Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Blaðsíða 6
6 LAUCARDAGUR 18. MARS2006 Fréttir DV Aldrei fleiri hús rifin Aldrei hafa fleiri bygging- ar verið jafnaðar við jörðu í Reykjavík en árið 2005 eða tæplega 50 talsins. Niðurrif bygginga í borginni hefur aukist jafnt og þétt frá 2001. Byggingaúrgangur og uppgröftur er meiri en allt almennt sorp í Reykjavík. Þetta kem- ur fram í erindi sem Erpur Snær Hansen hjá Mengunarvömum Reykjavíkur flytur á ráð- stefnunni Verk og vit í dag. Byggingaúrgangur er tals- verður, meðaltalið er 600 kg á hvem Reykvíking saman- borið við 480 kg í Evrópu- sambandinu. Hér á landi er 97% úrgangsins fargað án gjaldtöku, mest á Hólms- heiði og í Sundahöfn, en í Evrópu er tekið gjald og 30% er endurnýtt. Kraftaverka- lœkningar? Ágúst Bogason, útvarps- og tónlistarmaður. „Hluti afmér segir að effólk er nógu vitlaust til að láta plata sig út I svona þá á það jafnvel bara skilið að láta hafa afsér fé. En á móti kemur að oft er veríð að blekkja veikt, sjúkt og stundum örvæntingarfullt fólk, og það er með öllu sið- laust." Hann segir / Hún segir „Ég hefaldrei leitaö hjálpar hjá sllkum lækni en þetta er mjög áhugavert. Það er gam- an að spá í svona lagað og stundum er erfitt að svara hvað hafi gerst þegarþetta virkar. Svo eru náttúrlega alltaftilþeirsem eru óprúttnir og vilja féfletta fólk. En stund- um er það trúin sem flytur fjöll en ekki læknirinn." Helga Möller tónlistarkona. Tíu nemendur úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla voru handteknir á fimmtudags- kvöldið fyrir að vera undir lögaldri á veitingastaðnum Red Chili. Samkvæmt nema sem varð vitni að atburðarásinni komu níu lögreglubílar á staðinn, klæddu sig í óeirðabúninga og handtóku ungmennin. Helgi Guðmundsson einn eigenda Red Chili-staðarins segir að enginn undir lögaldri hafi verið afgreiddur um áfengi. Óeirðir við Austurvöll Þessi ungmenni voru handtekin og flutt á lögreglustöð þar sem foreldrar þeirra sóttu þau. Nemendaáeipðip í Mrvelli Tíu ólögráða ungmenni úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla voru handteknir á fímmtudagskvöld um miðnætti eftir að hafa setið að drykkju á veitingarstaðnum Red Chili sem er við Austurvöll í miðbæ Reykjavíkur. Haldið var óhefðbundið bjórkvöld fyrir nemendur F.Á. en ekki má halda slíkar samkomur hjá skólunum vegna aldurs nemendanna. Red Chili Óeirðirnar urðu fyrir utan staðinn. „Lögreglan kom og kiæddi sig í óeirðarbúningana," segir nemandi sem varð vitni að átökunum. Nem- andinn segir að krakkarnir sem voru á aldrinum sextán ára og upp í tvítugt hafi setið að drykkju á Red Chili -staðnum þegar Afengiseftir- litið kom á staðinn og byrjaði að spyrja ungmennin um persónu- skilríki. Flestir voru undir tvítugt að sögn nemans. Níu lögreglubílar Lögreglubíll kom á staðinn í kjölfarið til þess að aðstoða eftirlit- ið við að koma ungmennunum út en það virðist hafa hleypt illu blóði í nemana. „Einn strákur tók húfuna af lög- reglumanni og þá fór allt í steik," segir nemandinn og bætir við að lögreglan hafi þá kallað eftir liðs- auka. Að sögn nemandans voru sjö „Einn strdkur tók húf- una afiögreglumanni og þá fór allt i steik." venjulegir lögreglubflar og tveir stærri lögreglubflar kallaðir til til þess að stöðva óeirðirnar. Tíu handteknir Fyrir utan Red Chili-staðinn skapaðist að sögn nemans ófremd- arástand en ungmennin voru með læti við lögregluna sem varð til þess ■ að hún handtók tíu ung- menni. „Lögreglan handtók fyrst einn strák sem varð til þess að krakk- arnir urðu illir,“ segir neminn en tíu ungmenni voru handtekin og færð upp á lögreglustöð áður en kvöldinu lauk. Sextíu manns inni „Það voru bara nokkrir krakkar sem komu til að borða og svo fyllt- ist staðurinn," segir Helgi Guð- mundsson sem rekur veitingastað- inn Red Chili. Hann segir að síðar um kvöldið hafi bæst í hópinn og að lokum hafi um sextíu krakkar verið inni á staðnum. Hann segir að enginn undir aldri hafi fengið afgreitt vín. Helgi kannaðist ekki við að þetta hafi verið skipulögð uppákoma hjá krökkunum. Foreldrar pirraðir Varðstjóri lögreglunnar í Reykjavík segir að þeir hafi fært um tíu ungmenni upp á lögreglustöð og þaðan hafi svo verið hringt í for- eldra þeirra. Hann segir að foreldr- ar hafi komið pirruð langt fram eft- ir nótt að sækja börnin sín sem ekki höfðu náð lögaldri. Varðstjórinn segir að Red Chili- staðurinn megi búast við því að fá viðvörun frá áfengiseftirlitinu. Ekki náðist í skólameistara Fjöl- brautaskólans við Ármúla. valur@dv.is llam, Rammslcin, Ninc Incli Nails ng marKir flciri vacru ckki til cf Laibach hcfóu ckki rutt brautiua." óitarr Propþt, IIAM, í>r Spock Enn magnast átökin á Álftanesi Sakar bæjarstjórann um tóman skáldskap Kosningabaráttan er komin á fullt skrið á Álfta- nesi og skjóta fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Álftaneshreyfingarinnar nú föstum skotum hvorir á aðra. Vegna orða bæj- arstjórans Guðmundar Gunnarssonar í DV í gær segir Kristján Sveinbjörnsson hjá Á- listanum að bæjarstjórinn bregðist við grein um sjálftöku D-listans í sveitarsjóði til að kosta kosningaá- róður sinn með sérkennilegu svari í blaðinu. „Svarið hans er „Nöfn heið- arlegs fólks handrukkuð á lista“ og heldur hann því fram að það sé ósið- legt að safna undirskriftum," segír Kristján. „Með þessu ræðst hann á fjölmarga sjálfstæðismenn sem tóku þátt í starfi Betri byggðar með söfn- un undirskrifta." Kristján segir ennfrem- ur að bæjarstjórinn sé með dylgjur um að fulltrúar Á- listans hafi ekki verið heið- arlegir í vinnu sinni og ^ 1 rökstyðji það með tóm- ^gj um sícáldskap. „Við, sem þekkjum bæjar-1 stjórann vitum að sann- leikurinn flækist ekki alltaf fyrir honum. Aftur og aftur kýs hann að hagræða sann- leikanum sér í hag en mörg dæmi má nefna," segir Kristján. „Til dæmis svaraði hann blaði einu með því að fullyrða að það væri rangt að sveitarfélagið hafi úthlutað lóðum áratugi. Sveitarfélagið hafi úthlutað lóðum í Hólma- túni, Fálkastíg, Vesturtúni og Birki- holti. Margir vita að þetta var tómur skáldskapur enda var haft eftir hon- um í blaðagrein skömmu .síðar að nú ætíaði hann að úthluta 80 lóð- um á miðsvæðinu enda hefði sveitarfélagið ekki úthlutað lóð- um í áratugi." Kristján segir að D-listinn ætíi sér að nota öll meðul siðleg eða siðlaus, sönn eða login til að vinna kosningarnarívor. „Það skal viðurkennast að það er erfitt íyrir heið- arlegt fólk Kristján Sveinbjörns- son Segir að D-listinn ætli séraðnota öll meðul siðleg eða siðlaus,sönn eða iogin til að vinna kosningarnar i vor. að svara slíku,“ segir Kristján.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.