Ritmennt - 01.01.2000, Side 70

Ritmennt - 01.01.2000, Side 70
ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR fyrir lærða útlendinga og þá um hluti sem einkennandi væru fyrir Island og finnast síður í öðrum löndum. Lærðar ritgerðir um framandi efni, t.d. heimspeki, ættu íslend- ingar að láta útlendingum eftir, því að þeir hafa miklu betri tækifæri og aðstæður til slíkra skrifa (79). Jón ráðleggur mönnum ekki aðeins að skrifa greinilega, þarflega og snillilega, heldur einnig stutt svo að mönn- um „ægi eigi í augum að skrifa sér það upp'' (80). Hér er ekki gert ráð fyrir að skrif þessi komist á prentaðar bækur heldur að þau gangi manna á meðal í uppskriftum. Hagþenkir fjallar í grófum dráttum um menntun embættismanna, hvernig þeim beri að haga sér í embætti og um hvað þeir eiga að skrifa landinu til gagns og velferðar. Viðhorf til bókmennta og bóklegrar menn- ingar koma því víða fram í ritinu. Um skáldskaparfræði fjallar Jón í anda klassis- isma og fornmenntaáhuga. Þar miðar hann fyrst og fremst við klassíska ból<mennta- hefð eins og hún var kennd og iðlcuð í lat- ínuslcólunum, en lítur einnig til norræns miðaldaarfs í því samhengi. Menn gátu val- ið sér yrkisefni og bókmenntategundir úr hinni klassísku hefð, en mikilvægt var þó að yrkja á íslensku fyrir íslendinga og um siðbætandi eöa nytsamlega hluti. Ef reynt er að staðsetja Hagþenki í ís- lenskri bókmenntasögu liggur e.t.v. beinast við að liorfa til allra þeirra rita sem framá- menn skrifuðu í byrjun átjándu aldar í þeim tilgangi að efla viðreisn og framfarir lands- ins. Þessi rit voru skrifuð í anda þýsks kameralisma 17. aldar, sem lagði áherslu á fruml<væði miðstjórnarvaldsins við fram- farir í atvinnumálum, með hagsæld föður- landsins og þegnanna að leiðarljósi.18 Hér RITMENNT má nefna rit eins og „Consilium de Islandia in optimum statum constituenda" eftir Arngrím Þorkelsson Vídalín frá árinu 1701, „Forslag til Islands opkomst" eftir Hans Becker frá 1736 og „Andmerckninger over Island og dessens Indbyggere" frá 1736 eða 7 eftir Matthias Joachimsen Wagel. Þessi rit lögðu fram tillögur fyrir kóng og stjórnvöld um úrbætur og nýsköpun í atvinnuháttum á Islandi. Jón Olafsson kemur einnig með slílcar tillögur í síðasta hluta Hagþenkis þótt ekki séu þær nákvæmlega útfærðar. Það sem er þó ólíkt með Hagþenld og þess- um ritum er að Hagþenkir er skrifaður á ís- lensku og fyrir íslendinga en viðreisnarritin á latínu eða dönslcu og voru ætluð stjórn- völdum. Að þessu leyti sver Hagþenkir sig fremur í ætt við rit upplýsingarmanna á síð- asta hluta 18. aldar. í honum er ennfremur að finna í ríkum mæli nytsemissjónarmið það sem menn hafa bent á í skrifum upplýs- ingarmanna. Ljóst má vera af þessari umfjöllun að Jón Ólafsson úr Grunnavílc stendur á ákveðn- um tímamótum. Rit hans er að mörgu leyti framhald af viðreisnarritum þeim sem skrif- uð voru í anda kameralistískrar hugmynda- fræði í byrjun 18. aldar og fjölluðu um fram- farir í atvinnumálum landsins. Hann er bundinn af fornmenntastefnunni og húm- anisma 16. og 17. aldar varðandi fagurfræði bókmennta, en vill um leið upphefja hinn forna norræna arf og skipa honum við hlið hins klassíska. Að lokum bendir rit hans 18 Sjá Þórunn Sigurðardóttir: Inngangur, bls. x-xiii. Um áhrif kameralisma á íslenskt stjórnkerfi má lesa í grein Haralds Gustafssonar: Stjórnsýsla, bls. 43-60. 66
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Ritmennt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.