Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 19

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 19
NAUTGRIPIR FONTUR 98027. Þetta naut hefur hæsta kynbótamat allra nautanna úr þessum stóra áraanqi oq verður notaður sem nautsfaðir árið 2005. SVEPPUR 98035. Naut sem gefur ðflugar mjólkurkýr. Verður í notkun sem nautsfaðir árið 2005. UMBI 98036. Naut sem hefur jákvæðan dóm um alla eiginleika í kynbótamatinu. Nautsfaðir árið 2005. Mögulegt er að þegar fyllri upplýsingar liggja fyrir i haust um dætur einhverra þeirra sjö nauta sem ógetið er, sem hafa fengið notkunardóm, og nauta- valið verður endurskoðað, að einhver þeirra komi til notkunar. Ástæða er að nefna það að eitt af þessum „bið"nautum, Dugur 98005, er ekki settur í almenna notkun vegna þess að grunur hefur komið fram um að hann erfi fláttu. Þetta tilvik er okkur hins vegar áminning um að þessi erfðagalli leynist enn í ís- lenska kúastofninum en eigin- leikinn er orðinn það sjaldgæf- ur að mjög fáir einstaklingar munu koma fram þó að slík naut komi í notkun. Þess vegna er nauðsynlegt að slík tilvik verði rækilega staðfest og þvt er þess vegna beint til þeirra, sem mögulega fæðast slíkir galla- gripir í framtíðinni, að láta vita af slíku vita og gera það áður en gripurinn er felldur þannig að mögulegt sé að nálgast lífsýni úr honum til öruggrar staðfest- ingar á ættfærslu. NAUTIN SEM KOMATIL FREKARl NOTKUNAR Bestan heildardóm nautanna í árganginum fær Fontur 98027 frá Böðmóðsstöðum í Laugardal. Þetta naut er sonur Almars 90019 en móðir þess, Skoruvík 241 var um árabil með lang- hæsta kynbótamat allra kúa í landinu. Þessar niðurstöður eru því ákveðin staðfesting þess að kynbótamatið er að vinna eins og því er ætlað. Dómur dætra hans er jákvæður fyrir alla eigin- leika sem eru með í heildarein- kunn. Þetta eru öflugar mjólkur- kýr með góða júgurhreysti og ágæta júgur- og spenagerð og fá góðan dóm um skap. Sveppur 98035 er frá Furu- brekku í Staðarsveit og er hann undan Stúfi 90035 en móðir hans var dóttir Almars 90019. Hann fær hærra mat fyrir mjólk- urmagn dætranna en nokkurt annað naut í hópnum, en efna- hlutföll, sérstaklega fyrir fituhlut- fall, eru mjög frábrugðin því sem gerist fyrir flest hinna nautanna þar sem mat hans er aðeins 90. Dætur hans hafa góða júgur- gerð, aðeins grófa spenagerð en gott skap. Umbi 98036 er frá Miðgörð- um í Kolbeinsstaðahreppi, und- an Almari 90019, en móðurfaðir hans er Hólmur 81018. Það sem er sérstakt fyrir þetta naut er að hann fær jákvæðan dóm um alla eiginleika sem kynbótamat er reiknað fyrir. Dætur hans er glæsilegar kýr, ágætlega mjólk- urlagnar með mjög hátt fituhlut- fall I mjólk, mat fyrir júgurhreysti er mjög gott og sömuleiðis er dómur bæði um mjaltir og skap verulega jákvæður. Um önnur naut, sem koma í almenna notkun, má benda á þessi atriði. Meitill 98008 gefur mjög fallegar, getumiklar mjólk- urkýr með góða júgur- og spena- gerð og góða dóma fyrir mjaltir og skap en veikileikinn er í mati fyrir frumutölu. Barði 98016 er honum náskyldur og gefur einn- ig mjög getumiklar og fallegar mjólkurkýr, júgur er stundum óþarflega sítt en spenagerð góð og skap afbragðsgott. Sóli 98017 gefur miklar mjólkurkýr, sem hafa sérlega efnaauðuga mjólk, júgurhreysti hjá þeim er afbragðsgóð en veikleikinn er í of miklum göllum í mjöltum. Trölli 98023 gefur kýr sem eru vart nema ( meðallagi um mjólk- urmagn en hafa mjög efnaauð- uga mjólk. Þetta eru feikilega sterkbyggðar og fallegar kýr með mjög góða júgurgerð og sérstaklega gott mat fyrir skap. Glanni 98026 gefur fremur smá- vaxnar kýr og afkastageta þeirra er í góðu meðallagi, þessar kýr hafa mjög góðan dóm um spena og afbragðsdóm um mjaltir og skap. Hræsingur 98046 gefur sterklegar mjólkurkýr sem hafa góðan dóm um mjaltir og skap en spenagerð er heldur í grófari kantinum. Þrasi 98052 gefur vart meðalkýr að stærð en fallegar, þær eru getumiklar með feiki- hátt fituhlutfall og mjög góða júgurgerð en mjaltagallar eru óþarflega miklir. Af þessari umfjöllun væntum við að lesendum sé Ijóst að í þennan hóp nauta má sækja mikla kynbótagripi með tilliti til nær allar eiginleika sem kúa- bændur leita eftir að bæta hjá sínum kúm þó að nautin hafi þar hvert og eitt sína kosti og galla. Með því að kynna sér vel þessar niðurstöður og haga notkun nautanna með hliðsjón af þeim má hins vegar vafalítið hafa af þeim mikil not í ræktunarstarf- inu. Mynd 1 - Úrvalsnýting hjá 1998 nautum ÚRVALSNÝTINGIN Þeir lesendur, sem þekkja um- fjöllun um niðurstöður af- kvæmarannsókna frá und- anförnum árum, vita að venjan hefur verið að reyna að leggja mat á ræktunarárangur hópsins með því að skoða úrvalsnýtingu með tilliti til helstu eiginleika. Þetta er gert með því að skoða yfirburði valinna nauta þar sem nautsfeðurnir fá tvöfalt vægi með hliðsjón af þeim möguleikum til úrvals, sem voru fyrir hendi í hópnum, hefði að- eins verið valið fyrir einum eigin- leika. Niðurstöðurnar eru sýndar í mynd 1. Sú mynd er líklega sú jákvæðasta sem nokkru sinni hefur fengist. Það lýsir sér í því að jákvæð úrvalsnýting fæst fyr- ir alla eiginleika að þessu sinni. Yfirburðir fyrir mjólkurmagn eru að vísu heldur minni en stund- um hefur verið en hins vegar meiri fyrir flesta aðra eiginleika og náðst hefur að fanga nær 50% yfirburðanna sem fundust fyrir flesta eiginleikana og það verður að teljast mjög góð nið- urstaða. Góð notkun á þessum nautum á því að geta skilað mjög jákvæðum breytingum í kúastofninum. 1997 NAUTIN Þessi öflugi nautaárgangur, sem kom úr afkvæmarannsókn á síðasta ári, hefur verulega mikið treyst sinn upplýsingagrunn í matinu. Mestar eru breytingar í mati hjá Rosa 97037 frá Hjálm- holti en hann er nú kominn með 112 í heildareinkunn og í Ijósi þess var ákveðið að taka hann til almennrar notkunar. Hann hækkar gríðarmikið í mati um afurðir með auknum upp- lýsingum um dætur hans og af- urðamat hans er 122. Dætur hans hafa einnig góða dóma FREYR 04 2005 15

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.