verði að Ijúka við dælustöðina á þessu ári. Enn fremur felur hún í sér að kr. 5 millj. verði varið til að byrja framkvæmdir við suður- ströndina. Greinargerð: Þessi hækkun mun gera SVR kleift að festa kaup á mun fleiri vögnum en þeim sex sem fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir. Að mati Kvennaframboðsins stuðlar auk- in þjónusta almenningsvagna að aukinni notkun vagn- anna. Það leiðir væntanlega til meira öryggis i umferð- inni, fækkun einkabíla á yfirfullum bílastæðum mið- borgarinnar og dregur úr nauðsyn bygginga dýrra bíla- geymsluhúsa. Frumskilyrði bættrar þjónustu SVR er vaxandi vagnakostur. íþróttir Borgarstjórn samþykkir að leiga af Laugar- dalshöll og Laugardalsvelli hækki um 33% frá áætlaðri útkomu. Borgarstjórn samþykkir að framlag til íþrótta- starfsemi ÍBR verði lækkað úr kr. 21.5 millj. í kr. 11 millj. Borgarstjórn samþykkir að verja kr. 1 milljón til að koma upp skautasvellum í hverfum borgarinnar. Samkvæmt fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að al- menningur standi undir allt að 80% kostnaðar af al- menningsíþróttamannvirkjum, s.s. sundstöðum og skíðalyftum. En keppnisíþróttamenn standa sjálfir að- eins undir 13—18% kostnaðar vegna þeirra mannvirkja er þeir nota. Þetta er andstætt þeirri stefnu Kvenna- framboösins að örva beri almenningsíþróttir, en ekki að ýta undir keppnisíþróttir með óeðlilega lágum þjónustu- gjöldum. Stefna borgarinnar hvað varðar íþróttir ætti ekki að vera að ýta undir stjörnudýrkun, heldur auðveldaöllum almenningi að stunda líkamsrækt sér til gleði og heislu- bótar. Umferð SVR 32 Borgarstjórn samþykkir að hækka framlag til kaupa á umferðaljósum úr kr. 15 millj. í kr. 25 millj. Æskulýðsmál Borgarstjórn samþykkir að verja kr. 1.081.000 til reksturs útideildar í Seljahverfi. Borgarstjórn samþykkir að framlag borgar- sjóðs til kaupa á nýjum vögnum SVR verði kr. 53 millj. í stað kr. 35.5 millj. J

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.