Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 16
1 6 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 Sport DV ÁRATUGUR ALANS SHEAR- ER HJÁ NEWCASTLE Fyrsti leikur Fjalarsgegn Þrótti Markvörðurinn Fjalar Þor- geirsson gekk fyrir skömmu til liðs við Fylki eftir að hafa spilað með Þrótti lengst af á sínum ferli. Hans fyrsti leikur með sínu nýju félagi er í deildarbikarkeppninni kvöld gegn gömlu félög- unum sínum í Þrótti. Skondin tilviljun en Fjaiar sjálfur segist lítið hugsa um slíkt. „Það skiptir í sjálfu sér lidu máli. Þetta verður bara eins og hvér ann- ar leikur." Fylkir er sem stendur í 2. sæti riðilsins en Þróttarar hafa tapað öllum sínum feikjum til þessa. Keflvískar kengúrur Tveir leikmenn bætast fljótiega við leikmanna- hóp Lands- bankadeildar- liðs Keflavíkur en það eru þeir Geoff Miles frá Bandaríkjunum og Buddy Farah sem á ættir að rekja til Líbanon. Háskólalið Miles í Bandaríkjunum kenn- ir sig við kengúrur og Farah hefur stærstan hfuta sinnar ævi búið í Ástralíu, eftir því sem kemur fram á vef Kefl- víkurliðsins í gær. Alan Shearer hefur skorað fleiri mörk en nokkur annar leikmað- ur ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafí, alls 256 mörk í 436 leikj- um, 71 marki fleira en Andy Cole sem kemst honum næstur. Hann er einn af virtustu leikmönnum deildarinnar frá upphafi og hefur náð nánast öllum einstaklingsafrekum sem mann getur dreymt um. En þegar kemur að því að vinna titla með sínum lið- um er uppskeran allt önnur. deildinni 1997 og í ensku bikar- keppninni bæði 1998 og 1999. Gaf allt sitt fyrir Newcastle Glenn Roeder, stjóri Newcastle, hvetur Alan Shearer að taka það ekki nærri sér að vinna ekki titil með æskufélagi sínu. „Ég er viss um að hann hefur óskað þess að vinna nokkra titia og ég er viss um að hann gaf allt sitt til að ná þeim. Hann er frá- bær persóna og að sama skapi frábær knattspyrnumaður. Alan nær oftast nær markmiðum sínum og hann ætl- aði sér inn í undanúrslitin en það var dýrt að fá á sig mark gegn ensku meisturunum strax í upphafi leiks. Alan mun ekki biðja um neina samúð enda ekki þörf á henni þegar menn líta yfir hans frábæra feril," segir Roeder, sem tók tímabundið við stjórastöðunni eftir að Graeme Sou- ness var rekinn. Á eftir að vinna titla Roeder hefur líka trú á að Shearer standi sig sem stjóri taki hann það að sér í framtíðinni en mikið hefur verið rætt um að hann taki við knatt- spymustjórastöðu Newcastie þegar hann leggur knattspymuskóna á hill- una. „Ég veit ekki hvort það tekur hann eitt eða sjö ár en Alan Shearer mun örugglega ná að vinna enska bikarinn. Af hveiju ekki? Þegar hann tekur við stjórastöðu þá er ég viss um að það verður hjá Newcastle sem hef- ur alla burði til að vinna titla þótt sá síðasti hafi komið áður en ég fædd- ist,“ bætti Roeder við í léttum dúr. Unnu síðast í svarthvítu Enskir fjölmiðlar hafa mikið velt fyrir sér að þegar Newcastie vann titil síðast (enska bikarkeppnin 1955) þá varð allt enn í svarthvítu líkt og bún- ingar liðsins. Til dæmis var haft eftir einum starfsmanni félagsins eftir tap fyrir Wigan í enska deildarbikamum í vetur, „ansans, enn enginn titill í lit“. Alan Shearer varð enskur meist- ari með Blackburn 1995 en það verður eini titilinn sem hann hefur unnið með liði á sínu ferli. Hann hefur ekki náð að vinna einn titil með Newcastle síðan hann kom til liðsins fyrir einum áratug en það var frægt þegar hann valdi Newcastle, æskufélag sitt, fram yfir Manchester United, sem sóttist einnig eftir kröftum hans. Á þeim tíu árum sem hafa liðið hefur Manchester United unnið níu titla en Newcastle United engan. Shear- ar og félagar hans hafa þrisvar lent í öðru sæti á þessum áratug, í NJOTTU LIFSINS með HflLBRICÐUM LIFSSTIL Chelsea sló Newcastle út úr ensku bikarkeppninni á miðviku- dagskvöldið og þar með var ljóst að draumur Alans Shearer um að vinna titil meö æskufélagi sínu væri að engu orðinn því mesti markakóngui' ensku úrvalsdeildarinnar leggur skóna á hilluna í vor. Tækifaerið forgörðum j Alan Shearer gengur hér af 9 velli eftir aö Chelseahafði I s/eg/ð Newcastle út úr U ensku bikarkeppninni. 45 dagar eftir á ferlinum Tap Newcastie þýðir að það verð- ur ekki að miklu að keppa fyrir Shear- er síðustu 45 dagana áður en að hann leggur skóna á hilluna. Newcastie er sem stendur í 12. sæti ensku úrvals- deildarinnar og er í algjöru miðju- hnoði, á ekki möguleika á Evrópusæti en er ekki í neinni fallhættu heldur. Síðasti leikurinn verður gegn verð- andi Englandsmeistumm Chelsea á St. James 7. maí næstkomandi. ooj@dv.is Tímabil leikir/mörk Sæti í deild 1996-97 31/25 (2. sæti) 1997-98 17/2 (13. sæti) 1998-99 30/ 14 mörk 03. sæti) 1999-2000 37/ 23 mörk (ll.sæti) 2000-2001 19/5 mörk (11.sæti) 2001-2002 37 / 23 mörk (4. sæti) 2002-2003 35/17 mörk (3. sæti) 2003-2004 37/ 22 mörk (5. sæti) 2004-2005 26/7 mörk (14. sæti) 2005-2006 27/ 6 mörk 12. sæti*) *Tímabilið ekki búið W'. Eini titiilinn Alan Shearer vann einn titil á ferlinum en hann varð enskur meistari með Blackburn 1995. EKKIMISSA m AF ÞES s&n 19.00 Bein útsending á Sýn frá Players champ- ionship-mótinu sem er liður í bandarísku PGA mótaröðinni í golfi. Annar keppnisdagur. 19.15 Keflavík- Grinda- vík í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna. 19.15 Fylkir - Stjarnan rC/C^og FH - Þór í DHL-deild karla. 19.30 Þáttur um Meist- aradeildina í Evrópu á Sýn. 20.00 Upphitun fyrir mmmrrm leiki helgarinnar á LmiiirJ enska boltanum. 00.00 NBA-deildin á Sýn. Indiana - Detroit í beinni. TITLAR MAN.UNITED SÍÐAN ALAN SHEARER VALDI NEWCASTLE Englandsmeistarar: 5 sinnum (1997,1999,2000,2001 og 2003) Enskir bikarmeistaran 2 slnnum (1999,2004) Enskir deildarbikarmeistarar: 1 sinnl (2006) Evrópumeistarar. 1 slnnl (1999)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.