Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 13
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 13 Skólar Friðrik Ottó Friðriksson mætti ekki fyrir sameinast rétt 1 §ær Viðræðum um samein- ingu Háskóla Reykjavíkur og Tækniháskóla íslands er lok- ið með sam- komulagi um stofnun einkahluta- félags sem taka mun yfir starfsemi beggja skólanna. Fram að þessu hefur Háskólinn í Reykjavík verið rekinn af Verslunarráði íslands og Tækniháskóli fslands verið ríkisháskóli. Hluthafar í einkahlutafélaginu eru Versl- unarráð Island, Samtök iðn- aðarins og Samtök atvinnu- lífsins. Félaginu verður ekki ætlað að skila eigendum sín- um fjárhagslegum arði. Unglingar harka áfengi Á föstudag greip hverfislögreglan í Grafar- vogi mann við að kaupa áfengi fyrir ungmenni. Nokkuð hafði borið á ungmennum við áfeng- isverslun hverfisins og einnig voru höfð afskipti af ungmennum sem tek- ist hafði að kaupa áfengi þrátt fyrir að hafa ekki náð tiiskyldum aldri, 20 ára. Dæmdur nauðgari effirlýstur Þingfesta átti í dag mál ríkissak- sóknara á hendur Friðriki Ottó Frið- rikssyni sem var nýverið dæmdur í Hæstarétti fyrir gróf ofbeldisbrot gegn fyrrum sambýliskonu sinni. Friðrik hélt henni nauðugri í fleiri klukkutíma, nauðgaði henni ítrekað og ógnaði með hnífi. Sambýliskon- an kærði en dró framburð sinn skyndilega til baka. Friðrik er nú ákærður fyrir að hafa neytt hana með ofbeldi til að breyta framburði sínum. Hæstiréttur dæmdi Frið- rik Ottó til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fýrir brot s gegn sambýliskonunni fýrr- verandi. Friðrik þarf einnig að greiða henni 1,5 millj- ónir í skaðabæt- ur. Brot Friðriks þóttu hrotta- fengin en vitni voru að því þegar Friðrik dró sambýliskon- una á hárinu aftur inn í íbúðina þar sem hann nauðgaði henni ítrekað. Brotið sem Friðrik er ákærður fyrir í héraðsdómi varðar 108. grein cilmennra hegningarlaga - að hafa áhrif á vitni. Meintar hótanir Frið- riks eiga að hafa átt sér stað þriðju- daginn 20. apríl á gistiheimilinu Páf- anum. Friðrik er sakaður um að hafa beitt konuna líkamlegu ofbeldi, hótunum um líkam- legt ofbeldi og haldið henni nauðugri. Eftir fund þeirra á Páfan- um skrifaði sambýliskonan fyrrverandi undir yfirlýsingu þar sem hún dró framburð sinn til baka. Friðrik Ottó mætú ekki fyrir héraðsdóm í gær. Hann hefur ekki mætt í þau skipú sem átt hefur að þingfesta málið og hefur verið gefin út hand- tökuskipun á hendur honum. simon@dv.is lan Huntley, morðingi hinna tíu ára gömlu stúlkna Holly Wells og Jessicu Chapman, notar tíma sinn í fangelsi til að búa til dúkkur úr leir og stinga svo nálum í þær. Soham-morðingi á kafi í vádá í fangelsinu Soham-morðinginn Ian Huntley er á kafi í vúdú í Wakefield- fangelsinu þar sem hann afþlánar lífstíðarddm fyrir drápið á hinum tíu ára gömlu stúlkum Holly Wells og Jessicu Chapman í fyrra. Breska blaðið The Sun hefur það eftir fanga í Wakefield að Huntley eyði miklu af tíma sínum í að búa til dúkkur úr leir, setja þær í föt, gefa þeim nöfti og stinga svo nálum í þær. Dúkkurnar hefur hann búið til í | | ■1^——— listnámstímum innan fangelsisins. Helstu vinir Hunúeys í fangels- inu eru barnaníðingurinn Fred Bull og barnamorðinginn Roy Whitíing. Bull og Huntley eru einangraðir frá öðrum föngum og hafðir í haldi á sjúkrastofu fangelsisins. Það mun hafa verið Bull sem byrjaði á vúdú- kuklinu og svartagaldrinum en Huntley fylgdi honum svo eftir. Fjöldi hótana Eftir að Huntíey hóf afplánun á dómi sínum hefur hann tvisvar ver- ið fluttur á milli fangelsa vegna árása sem hann hefur orðið fyrir frá öðrum föngum og hótunum um líf- lát. Er hann kom fyrst til Wakefield- fangelsins var hann vistaður í D- álmu þess og þar kynntist hann Whitíing. Að sögn Barrys Jackson fyrrum fanga þar, sem The Sun ræddi við, var Huntíey í öryggis- Vúdú Vúdúdúkkur svipaðar þeim sem Huntley býrtil. gæslu allan sólarhringinn og fanga- vörður staðsettur fyrir utan klefa hans dag og nótt. „Hann kom ekki út úr klefanum fyrstu vikurnar en þegar hann tók eftir að vörður fylgdi honum hvert fótmál um álm- una varð hann brattari og fór að reyna að blanda geði við aðra fanga," segir Jackson. Hins vegar ollu hótanir hinna fangana því að hann var fluttur í einangrun í sjúkraálmuna. 4.000 pund fyrir að drepa Huntley Hópur 30 til 40 fanga í Wakefield hefur tekið sig saman og sett 100 pund hver, eða um 4.000 sam- tals, til höfuðs Huntíey. Þessi upphæð verður borguð í peningum sfgarettum eða fíkniefnum hverj- um þeim fanga sem tekst að drepa Huntley hann alvarlega. Vegna þessara hót- ana krafðist Huntley þess að verða fluttur í sjúkraálmuna. Þar var hann settur á sjálfsmorðsvakt. Huntíey hefur áður reynt sjálfs- morð, er hann var settur í Wood- hill-fangelsið, en það misheppnað- ist. Og hann varð fyrir líkamsárás í Belmarsh-fangelsinu er hann sagði einum fanganna þar að sítt ljóst hár hans minnti sig á Jessicu Chapman. Alvarleg árás Jackson heldur því fram að þeir Huntíey og Bull hafi staðið að alvar- legri árás á 22 ára fanga í Wakefield og reynt að nauðga honum. Þetta mál hafi hins vegar verið þaggað niður. Þá segir Jackson einnig að Huntíey hafi ásakað sig fýrir morð- hótanir í sinn garð og það hafi valdið því að Jackson var fluttur í annað fangelsi þar sem hann lauk afplánun sinni. eða skaða lan Huntley Soham- morðinginn er kominn á kafl vúdú og svarta- galdurskukl. ... vera hommi? Hommar og lesbíur eru alls staðar. Við erum sjómenn, banka- starfsmenn, barnapíur og geimfarar. „Þetta er bara sami pakkinn. Það að strákar séu skotnir í strákum og stelpur skotnar í stelpum er ekkert merkilegra en þegar um gagnkynhneigð skot er að ræða. Hommar og lesbíur eru alls staðar. Við erum sjómenn, bankastarfsmenn, barnapíur og geimfarar. Það er yndislegt að vera hommi á íslandi. Ég hef aldrei lent í því að vera rekinn úr vinnu, leiguhúsnæði, verið vísað út af skemmtistað eða orðið fýrir líkamsárás á götum úti. Mér hefur aldrei ver- ið mismunað einvörðungu vegna kyn- hneigðar minn- ar. En ég þekki fólk sem hefur lent í þessu öllu og man þetta allt. Við sem yngri erum stöndum í ævinlegri þakk- arskuld við þessa frumkvöðla í réttindabaráttu samkyn- hneigðra. Hún var enginn dans á rósum. Sumir þessara frum- kvöðla létu lífið fyrir málstaðinn. Aðrir misstu geðheilsuna. Droparnir hola steininn Tímamir hafa breyst. Á síð- ustu fimmtán ámm hefur ný kynslóð þingmanna birst á Al- þingi. Fólk sem hefur til að bera víðsýni sem var óþekkt fyrir tveimur áratugum. Þessi stuðn- ingur frá ráðamönnum þjóðar- innar er ómetanlegur og ég vil bara þakka persónulega öllum íslendingum sem hafa lagt sitt af mörkum til að þetta tílfinninga- lega frelsi samkynhneigðra verði að veruleika en ekki orðin tóm. Ég verð líka að þakka fjölskyld- unni minni, pabba og mömmu, öllum systkinum mínum, skóla- félögunum, öllum vinnuveitend- unum og vinum mínum, sem á hverjum einasta degi sýna það í verki að þeim þykir vænt um mig. Það eru droparnir sem hola steininn. Ég var kannski vatns- gusa síns tíma, fólk spurði mig og ég svaraði eftir bestu getu. Fordómar lær- ast Þegar ég var lítill strákur fór ég til ítah'u með mömmu og pabba. Þar gekk ég fram á nýja siði, venjur og gildi. Ég komst að því að ég er ís- lendingur. Svo varð ég kynþroska og uppgötvaði ég að ég er hommi. Ég held að við vitum öll í hvaða átt hjarta okkar slær. En sum okkar kjósa að hlusta ekki á það, kjósa að vera í skápnum. Kannski af ótta við fordóma þeirra sem standa þeim nærri. Þegar uppi er staðið reynast skápakeisin þjást af fordómum í eigin garð. Fólk hefur nefnilega almennt tilhneigingu til að geðj- ast að einstaklingum sem líkjast því sjálfu. Fordómar geta orðið til vegna þess að fólk reiknar með að þeir sem hafa aðra trú, menningu eða kynhneigð hafi allt önnur viðhorf og gildismat en það sjálft. Fordómar lærast. Ég þekkti einu sinni góða, aldraða konu, sem studdi við bakið á mér þegar mestu lætin voru í kringum mig. Hún sagði orðrétt: Mikið óskaplega væri nú huggulegt að búa í heimi þar sem það skiptir engu máli hverj- um maður er skotinn í.“ ?áll Óskar Hjálmtýsson er einn af lamteins sjc*r‘JJJu hann^a^ð kynþros^.^H^nj^hefiir a.drei farið í felur með það og finnst það yndislegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.