Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 22

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 22
22 T Æ K N I „Á síðasta ári tókum við mark- visst þátt í sýningum erlendis og jafnframt var stofnað markaðsfyr- irtæki í Noregi. Um þessar mundir erum við að setja af stað markvissar auglýsinga- og kynn- ingarherferðir til þess að kynna vörumerki okkar. Fyrirtækið er nú komið í þá stærð að það hefur fjárhagslega burði til þess að leggja út í slíkar kynningarher- ferðir. Á þessu ári munum við taka þátt í sjávarútvegssýningum í Boston, Brussel, Þrándheimi og í haust hér á Íslandi. Á þessum sýningum verðum við með eigin bása, en síðan erum við með full- trúa á öðrum sýningum þar sem samstarfsfyrirtæki okkar eru með bása. Ég nefni í því sambandi Chile, Glasgow og Singapore. Við finnum það að þátttaka í slíkum sýningum er mikilvæg, en ég ít- reka það að fyrirtæki verða að hafa náð ákveðinni lágmarksstærð til þess að hafa burði í að taka þátt í sýningunum.“ Áhugaverður markaður í Noregi „Við horfum mjög mikið til markaðarins í Noregi, enda er þar mikil og þróuð fiskvinnsla og Norðmenn leggja umtalsverða fjármuni til uppbyggingar og ný- sköpunar. Sumar af framleiðslu- vörum okkar markaðssetjum við og seljum út um allan heim, en aðrar einskorðast við ákveðin markaðssvæði. Í Noregi höfum við starfsmenn á okkar snærum og auk þess erum við í samstarfi við þarlend fyrirtæki sem hafa að- stoðað okkur við uppsetningu á tækjum og vélbúnaði. Við mið- um alltaf við að nokkrir af þeim starfsmönnum sem koma að upp- setningu okkar tækjabúnaðar séu frá viðkomandi kaupendum þannig að þeir læri strax á búnað- inn.“ Mörg járn í eldinum Um þessar mundir er nóg að gera hjá Skaganum. Sigurður Guðni nefnir að unnið sé að því að smíða karakerfi fyrir þýskt fyrirtæki, hausaþurrkunarkerfi fyrir fyrir- tæki í Færeyjum, sem Laugafisk- ur og Fiskmiðlun Norðurlands eigi hlut í, og síðan sé verið að ljúka við að smíða frysti fyrir fyr- irtæki í Chile. „Einnig erum við með krapakerfi í smíðum,“ segir Sigurður Guðni. „Síðan má ekki gleyma því að við erum að byrja á tveimur vinnslukerfum um borð í tvö af skipum Samherja, annars vegar Þorstein EA og hins vegar gömlu Guðbjörgina, sem nú er í lengingu í Lettlandi. „Það er með öðrum orðum nóg að gera nú um stundir og Sigurður Guðni orðar það svo að horfurnar séu mjög góðar á næstunni. 65% framleiðslunnar út fyrir landssteinana Á þessu ári má reikna með að um 65% af framleiðsluvörum Skag- ans séu fyrir erlendan markað á móti 35% hér heima. „Á síðasta ári vorum við með hlutfallslega meira hér á heimamarkaði sem kom m.a. til af því að við sáum um að smíða nýtt vinnslukerfi fyrir Ísfélagið í Vestmannaeyjum, frá móttöku og í frystigeymslu, sem var mjög stórt verkefni. Það hefur verið greinileg aukning í vinnslu sem tengist uppsjávar- veiðum og við höfum fengið stór verkefni í tengslum við hana. Til viðbótar við Ísfélagið get ég nefnt vinnslulínur um borð í bæði Vil- helm Þorsteinsson og Guðrúnu Gísladóttur.“ Íslendingar framsæknir Vöxtur Skagans hefur verið eftir- Skaginn hf. á Akranesi: Þurfum ekki að hafa neina minnimáttarkennd - segir Sigurður Guðni Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skaginn hf. á Akranesi hefur náð eftirtektarverðum árangri hér innan- lands og erlendis í sölu á tæknibúnaði í sjávarútvegi. Sigurður Guðni Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skagans, er ánægður með hvernig mark- aðssóknin hafi gengið til þessa og hann segir frekari kynningarherferðir erlendis í farvatninu. „Okkur líst bara vel á þetta ár. Það byrjar vel og mér sýnist að við höfum stór og góð verkefni fram eft- ir ári,“ segir Sigurður Guðni Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skagans hf.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.