Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 34
Aáeins MICRO stóást allar kröfur
eru liðnir 16 mánuðir frá
því VIS bauð viðskiptamönnum
sínum upp á að leigja barnabílstóla frá
félaginu á kostnaðarverði. Á þessum
tíma hafa verið leigðir út liðlega 3000
stólar. I upphafi skapaðist nokkur
umræða í þjóðfélaginu um það hvort
bakvísandi stólar væru betri en þeir
stólar sem íyrir voru á markaði. VÍS
tók af öll tvímæli um það með því að
sýna fram á með gildum rökum að
börn ættu að snúa baki í akstursstefnu
bílsins eins lengi og kostur væri. Nú,
liðlega ári síðar, blandast engum
hugur um að bakvísandi stólar eru
bestir. Um það vitna ekki hvað síst
sjónvarpsfréttir RUV í ágúst s.l.
þarsem greint var frá því að í Svíþjóð
hefði verið gerð ítarleg könnun á
öryggi barnabílstóla yngstu barnanna.
I rannsókninni, sem gerð var á vegum
tímaritsons MOTOR, voru 8 algeng-
ustu barnabílstólarnir í Svíþjóð teknir
og prófaðir; þar á meðal Maxi Cosy,
Britaxino og MICRO. viðstaddir
þessa tilraun voru flestir sem koma að
umferðaröryggismálum þar í landi.
Niðurstöðurnar voru afgerandi:
Aðeins MICRO stóllinn, sem VÍS
leigir út, stóðst allar kröfur um öryggi.
VÍS og FOLKSHAM, sem er sam-
starfsaðili okkar í Svíþjóð, eru þess
fullviss að sama verður uppi á tening-
num hvað varðar MACRO stólinn -
enda hafa þúsundir foreldra valið
hann til þess að vernda börnin sín í
bílnum.
32
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ