Fylkir


Fylkir - 09.04.1981, Blaðsíða 3

Fylkir - 09.04.1981, Blaðsíða 3
Eflum framkvæmdir Framhald af 1. síðu. losnaö við olíureikningana. En við þurfum að horfa fram á við, og á síðasta bæjarstjórnarfundi fluttum við í minnihl. till. um að hefja könnun á möguleikum okkar í sambandi við vindorku og sjávarorku. í raforkumálum erum við þó miklu betur sett, viðreisnarstarf hjá Rafveitunni eftir gos er lofsvert. LJÓSIR PUNKTAR -Er ekki hætta á því að minni- hl.-menn gleymi sér í gagnrýni og aðhaldi og sjái ekki Ijósu hliðarnar á málunum? Nei, það held ég alls ekki. Það eru auðvitað margir ljósir punktar hér í Eyjum, sam- göngumálin, dagheimili, elli- heimili, söfn, höfnin, íþrótta- miðstöð og margt fleira, sem aðrir staðir eru að berjast í að fá eða koma sér upp. En það er stjórnin á þessu og reksturinn sem hefur ekki verið nógu góð- ur. ....OG DÖKKIR Eg skal nefna eitt dæmi um skrýtið misræmi í greiðslu fyrir þjónustu bæjarstofnana. Við greiðum niður dagvistun og afnot af íþróttamiðstöð að tölu- verðu leyti, en í nýjum drögum að reglugerð fyrir Hraunbúðir, elliheimilið, er verið að leita staðfestingar á því sem bæjar- yfirvöld hafa praktíserað nú upp á síðkastiö, að reka þessa stofnun alfarið fyrir fé vist- manna. Mér finnst þetta full- langt gengið, og þetta fólk eigi ekki síður en þeir sem hafa böm sín í dagvistun eða þeir sem stunda sund að fá þá þjónustu niðurgreidda. Við í minnihl. er- um með hugmyndir að vist- menn á elliheimili fái að halda eins og 1.000-1.200 kr. af elli- lífeyri sínum til eigin afnota. TVENNS KONAR FRAM- KVÆMDIR -Hvað fínnst þér um verklegar framkvæmdir á þessu kjörtíma- bili? í þessu sambandi má fólk ekki rugla saman þeim fram- kvæmdum sem eru á vegum einstakra stofnana, eins og t.d. hitaveitu, rafveitu og vatns- veitu, sem fjármagna sig sjálfar, og svo hins vegar þeim fram- kvæmdum sem bæjarsjóður sem slíkur stendur fyrir með útsvörum og aðstöðugjöldum og öðrum tekjum. Yfirleitt má segja að framkvæmdir sér- stofnana hafi gengið vel og rekstrarlegur hagur þeirra ver- ið góður. En framkvæmdir bæjarsjóðs hafa verið sáralitlar, eitthvað í gatnagerð og skóla- málum. Hér hefur orðið mikil afturför, því að áður fyrr fór verulegur hluti útsvara til framkvæmda, en nú hrökkva útsvar og aðstöðugjöld varla fyrir launakostnaði, bara bæjarsjóðs. Þessu verður að snúa við, því þörfin er mikil, t.d. í gatnagerðinni og skóla- byggingum. ENDURSKOÐUM SKIPU- LAGIÐ -Hvernig líst þér á skipulagið sem við höfum hér? Heldur illa. Það má segja að búið sé að skipuleggja alla eyna, aðalskipulag og deili- skipulög eru fyrir hendi, það er jú jákvætt. En tökum t.d. nýja vesturbæinn. Ég held að það hljóti að hafa orðið speglun á teikniborðinu, því að til þess að komast inn í hverfið þarf að fara út fyrir bæinn, í stað þess að ný hverfi vaxi eðlilega út úr því sem fyrir er. Annað er t.d. lóðarstærðir í austurbæ, þær eru alltof litlar. Nú, iðnaðar- svæði eru í litlum tengslum við hafnarsvæði eða hefðbundin athafnasvæði hér, og eru óneit- anlega á röngum stað. En skipulög ber að endurskoða á fárra ára millibili, og við ættum að gera það rækilega næst. Hinn frábæri Stokkseyrar harðfiskur er kominn aftur, einnig vestfirskur og Eyjafiskur. BÍLASTÖÐIN v/Heiðarveg Mótmæla lokun Dalavegar 55 íbúar við Sóleyjargötu og Fjólugötu hafa sent bæjarráði bréf þar sem mótmælt er lokun Dalavegar við Kirkjuveg, en götunni var nýlega lokað sam- kvæmt samþykkt bæjarstjórnar og aðalskipulagi Vestmanna- eyja frá 1975. Helstu rök íbúanna á móti lokun götunnar eru, að aksturs- leið lengist þar sem nú þurfa þeir að aka upp Dalaveg að Strembugötu til að komast út úr hverfinu í stað þess að geta ekið niður Dalaveg fýrir neðan Gagnfræðaskólann og vera þá strax komnir inn á miklar um- ferðargötur, þ.e. Kirkjuveg og Skólaveg. Erindi íbúanna var vísað til skipulags og þróunarnefndar til umsagnar. odýrar rafmagns- vörur BRAUN krullujárn BRAUN hárbustar KRUPS hárbustasett BABYLISS professionnel krullujárn BRAUN rafmagnsrakvélar Kaffivélar frá BRAUN BBC KRUPS Nýjung frá KRUPS heimilis vacum pökkunarvél HRSlEeSII MAGGI MAGGI Vorum að fá mikið úrval af MAGGI súpum Heimaver NÝKOMIÐ Glæsileg matar- og kaffístell Mhena classic Old Country Rose Olympus Ensk gæðavara Verið velkomin Sjón er sögu ríkari Kjörmarkaður Rúmgóð stórverslun AÆTLUN um páska og hvítasunnu Skírdagur 17. apríl frá Vm. 7.30 frá Þh. 12.30 Föstudagurinn langi - Engin ferð Laugardagur 18. apríl frá Vm. 7.30 frá Þh. 12.30 Páskadagur 19. apríl - Engin ferð Annarípáskum20.apr. fráVm 14.00fráÞh 18.00 Hvítasunnudagur 7. júní - Engin ferð 2. hvítasunnud. 8. júní frá Vm. kl. 14 frá Þh. 18 Aðra daga samkvæmt áætlun. Herjólfur h.f. Símar 1792 og 1433 Páskaegg — Páskaegg ATHUGIÐ VERÐ Á PÁSKAEGGJUM HJÁ OKKUR — ÞAÐ ER HVERGI BETRA Kaupið páskaeggin tímanlega HEIMAVER

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.