Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 Fréttir DV Áliðjugreinir á íslandi Þegar álver spretta upp eins og fíflar á sumrin er eins gott að fara að útskrifa sérhæft fólk til að starfa í þeim. Þannig útskrifuðust ellefu nemendur með titil- inn áliðjugreinir en það er í fyrsta skipti á íslandi sem nemendur eru útskrifaðir úr þessu nýja námi. Voru þetta nemendur Stóriðjuskólans en útskrift fór fram nú á dögunum í Súlnasal Hótel Sögu. Það var enginn annar en forseti okkar Islendinga, Ólaíúr Ragnar Grímsson, sem var heiðursgestur á samkomunni. Grundfirðing- arsigruðu Yngri kynslóðin í Grund- arfirði tók þátt í Orkuátaki Latabæjar sem stóð yfir nú í febrúar og náðu Grundfirð- ingar flestum stigum þeirra sveitarfélaga sem tóku þátt. Alls fengu Grundfirðingar 123.142 stig. Latibær færði Gmndfirðingum af því til- efni sérstakar hamingjuósk- ir. fþróttaálfurinn og Solla stirða hafa að sögn heima- manna mikil áhrif á bömin og em þeim góðar fyrir- myndir. Er friðarsúla Yoko góð hugmynd? Mörður Árnason, þingmaður. „Mér hefur verið hlýtt til Yoko og friðarboðskapar þeirra hjóna frá þvl I gamla daga. Við eigum að taka þessari hugmynd fagnandi og ég tel að súlan geti sómt sér vel í Viöey. Yoko velur Island þar sem við erum friðelskandi og umhverfísvæn þjóð. En því fylgir einnig nokkur ábyrgð að hafa orðið fyrir valinu." Hann segir / Hún segir „Ég hefmiklar efasemdir um þessa friðarsúlu. Mér hefur alltaffundist Yoko fremur til- gerðarleg listakona eftirað ég sá sýningu á verkum hennará Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum. Ég efast um að það verði mikil prýði afþessari súlu úti í Viðey. Við eigum samt að gefa henni tækifæri en ég ótt- astað hún klúðri því." Kolbrún Bergþórsdóttir, rithöfundur. Tveir fyrrverandi framkvæmdastjórar hjá SÁÁ gagnrýna Þórarin Tyrfingsson, yfir- lækni á Vogi, harkalega og krefjast afsagnar hans að óbreyttu. Gunnar Kvaran, sem sagði upp um áramót, segir Þórarin einræðisherra af verstu sort og arftaki hans, Ragnar Sær Ragnarsson, var aðeins tvo mánuði í starfi áður en hann hrakt- ist úr húsi. Hart sótt að Þórarni Tvrfingssyni á Vogi Þórarinn Tyrfíngsson, yfirlæknir á Vogi, á undir högg að sækja. Tveir fyrrverandi framkvæmdastjórar hjá SÁÁ neita að sitja leng- ur þegjandi hjá og krefjast þess í raun að Þórarinn hverfi af vett- vangi leiðrétti hann ekki stjórnunarstíl sinn og fari að almenn- um og viðurkenndum samskiptareglum. í reykmettuðum bak- herbergjum skipuleggja fjölmargir SÁÁ-menn hallarbyltingu á Vogi. Þórarni skal velt úr sessi. „Ég er hundfúll," segir Ragnar Sær Ragnarsson, sem ráðinn var framkvæmdastjóri útbreiðslu- deildar SÁÁ fyrir skemmstu eftir að Gunnar Kvaran hafði sagt upp því starfi í illu eftir harða rimmu við Þórarinn Tyrfmgsson. Stutt í starfi „Ég var ekki nema tvo mánuði í starfi þvf ég fann fljótt að það þurfti ekki framkvæmdastjóra á Vogi. Þórarinn er þar allt í öllu, frá- bær læknir, formaður stjórnar og um leið framkvæmdastjóri. Þarna þorir enginn að gera neitt nema bera það fyrst undir Þórarin," segir Ragnar Sær sem var sveitarstjóri í Bláskógabyggð áður en hann réðst til starfa hjá SÁÁ. „Þórarinn rekur Vog eins og um einkahlutafélag hans sjálfs væri að ræða og í raun þurfti hann aldrei framkvæmdastjóra heldur frekar læknaritara," segir Ragnar Sær. Einræðisherra í svipaðan streng en þó harðari tekur Gunnar Kvaran, sem „Þórarínn er í raun búinn að vera í með- ferð 127 ár og ber þess merki." gegndi framkvæmdastjórastarfinu á undan Ragnari Sæ. Gunnar hafði starfað með Þórarni hjá SÁÁ um áratugaskeið og voru þeir góðir vinir þar til upp úr sauð. Gunnar liggur ekki á skoðun sinni: „Ástandið þarna er hreint út sagt hörmulegt. Menn eru háls- höggnir og reknir standi þeir ekki og sitji eins og Þórarinn vill," segir Gunnar Kvaran og líkir Þórarni við einræðisherra af verstu sort: Alltaf í meðferð „Vandi Þórarins er að hann hefur aldrei þurft að horfast í augu við þann veruleika sem er utan meðferðarstofnunarinnar og kann ekki að fóta sig þar. Þórarinn er í raun búinn að var í meðferð í 27 ár og ber þess merki," seg- ir Gunn ar Kvar- an og bæt- ir því við að Þórar inn þurfi að taka sig saman í andlitinu ætli hann að halda áfram starfi sínu á 25úfa HTl-iOO! Ragnar Sær Ragnarsson Ieldhúsinu heima eftiraðeins tvo mánuði Istarfi. Vogi: „Verst er þó að hann er bæði kænn og slóttugur," segir Gunnar. Þórarinn sallarólegur Þórarinn Tyrfingsson vísar öllum ásökun- um á bug og lætur ekki slá sig út af laginu: „Hér er bú- inn að vera góður friður síðan 1988 og allt gengið vel. Satt er að fram- kvæmdastjóri hér' hætti á reynslu- tíma og reyndar vegna þess að ég var ósáttur við störf hans," segir Þórar- inn Tyrfingsson. „Ég starfa hér og ■ Gunnar Kvaran Áratugavinátta hans og Þórarins fór í vaskinn og endaöi I uppsögn. stjórna eftir lögum félagsins sem heldur aðalfund einu sinni á ári. Ég mæti rólegur á næsta aðalfund í vor ásamt hundrað manns sem hér starfa í friði og spekt," segir Þórarinn Tyrf- ingsson. Þorarinn Tyrfings- son Stendursem klett- urá Vogiog vlsaröll- um ásökunum á bug. Beðið eftir niðurstöðum rannsókna í máli Jóns Þórs Ólafssonar og Brendu Salinas Lögreglan í El Salvador komin á sporið „Við erum með tvö til þrjú morðmál sem svipar mjög til morðsins á Jóni, og Brendu. Við telj- um að um sé að ræða glæpahóp sem heldur til í nágrenni La Zona Rosa þar sem þau voru brottnumin af morðingjum sínum," segir Salvador Martinez, upplýsingafull- trúi rannsóknarlögreglunnar í San Salvador, aðspurður um gang rann- sóknar málsins. „Við erum að bíða eftir niður- stöðum frá rannsóknarstofu af sýn- um sem tekin voru úr bíl Jóns Þórs, íbúð hans og frá morðstaðnum til að handtaka þá sem við höfum grunaða um morðið," bætir hann við. Martinez segir að rannsókn málsins miði vel og að lögreglan hafi ákveðna einstaklinga sterklega grunaða um morðin á Jóni Þór Úlafssyni verkfræðingi sem starfaði fyrir Enex og kærustu hans Brendu Salinas Jovel. Jón Þór og Brenda voru skotin til bana fyrir utan höf- uðborg landsins San Salvador þann 12. febrúar. Hann segir að hugsanlegar ástæður fyrir því að Jón Þór og Brenda voru brottnumin og síðar myrt gætu verið að ætlunin hafi verið að ræna persónulegum eigum þeirra eða bíl Jóns. Enn er verið að rannsaka gögn sem rannsóknarlögreglan tók úr íbúð Jóns Þórs til að ganga úr skugga um hvort morðingjarnir hafi fylgt Jóni heim til að komast yfir persónuleg verðmæti hans. Martinez segir að rannsóknarlög- reglan sé vongóð um að eitthvað muni skýrast í næstu viku varðandi handtökur á meintum morðingjum Jóns Þórs og Brendu. Jón Þór Ólafsson og Brenda Salinas Jovei Ein afslðustu myndunum sem teknar voru af þeim á lífi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.