Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2004, Blaðsíða 45

Freyr - 01.05.2004, Blaðsíða 45
Tafla 3. Fjöldi týndra merkja. Gerð 2002 2003 Bjargsmerki Ekki með 0 eða 0,0 % Rototag (dalton) 11 eða 5,5 % 3 eða 1,5 % Snapp tag 4 eða 2,0 % 1 eða 0,5 % Dalesman-mini 4 eða 2,0 % 1 eða 0,5 % Ewe babe Ekki með 2 eða 1,0 % hægra eyra. Hinar gerðimar eru settar i það vinstra. I febrúar 2003 var svo bætt við 10 merkjum af hverri gerð auk þess sem að Ewe babe merkin komu ný inn og voru sett í gimbrar á fyrsta vetri. I mars 2004 vom svo sett 10 merki í við- bót af hverri gerð í gemlinga. Niðurstöður og umræður Þegar verið er að velja merkja- gerð til að nota skiptir miklu máli fyrir bóndann að númerin haldist í lömbunum fram á haust og í fixll- orðnu ánum til æviloka. Hins veg- ar skiptir einnig máli hversu auð- velt er að setja merkin í eymn, hvort þau séu auðveld álestrar og hver kostnaðurinn er. Það má segja sammerkt öllum þessum gerðum, sem notaðar vom í lömbin, að það er einfalt að setja merkin í eym lambanna. Sérstakar tangir íylgja öllum gerðum nema Bjargsmerkjunum. Fyrst er núm- erið sett í töngina og því svo smellt í eyrað með einu handtaki. Rototag (Dalton), Dalesman mini og Ewe Babe merkin em öll tví- skipt og þarf þess vegna að hlaða töngina með tveimur hlutum en Snapp tag merkin em óskipt og verða því að hring í eyranu svipað og Bjargsmerkin. Vorið 2002 vom smá vandkvæði á að hlaða töngina með Snapp Tag merkjunum. Þeg- ar merkin vom skoðuð nánar sást að þau vom um það bil 1-2 mm lengri en pmfur sem vom til og það getur munað því að erfiðara er að hlaða töngina. Vorið 2003 var búið að ráða bót á þessu og engin vandkvæði lylgdu ísetningunni. Engin töng fylgir Bjargsmerkjun- um eins og áður sagði en mjög góð aðferð er að nota gatatöng til að gata eyrað og þræða merkið svo í. Ewe babe merkin em frekar stór og er nauðsynlegt að setja þau innarlega í eyrað á lömbunum. Ef það er ekki gert hanga eyrun und- an þunga merkjanna fyrstu dagana en svo virðist sem þau jafni sig á því þegar líða tekur á sumarið. Ewe babe merkin henta betur sem fullorðinsmerki en lambamerki að því leyti hve stór þau em en ótví- ræður kostur þeirra er hve auðvelt er að lesa á þau. Þess má geta að innflytjandi Ewe babe merkjanna er kominn með merki frá sama framleiðanda sem eiga að henta betur fyrir lömb. Stafir merkjanna em mismun- andi. Bjargsmerkin og Rotot- ag(dalton) merkin eru með prent- uðum númemm fylltum með bleki sem á það til að losna upp úr stöf- unum. Dalesman-mini og Snapp tag em lazerprentuð með gráum stöfiim sem mættu vera dekkri. Ewe babe merkin era með svört- um stómm stöfum sem em mjög vel læsilegir. Fylgst var með endingu merkja við fjallrekstur í lok júní og aftur við haustvigtun bæði árin. í töflu 3 má sjá fjölda merkja sem vantaði af hverri gerð hvort ár fyrir sig. Bæði sumrin vom nokkur lömb heima við í afgirtu tilraunahólfi. Sumarið 2002 töpuðu 5 lömb Ro- totag (dalton) merki og 2 lömb töpuðu Dalesman-mini merki sem vom í tilraunahólfmu en ekkert lamb tapaði merki sínu þar sumar- ið 2003. Þennan mun er erfítt að skýra. Líklegasta skýringin á því að lömbin týna merkjunum heimavið er sú að þau troða hausnum í gegnum girðinga- möskva og rífa merkin úr. Þetta gerist síður hjá merkjum sem em hringur en þeim sem em opin. Ókosturinn við hringina er aftur á móti sá að þeir geta snúist í eyr- anu og skemmt enda þeirra. Þetta getur verið slæmt þar sem er yfír- mark eins og heilrifað eða sneið- rifað svo að dæmi séu nefnd. Fyrra árið má segja að niður- staðan hafi verið slæm fýrir Ro- totag (Dalton) merkin þar sem 11 lömb týndu merkjum sínum. Þetta gæti verið tilfallandi vegna þess að síðara árið vom ekki nema 3 merki sem duttu úr. Góð niðurstaða Bjargsmerkj- anna kemur sumum á óvart en minna verður á að þegar verið er að bera saman merki verður að bera ný merki einnar gerðar við ný merki annarrar. Ekki er hægt að bera saman þriggja ára Bjargs- merki við ný merki af annarri gerð. Þegar fullorðinsmerki em sett í er hægt að setja Dalesman small og Ewe babe merkin í sama gat og lambamerkið var í. Einnig er hægt að setja Rototag (dalton) merkin í þau ef gatið er ekki of stórt. Fyrir Mini tag blöðkuna, sem sett er í með nál, er stungið nýtt gat (rifa). I fullorðnu ánum er fylgst með endingu merkjanna við vigtun ánna frá hausti til vors. í janúar 2004 höfðu 5 ær tapað Rototag (dalton) merki og ein Mini tag blaðka er glötuð. Öll önnur merki em enn í ánum. Fylgst verður með þeim áfram þar sem tvö ár er ekki nægilega langur tími til að skera úr um endingu allra merkjagerða. Þó má segja að Ro- Framhald á bls. 43 Freyr 4/2004 - 451
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.