Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 24. MARS 200613
DV Fréttir
De Niro
kemurekki
Þarsemekki fæstleyfi
til að flytja dráttarhesta til
landsins verður
ekkert af því að
stórleikarinn
Robert De Niro
heimsæki Island í
tengslum við gerð
myndarinnar
Stardust. Að því er
segir á horn.is
stóð til taka
meirihluta myndarinnar
upp hér en nú verða aðeins
nokkrar vetrarsenur teknar
upp á íslandi. Tökur hefjast
í Austur-Skaftafellssýslu um
helgina. Mótleikkona De
Niros í Stardust er Michelle
Pfeiffer.
Geisladiska-
spilara stolið
Geislaspilara og útvarpi
var stolið úr bíl í Grindavík í
fyrradag. Þjófurinn sem
braust inn í bílinn skemmdi
mælaborð bifreiðarinnar
töluvert þegar hann
þvingaði geislaspilarann úr
mælaborðinu. Lögreglan í
Keflavík er ekki búin að
finna innbrotsþjófinn því
engir sjónarvottar voru að
verknaðinum. Algengt er að
fólk læsi ekki bílunum
sínum og auðveldar það
þjófum að stela úr þeim.
Ólæti á Cafe
Mörk
Tveir mikið
drukknir menn
voru ineð ólæti
fyrir utan
veitingastaðinn
Cafe Mörk á
Akranesi. Þegar lögreglan
kom á staðinn voru
mennirnir með mikil læti
og illa gekk að handtaka
þann sem verst lét því hann
lamdi til lögreglumanna og
sparkaði frá sér. Að lokum
var hann færður í fanga-
geymslu Lögreglunnar á
Akranesi. Vinur hans sem
einnig var mikið drukkinn
freistaði þess að frelsa vin
sinn úr fangelsinu og barði
og lamdi lögreglustöðina að
utan. Hann endaði á því að
gista ásamt vini sínum í
fangaklefa á lögreglustöð-
inni á Akranesi.
Á Litla-Hrauni eru sex fangar frá Litháen og af þeim eru þrír í gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknar á einu stærsta fíkniefnamáli íslandssögunnar. Litháíska mafían hefur und-
anfarin ár verið að færa út amfetamínmarkað sinn til Norðurlandanna og íslands þar
með. Litháarnir óttast ekki afleiðingar þess að nást með fíkniefnin á leið inn í landið því
vistin á Litla-Hrauni virðist reynast þeim léttbær.
Rúnar Ben Maitsland trúnaðar-
maður fanga Segirað enginn kvarti
og allt á Litla-Hrauni sé til fyrirmyndar.
Litla-Hraun Litháarnirsem þar
dvelja segja fangavistina jafnast
á við dvöl I sumarbúðum.
Fangavist á íslandi er ekki eins slæm og víða annars staðar. Á Litla-
Hrauni hafa fangarnir sérherbergi og flestir geta verið með sjón-
varp og tölvu inni hjá sér. Sameiginleg aðstaða fanga er fjölbreytt
og geta þeir stundað fjölda tómstunda í frítíma sínum. Rúnar Ben
Maitsland, fangi á Lida-Hrauni, segir að Litháarnir tali um að vist-
in á Litla-Hrauni sé eins og að vera í sumarbúðum.
„Það er paradís fyrir Litháana að
komast í frítt fæði og húsnæði og þeir
segja að þetta sé eins og að vera í
sumarbúðum," segir Rúnar Maits-
land, fangi á Litía-Hrauni, sem situr
af sér dóm fyrir fíkniefnabrot. Rúnar
er trúnaðarmaður fanga og hann
segir þá almennt mjög ánægða með
vistina á Litía-Hrauni. „Það er eng-
inn að kvarta yfir einu eða neinu,
þetta er alit til fyrirmyndar," segir
Rúnar.
Útlendingar afplána bara
helming dómsins
Rúnar segir að samskipti íslensku
fanganna og þeirra' útlensku séu
mjög góð. „Utlendingarnir þurfa
bara að sitja af sér helming tímans
og eru svo lausir. Það gerist sjálfkrafa
en við íslendingarnir þurfum að
sækja um að fá styttingu á tímanum
okkar. Ég þarf að sitja tvo þriðja
tímans sem ég var dæmdur til að
sitja," segir Rúnar. Hann segir að Lit-
háarnir sem koma til landsins með
eiturlyf séu ekki smeykir við að vera
teknir því þeir viti að vistin á Litía-
Hrauni sé góð og auk þess sitja þeir
bara helminginn af dæmdri fangels-
isvist.
Getur gert hvað sem er
„Það er nóg að gera fyrir þann
sem sækist eftir því. Ég vinn í núm-
eradeildinni við að búa til bílnúmer
og svo lyfti ég alla daga. Annan hvern
föstudag eru skákmót og skákkennsla
og svo geta menn föndrað, málað
eða dútíað við tölvuviðgerðir," segir
Rúnar. Hann segir að það sé verið að
koma upp Digital Island þannig að
þeir geti horft á fjölda erlendra
stöðva. „Svo eru allir með bíó inni
hjá sér því flestir eru með DVD-spil-
ara eða tölvu og geta horft á það sem
þeir vilja."
Hreindýrakjöt í matinn
Rúnar segir að það sé verslun á
Litla-Hrauni sem heitir'Rimlakjör
og þar fæst allt mögulegt og ef það
er ekki til er hægt að panta það sem
hver og einn vill. „Það er hægt að
kaupa dádýrakjöt, nautalundir og
hreindýrakjöt, eða bara hvað sem
er og svo getum við eldað þetta í
sameiginlegri eldhúsaðstöðu sem
við höfum hérna. Við fáum bara
eina heita máltíð á dag og þurfum
að sjá um okkar mat á kvöldin því
það er bara brauð og álegg í boði
og eftir langan tíma fær maður leið
á því," segir Rúnar.
Fær leyfi einu sinni í mánuði
„Það er hægt að fá heimsóknir
alla daga nema mánudaga og
þriðjudaga og margir fá kærust-
urnar sínar í heimsókn. Ég nenni
ekki að eiga kærustu til að vera
með hana á eyranu í símanum alla
daga. Ég fer til Reykjavíkur í leyfi
einu sinni í mánuði og hitti vini
mína þar," segir Rúnar. Hann segir
að hann losni af Litía-Hrauni í
febrúar 2009. „Ég tek minn tíma út
sem er tveir þriðju af tímanum
sem ég var dæmdur til að sitja."
jakobina@dv.is
Litháinn Arvydas Madulskis Er |
/ gæsluvarðhaldi vegna aðildar að
innflutningi á amfetamini.
Það sem fangar
fá á Litla-Hrauni:
v Heimsóknirfimm daga
vikunnar frá kl. 13 til 16
Tímakaup fyrir unna vinnu,
290 krónur á tímann
v' Dagpeninga fyrir að vera í námi
1.100 krónurádag
v Dagpeninga fyrir þá sem geta
ekki unnið, 460 krónur á dag
* Ökeypis nám og námsbækur
v' Ókeypis læknisþjónustu
* Ókeypis tíma hjá geðlækni
v Ókeypis sálfræðiþjónustu
* 75% af tannlæknaþjónustu
greidda
w' 9.000 króna gieraugnastyrk
v Ókeypis líkamsrækt
v' Ókeypis mat
w Ókeypis hreinsun á þvotti
v Ókeypis leigu á bókum
MESTA URVAL
YFIRBURÐIR
.....
LANDSiNS
Arnar Kristín
AF GLÆSILEGUM HJÓLHÝSUM. HAFÐU SAMBAND VIÐ RÁÐGJAFA OKKAR NÚNAl
V * E + R • K
www.vikurverk.is
TANGARHOFÐA 1 SIMI 55 7 7 720