Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2004, Blaðsíða 17
16 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 Fréttir OV I>V Fréttir MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 17 Þjóðarsorg í Rússlandi / dag og á Slátrun Hlaupið með sært barn til móts morgun er þjóðarsorg i landinu. við lækni. Þak íþróttahússins féll saman Átökum rússneska hersins og hryðjuverkamannanna lauk ekki fyrr en þak íþróttahússins féll. Ekki er enn á hreinu hvaða hópi gíslatökumennirnir tilheyrðu. Enn hefur enginn hópur lýst ábyrgðinni á hendur sér.. Rússnesk yfirvöld segja hryðjuverkamennina af tsjetsjensku og arabisku bergi brotna og grunur leikur á að al Kaida hafi lagt fjármuni til gíslatökunnar. Sjálfboðaliðar úr bænum Sjálfboðaliðar bera slasaðan nemanda út úr rústunum eftir að sérsveitir rússneska hersins höfðu barist við vopnaða hryðjuverkamenn. Tala látinna stígur enn Með hverri klukkustund hækkar tala látinna. Ottast er að hún haldi áfram að stiga. Meðal hinna látnu eru hundruð barna. Komst undan með barnið sitt Gíslarnir i Beslan voru börn, foreldrar og kennarar. Hlúð að nemendum Hundruð nemenda eru enn á sjúkrahúsi og njóta aðhlynningar. Margir alvarlega særðir. Fjölskyldan sameinuð Hér skoðar fjölskylda rústirnar af skólanum. Skriðdrekar á götum úti Er bardögum lauk flýðu einhverjir hryðjuverkamenn út á götu og voru eltir uppi af hermönnum á skriðdrekum og reiðum almenningi. Yngstu börnin gátu ekki flúið Þegar sprengja sprakk i iþróttahúsi skólans reyndu mörg barnanna að flýja. Yngstu börnin sátu eftir og gátu hvergi farið. Þau voru, likt og þau eldri, í gislingu í 52 tima. Börnin voru án matar og mörg hver klæðalitil eftir illa meðferð hryðjuverka- manna. Hundruð barna eru látin og enn fleiri stórslösuð. íþróttahúsið Umsátrinu lauk er þak íþróttahússins hrundi. Erfitt hefur reynst að bera kennsl ásum likin. Enn vinna sjálfboðaliðar að hjálparstarfi i Beslan. Skólinn í rúst Eftir átökin var skólinn rjúkandi rúst. Hryðjuverkamenn og hermenn börðust i á þriðja tima. Hryllingur Hryðjuverkamennirnir skutu allt kvikt er sprengja sprakk íiþróttahúsi skólans. Dreng komið f skjól íbúi i Beslan hleypur með dreng i skjól á meðan bardagar geisa allt um kring. Börnin reyndu að flýja þegar sprengja sprakk i iþróttahúsi skólans. f miðjum bardaga Borgari aðstoðar hermenn við að koma særðum gísl úr skotlinu. I gær voru fyrstu jarðarfarirnar haldnar í Beslan. Hundruð íbúa verða borin til grafar eftir að hryðjuverkamenn gengu berserksgang í skóla í þessum litla bæ í Rússlandi. Tala látinna hækkar stöðugt. „Yngrí nemendurnir komust ekki neitt. Hryðjuverkamenn- irnir höfðu lokað þau afog krakkarnir komust ekki neitt. Horfðu bara á eftir okkur flýja." náði að bjarga tveim börnum frá átökunum. Fljótlega fylltist ná- grennið af reik, skothvellum og öskrum frá ungum börnum sem börðust fyrir lífi sínu. Bardagarnir stóðu á þriðja tíma. Þá hrundi þak íþróttahúss- ins. Nokkrir hryðjuverkamann- anna reyndu að flýja en voru eltir uppi af sérsveitarmönnum og skriðdrekum. Rússneskir her- menn börðu einn hryðjuverka- mann til bana á götu úti. Ein- hverjir reyndu að hverfa inn í hóp óbreyttra borgara og hús í bæn- um var hertekið af hryðjuverka- mönnum sem komust undan. í dag ber fólkið í Beslan hina föllnu til grafar. Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu í dag og á morgun. Óttast er að tala látinna muni stíga enn frekar og að hún fari jafnvel upp í 600. Stjórnvöld í Rússlandi hafa ítrekað sent frá sér misvísandi upplýsingar og er erfitt að greina hvað er satt og hvað ekki. Þeir héldu því í fyrstu fram að hryðjuverkamennirnir hefðu einungis nokkur hundruð gísla. Þeir reyndust síðar vera um 1.500. Evrópusambandið hefur krafið Pútín um skýringar. Pútín segir að efla verði öryggismál í Rússlandi en allt bendir til þess að hryðjuverkamennirnir hafi falið vopn og sprengiefni í skól- anum fyrr í sumar. Innanríkis- ráðherra svæðisins hefur sagt af sér. hafl meðal annarra fjármagnað gíslatökuna. Ekki ber sjónarvottum saman um það hvort sprengjan sem sprakk skyndilega - og olli því að rússneskar sérsveitir neyddust til að ráðast til atlögu - hafi verið af völdum konu sem sprengdi í sig í loft upp eða sprengju sem fest var við vegg í íþróttahúsinu. „Skyndilega varð sprenging og við fengum tækifæri til að reyna að flýja," var haft eftir ungum dreng á rússneskri sjónvarpsstöð en á þriðja hundrað gíslar ruddust út úr skólanum og hryðjuverka- menn á þaki skutu á þá með vél- byssum. Katya, 14 ára, sagði skömmu eftir að henni hafði tekist að flýja: „Þeir skutu á okkur. Ég held að sumir vina minna hafi verið skotnir niður. Ég hugsaði bara um mömmu og hljóp og hljóp." Annar drengur grét og sagði að aðeins þeir eldri hafi getað flúið: „Yngri nemendurnir komust ekki neitt. Hryðjuverkamennirnir höfðu lokað þau af og krakkarnir komust ekki út. Horfðu bara á eft- ir okkur hinum flýja." Sprengdi sig í loft upp „Ein konan, hryðjuverkamað- ur, sprengdi sig í loft upp beint fyrir framan okkur," lýsti 13 ára nemandi fyrir fréttamönnum skömmu eftir atburðin. „Önnur kona var rifin út úr leikfimissaln- um áður en hún gat gert það sama." Börn höltruðu út úr skólanum á meðan bardagar geisuðu. Tíu þúsund rússneskir hermenn höfðu umkringt skólann. Margir íbúar bæjarins voru þar að auki vopnaðir og tóku bæði þátt í bar- dögunum og almennum björgun- araðgerðum. Lögreglumaður í bænum lést til að mynda er hann Sérsveit rússneska hersins neyddist til að ráðast til atlögu eftir að sprengja sprakk í skólanum og brjálæðingarnir byrjuðu að skjóta á skólabörn, for- eldra og kennara sem reyndu að flýja. Talið er að í það minnsta 400 gíslar hafi legið í valnum, þar á meðal á annað hundrað börn og þrjátíu hryðjuverkamenn. Þeir eru sagðir af tsjetsjensku og arabísku bergi brotnir en engin samtök hafa lýst ábyrgðinni á hendur sér enn sem komið er. Mörg barnanna sem lifðu af þessa 53 tíma í gíslingu voru nak- in eða á nærfötunum. Þeim hafði verið haldið í miklum þrengslum í íþróttasal skólans. Þau fengu eng- an mat og ekkert að drekka. Neyddust sum hver til að drekka eigið þvag til að halda lífi. Þrír náðust lifandi Tveir hryðjuverkamenn eru sagðir hafa verið barðir til dauða af æstum íbúum Beslan. í bænum búa um 36 þúsund manns en hann er í Norður-Ossetíuhéraði í Rússlandi. Þegar rússneski herinn réðist til atlögu náðu nokkrir hryðjuverkamenn að fela sig í kjallara skólans og verjast í fleiri tíma. Þrír voru teknir lifandi og eru í höndum rússneskra yfírvalda sem hafa lýst þvf yfir að A1 kaída „Þeir skutu á okkur. Ég hefd að sumir vina minna hafi verið skotnir niður. Ég hugsaði bara um mömmu og hijóp og hljöp." ' . Sjálfboðaliði og sérsveitamaður Ung kona, sjálfboðaliði og sérsveitarmaður koma börnum í öruggt skjól. Hryðjuverkamennirnir hikuðu ekki við að skjóta börnin I Beslan. Zarina Tetova og dætur hennar Zarina missti dætur sinar. Þær voru nemendur i skólanum og teknarí gislingu af hryðjuverkamönnum. '■ i Hryðjuverkamenn Aðeins þrir hryðjuverkamenn eru ihaldiyfirvalda. Hundruo narna norin til grafar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.