Akranes - 01.07.1944, Blaðsíða 11

Akranes - 01.07.1944, Blaðsíða 11
akranes 95 (*ils Guðmundsson: íslenzkir athafnamenn L, 5. Geir Zoega Ævisaga Framhald. ina og aðstoð við þá, eða snattstörf hjá kaupmönnum bæj- arins. Vann Geir að þessu jöfnum höndum, hjálpaði föður sínum við fiskvinnuna eftir megni, en snérist þess utan fyrir verzlanirnar, þegar þar var handarvik að fá. Eina lýsingin, sem nú mun til á æskuheimili Geirs, er í Dægradvöl Benedikts Gröndal. Ber hún með sér að þar hafi verið lifað í „heiðurs-fátækt“, og að hin mesta eindrægni hafi ríkt innan fjölskyldunnar. Gröndal farast orð á þessa leið: „Jóhannes Zoéga (var alltaf kallaður ,,Sugger“) bjó í litlu húsi nálægt tjörninni, og Ingigerður kona hans; þau voru bæði stillt og góð, fremur fátæk, en ekki upp á aðra komin; Jóhannes lagði það fyrir sig að skera gler og setja rúður í glugga. Þá var Geir orðinn þroskaður og var snemma duglegur og efnilegur, en Einar og Magdalena voru ung; eftir Jóhannesi syni hans man ég ekki og Tómas sá ég aldrei'1.1) Þessi endurminning er frá því skömmu eftir 1840, og virðist lýsingin trú, það sem hún nær. Þegar á bernskuárum batt Geir vinabönd við nokkra jafnaldra sína o'g nágranna, og munu þau hafa haldizt ó- rofin alla stund upp frá því. Hér verða þrír einir taldir. Einhver bezti kunningi Geirs og leikfélagi í æsku var Torfi Jónsson. Torfi var sonur Jóns hafnsögumanns Jó- hannessonar og Halldóru dóttur Sigurðar „fabrikku-for- standara“ í Reykjavík.2) Torfi átti heima í svonefndum Hákonarbæ, rétt norðan við Grjótaþorpið. Hann var snemma hneigður til sjómennsku, eins og Geir, enda gerð- ist hann formaður á unga aldri. Torfi þessi var frábær afla- maður, sótti sjó ákaflega fast, og þótti bera mjög af flest- um formönnum í Reykjavík. Var stundum allhörð keppni milli Torfa og Gerrs, eftir að báðir urðu formenn, en þó hélzt vinátta þeirra eftir sem áður. Torfi var um marga hluti vel gerður maður, en drykkjuskapur háði honum mjög, einkum er á leið ævina. Var Geir raun að því, en fékk þar engu um þokað. Torfi andaðist 1898, 68 ára gam- all. Sonur hans var Jón Torfason, sem lengi bjó í Hákonar- bæ, og flestir gamlir Reykvíkingar kannast við. Jón stund- aði sjó kappsamlega eins og faðir hans. Annar æskuvinur Geirs var Helgi E. Helgasen. Faðir hans var Einar smiður og brunavörður Helgason, bróðir Arna prófasts í Görðum, hins nafnkunnasta manns. Kona Einars, en móðir Helga, var Margrét Jónsdóttir, Snorra- sonar úr Njarðvík. Einar smiður keypti árið 1841 hinn svo- nefnda Brúnsbæ,3) örskammt frá Zuggershúsi, og varð þá nágranni Jóhannesar glerskera. Voru börn Einars og Jó- hannesar á líkum aldri, enda léku þau sér mjög saman og tengdust vinaböndum. Helgi E. Helgasen var mesti gæða- maður. Hann gekk á prestaskólann og útskrifaðist þaðan, en tók síðan við forstöðu barnaskólans í Reykjavík. Þar vann hann langt starf og gott, við erfið skilyrði og ærið skilningsleysi manna. Eins og fyrr er getið, giftist hann Magdalenu Zoéga, systur Geirs, eftir að hún var búin að niissa fyrri mann sinn. Höfðu þau þá ekki sézt í mörg ár, en geymdu bæði æskuminningarnar. Þegar Helgi frétti, að 1) Dægradvöl bls. 205. 2) Sigurður þessi var um skeið yíirmaður á vefjarastofu iðnaðar- stofnananna, og hlaut því þetta virðulega nafn. 3) Brúnsbær var heitinn eftir Sigvardt Bruun, fangaverði, dönskuim manni. Magdalena væri orðin einstæðingur úti í Kaupmannahöfn, settist hann niður og skrifaði henni bónorðsbréf. Hún svar- aði játandi og kom heim litlu síðar. Varð hjónaband þeirra hið bezta, og sannaðist 'hér hið fornkveðna, að lengi lifir í kolunum. Geir og Helgi ræktu vel mágsemdir og vináttu meðan báðir lifðu. Þriðji vinur Geirs og leikbróðir í æsku, var Kristján Þor- steinsson. Hann var sonur Þorsteins Bjarnasonar lögreglu- þjóns og konu hans, Ragnheiðar Ólafsdóttur í Seli við Reykjavík, Jónssonar. Þorsteinn hafði í fyrstu verið bóndi í Bráðræði, en var settur lögregluþjónn bæjarins 1837 og gegndi því starfi óslitið til 1865. Bjó hann á lögregluþjóns- árum sínum í svonefndu Brunnhúsi við Suðurgötu.1) Byggði hann húsið sjálfur og hlaut til þess styrk úr ríkis- sjóði. Kristján, sonur Þorsteins, var þrem árum eldri en Geir. Allt um það urðu þeir hinir mestu mátar. Kristján þótti snemma mannsefni mikið. Óvæginn var hann og kapps- fullur, bjó yfir stórum framtíðardraumum, staðráðinn í að hrinda þeim í framkvæmd. Þótt Geir væri miklum mun hæggerðari maður og fastari í rásinni, er ekki ósennilegt, að hann hafi orðið fyrir nokkrum áhrifum frá vini sínum og eldri félaga, ákafa hans og staðfastri ætlun að ryðja sér braut til fjár og frama. Kristjáns Þorsteinssonar verður nánar getið síðar. Það var að nokkru rakið í síðasta kafla, hvernig um- horfs var í Reykjavíkurbæ á uppvaxtarárum Geirs Zoéga. Ekki verður sagt, að þar hafi verið mikill gróandi í athafna- lífi, né hátt til lofts eða vítt til veggja í salarkynnum vís- dóms og mennta. Við augum blasti léleg eftiröpun erlendra siða, og þar á ofan allt það rótleysi og öll sú vanmenning, sem einatt eru fylgifiskar nýlendubæja. Drykkjuskapur var mikill, jafnt meðal æðri sem lægri, klíkur óðu uppi og flestum ber heim um það, að fólk hafi „tyranniserað hvað annað með njósnum og kjaftæði“, eins og Gröndal kemst að orði.2) Ekki er lýsingin fögur, en mun þó í aðalatriðum sönn. Þrátt fyrir þetta lá vor í lofti og andi frelsis og framfara tók að vinna æ víðtækari lendur. Úti í heimi höfðu gerzt þeir atburðir, sem áttu eftir að hafa gagngerð áhrif á lífs- viðhorf manna, jafnvel þeirra, sem í einangrun og fásinni bjuggu norður á hjara heims. Atburðir þessir voru frönsku byltingarnar 1830 og 1848, og frelsishreyfingarnar, sem sigldu í kjölfarið í flestum löndum Evrópu. Hvarvetna vöktu þær bergmál í brjóstum manna. Ungir fullhugar komu fram á sjónarsviðið, gæddir sterkum umbótavilja og spámannlegum eldmóði. íslenzkir menntamenn í Kaup- mannahöfn hófu hátt á loft merki hinnar nýju siðbótar. Þarf ekki annað en nefna nöfn Baldvins Einarssonar, Fjölnismanna og Jóns Sigurðssonar, svo að allir skilji hví- lík stefnubreyting var á orðin. Og þótt Reykjavík væri enn um sinn eitt sterkasta vígi kyrrstöðunnar, slapp hún þó ekki með öllu ósnortin við hressandi stormþyt hins nýja tíma. Það mátti að vísu segja, að frelsishræringarnar tækju stundum á sig nokkuð kynlegar myndir hér í fábreytninni, og má þar einkum nefna pereatið svonefnda við lærða skólann, sem beindist gegn einhverjum gagnmerkasta vor- manni þjóðarinnar, Sveinbirni rektor Egilssyni. Skemmti- legri er sú myndin, að árið 1845 sá Hoppe stiptamtmaður ástæðu til að kvarta við stjórnina undan dæmalausri ósvífni Gríms amtmanns Jónssonar. Sú ósvífni var í því fólgin, að Grímur hafði þá fyrir ári síðan tekið upp þann sið, að skrifa stiptsyfirvöldunum bréf á íslenzku. Lagði Hoppe til, að Grímur væri harðlega víttur fyrir þetta til- tæki, og fengi jafnframt ströng fyrirmæli um að skrifa embættisbréf sín á dönsku. í áþreifanlegustum myndum komu hin nýju sjónarmið 1) Brunnhús mun hafa verið þar sem nú er Suðurgata 15. 2) Ben. Gröndal: Dægradvöl, bls. 189.

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.