Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.2005, Side 7

Freyr - 01.04.2005, Side 7
EFNISYFIRLIT ( )6-09 V' • íi V s IWM % w, 'jlr.,; . i ■ NAUTGRIPARÆKTIN 2004 Efni Búnaðarrits hefur verið fært inn í Frey. Hér eru upp- lýsingar um sölu, verðlag og afkomu í nautgriparæktinni. 4 18-19 * ífp-.1 s m j iii J ■ NÝTT FÓÐURMATSKERFI FYRIR NAUTGRIPI - NORFOR (1) Hvað felst í nýju fóðurmats- kerfi og hvaða breytinga má vænta með gildistöku þess? 14-16 ■ KYNBÓTAMAT NAUTANNA VORIÐ 2005 Eftir Jón Viðar Jónmundsson, B(, Ágúst Sigurðsson, LBHÍ og Baldur Helga Benjamíns- son BÍ. 20-22 ■ TÆKNI VIÐ JARÐVINNSLU Eftir Grétar Einarsson, Land- búnaðarháskóla íslands. Fjall- að er um markmið jarð- vinnslu, jarðvinnsluaðferðir og helsta tæknibúnað. Ágæti lesandi Sagan segir að fyrr á árum þeg- ar fáliðað var á Ríkisútvarpinu hafi fréttaöflun einn morguninn farið nokkuð í handaskolum. Axel Thorsteinsson, fréttamað- ur morgunútvarps Ríkisútvarps- ins, aflaði frétta með því að hlusta snemma morguns á fréttir BBC frá London. Eitt sinn gerðist það að hlustunarskilyrði voru slæm þannig að fréttir BBC náðust ekki. Þegar frétta- tíminn skall á dó Axel ekki ráða- laus. Þegar landsmenn settust að viðtækjum sínum voru frétt- irnar kynntar einhvern veginn svona og kveðið fast að orðun- um: Engar fréttir er að hafa frá útlöndum að þessu sinni. En okkur hefur borist eintak af Búnaðarblaðinu FREY og verður nú lesið úr þvi! Á síðasta ári fagnaði Búnað- arblaðið FREYR 100 ára afmæli sínu. í tilefni þess ákvað stjórn BÍ að endurskipuleggja útgáf- una. FREYR kemur nú út með breyttu sniði í A4 broti og í lit. Búgreinablöðin heyra sögunni til en framvegis verða efnistök blönduð. Efni Búnaðarrits er fellt inn í FREY en í hverju tölu- blaði verða ein til tvær búgrein- ar í brennidepli. Það er von okk- ar sem stöndum að útgáfunni að breytingarnar falli lesendum vel I geð. ( fyrsta blaðinu fær naut- griparæktin töluverða athygli. Áberandi eru greinar úr kyn- bótastarfinu en einnig er farið yfir sölu afurða og afkomu kúa- bænda. Meðal nýjunga má nefna markaðssíðu aftarlega í blaðinu þar sem finna má upp- lýsingar um helstu framleiðslu- tölur síðustu mánaða og miss- era. Stefnan er að auka við fast efni þar sem lesendur geta gengið að ákveðnu efni vísu í hvert sinn sem þeir setjast niður með FREY. Markmiðið er að gefa út faglegt landbúnaðar- tímarit sem er hvort tveggja ( senn til gagns og gamans. Það er von mín að FREYR nái að vaxa og dafna. Ljóst er að fjölga þarf áskrifendum en þeir eru nú rúmlega 1.300. Þótt bændum fækki í hinum hefð- bundnu búgreinum fjölgar öðr- um þeim sem stunda búskap í einhverri mynd. Landeigendur, skógræktarfólk og hestamenn sem búa í þéttbýli eru allt hópar sem FREYR á erindi við. Það er mikill áhugi á landbúnaði nú um stundir á meðal almennings og þann meðbyr þarf að nýta. Til þess að gefa út blað eins og FREY þarf öruggar tekjur. Það er því ekki síður kappsmál að gera blaðið að góðum valkosti fyrir auglýsendur. Hvort við komum FREY aftur inn í fréttatíma Ríkisútvarpsins skal ósagt látið. Ég vona hins vegar að eftir honum verði tek- ið og lesendum fjölgi jafnt og þétt. Bestu kveðjur! Tjörvi Bjarnason, ritstjóri Fylgt úr hlaði - Sigurgeir Þorgeirsson, Bændasamtökum Islands....4 Að sá korni - eftir Jónatan Hermannsson, Landbúnaðarháskóla íslands. ..10 Santana PS 10 - jeppaumfjöllun .................................13 Ég ræð yfir kettinum - viðskiptavinurinn hefur alltaf á réttu að standa! 17 Niðurstöður úr skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar árið 2004 - eftir Jón Viðar Jónmundsson, Bændasamtökum (slands............24 Skjólbelti geta aukið og tryggt uppskeru - nýtt fræðslurit á vegum Skjólskóga á Vestfjörðum og Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins........................28 Afkvæmarannsóknir á Hesti 2004 - eftir Sigurð Þór Guðmundsson, Emmu Eyþórsdóttur, Sigvalda Jónsson og Eyjólf Kristin Örnólfsson, Landbúnaðarháskóla Islands........30 Netforrit Bændasamtaka íslands - eftir Jón Baldur Lorange og Þorberg Þ. Þorbergsson............32 Áhrif væntanlegra loftslagsbreytinga á landbúnað - fyrri hluti - eftir Bjarna E. Guðleifsson, Landbúnaðarháskóla (slands.......34 Markaðssíða - verð á greiðslumarki, yfirlit um sölu ýmissa búvara og kjötmarkað.36 FREYR - Búnaðarblað - 101. árgangur - nr. 1, 2005 • Útgefandi: Bændasamtök íslands • Ritstjóri: Tjörvi Bjarnason (ábm.) • Auglýsingar: Eiríkur Helgason • Umbrot: Prentsnið - Ingvi Magnússon • Útlitshönnun: Blær Guðmundsdóttir • Aðsetur: Bændahöllinni v. Hagatorg - Póstfang: Bændahöllinni v. Hagatorg, 107 Reykjavik • Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og auglýsingar: Bændahöllinni, Reykjavík, sími: 563-0300, bréfsími: 562-3058 • Netfang FREYS: freyr@bondi.is • Netfang auglýsinga: augl@bondi.is • Prentun: Isafoldarprentsmiðja, 2005 • Upplag: 5.800 eintök • Forsíðumynd: Jarðvinnsla í Húnavatnssýslu. Ljósm. Jón Eiríksson. Freyr 04 2005 3

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.