Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1998, Blaðsíða 12

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1998, Blaðsíða 12
Hér kemur líka eitt athugunarefni til sögunnar: Hvar koma Vesturheimsferðirnar inn í þetta? Nú voru þær langmestar af Norður- og Austurlandi. Hvernig kemur það heim og saman við þessa aðflutninga og þar af leiðandi fólksfjölgun? Var þá fólk að flytjast unnvörpum til Norðausturlands á samatíma og annað fólk var að flytjastþaðan af landi brott? Til að fá gleggra yfirlit um flutningana á landinu skipti ég því í fjögur svæði enda segja ofangreindar prósentutölur ekki nema takmarkað um mannijöldann sem fluttist milli sýslna. Eitt svæðið (1) tók yfir Eyj afj arðarsýslu og norður og austur um allttil Austur- Skaftafellssýslu. Annað svæðið (2) tók yfir Vestur- SkaftafellssýsluogsuðurumallttilMýrasýslu.Þriðja svæðið (3) samanstóð af Barðastrandar- og ísaijarðarsýslum og ísafírði. Fjórða svæðið (4) var svo Snæfellsnes, Dala-, Stranda-, Húnavatns- og Skagatjarðarsýsla. Skoðaði égfólksflutninganamilli þessara svæða. Þeir voru litlir og í jafnvægi á fyrra skeiðinu svo ég eyði ekki frekari orðum að því. En á seinna skeiðinu var annað uppi á teningnum. Til norðursvæðisins (1), ef við getum kallað Norðurvestur- og Austurland því nafni, fluttust um 1800 mannsáárunum 1870-1901 en frá suðursvæðinu (2), Suðurlandi í víðum skilningi, fluttust nær 1900 manns. Til Vestfjarðasvæðisins (3) höfðu yfir 1200 manns flutt, rúmlega sá fjöldi sem flutti frá síðastnefnda svæðinu (4) sem náði frá Snæfellsnesi til Skagaljarðar. Þetta virðist kannski ruglingslegt en ef við byrjum á Vestljarðasvæðinu (3) þá virðist sennilegt að fólkið þaðan hafi komið einkum af svæðinu Snæfellsnes- Skagaljörður (4). Það er næsta svæði við og fjöldi brottfluttra og aðfluttra á báðum svæðum stemmir nokkum veginn. Hinir aðfluttu ættu flestir að vera frá Snæfellsnesi, Dalasýslu, Stranda-, Húnavatns- og Skagafjarðarsýslu. Nú ættu þeir sem kunnugir eru vestfirskum ættum og manntölum að hugsa sig um og vita hvort þeim frnnist þetta geta staðist. Víkjum þá að hinum svæðunum tveimur. Það er naumast tilviljun hve fjöldi þeirra sem fluttu af Suðurlandi í víðum skilningi (2) stemmi svo vel við þann fjölda sem flutti til norðursvæðisins (1), 1800 og 1900 manns. Nú vitum við líka að á uppgangstímum Austfj arða á þessum tíma kom sægur af verkafólki frá Suðurlandi til starfa í þéttbýlisstöðunum. Margt hvarf aftur til baka en sumt ætti líka að hafa orðið eftir. Og nú spyr ég ykkur sem kunnug eru austfírskum ættum og manntölum: Finnst ykkurþað geta stemmt við fæðingarstaði fólks eða fyrri dvalarstaði, að langt aðflutt fólk hafi einkum verið af Suðurlandi, frekar en t.d. Vestfjörðum eða Vesturlandi? 4. Fólksflutningar til og frá Norðausturlandi og Austurlandi Af framansögðu er augljóst að það sem er því athyglisverðast við fólksflutninga á landinu á seinni hluta 19. aldarerþetta: Fólkfluttistþúsundum saman frá Norður- og Austurlandi til Vesturheims, yfir 5.000 manns af norðursvæðinu sem ég kalla svo á árunum 1870-1901. Á sama tíma fluttust um 1800 manns fleiri til þess (af öðrum stöðum á landinu) heldur en fóru þaðan. Spumingin er: Hvert var þetta fólk að fara og af hverju? Þar sem Norðausturland og Austurland var merkilegast í þessu fólksflutningamynsti skipti ég Norður-Þingeyjasýslu og Múlasýslum í þrjú svæði. Fyrst kom hinir eiginlegu Austfirðir, síðan Héraðið og þá norðursvæðið (allt fyrir norðan Hérað) sem nærmeðal annarsyfirhiðeiginlegaheiðarbýlasvæði. Á fyrra skeiðinu, 1835-1870, hafði fjölgunin verið öll á norðursvæðinu og á Héraði, en lítils háttar fækkun á fjörðunum. Á seinna skeiðinu var mynstrið dálítið mótsagnakennt. Á fjörðunum urðu gríðarlegir aðflutningar, hátt í 30% íbúanna 1901 voru aðfluttir, og má hér sjá merki útgerðarinnar. Á Héraði fækkaði hins vegar nokkuð, en að vísu ekki nema um 3%. í ljósi þess hefði ég búist við að þá hefði líka fækkað á norðursvæðinu en því var þveröfugt farið: þangað vom umtalsverðir aðflutningar og 20% íbúanna vom aðfluttir 1901. Nú ber þess að gæta að þótt hlutfall aðfluttra á norðursvæðinu og á ljörðunum væri ekki mj ög ólíkt (20% og 27%) þá vom aðfluttir á fj örðunum ríflega helmingi fleiri en á norðursvæðinu. En það em hlutföllin sem ég er einkum að hugsa um því þau segja til um breytingar á afstöðu fólks og búsetu miðað við eldri tíma. Hér komum við að þessari ráðgátu sem ég hef stundum verið að hugsa um: Hvað var það á norðursvæðinu sem fólk var að sækjast eftir úr því að á Héraði fluttist fólk burt því allt voru þetta landbúnaðarsvæði? Af hverju fór það ekki til Ameríku eða settist að á fjörðunum til að lifa af sjónum? Á þessu seinna skeiði virðist manni nefnilega brottflutningamir úr sveitasýslunum og fjölgunin við sjóinn vera hálfgerð þverstæða. í þessu sambandi er fróðlegt að athuga hvort að sams konar þverstæða finnist annars staðar á landinu. Fömm hringferð um landið. Ég sagði að á fyrra skeiðinu hefði Reykj avík, Gullbringu- og Kj ósarsýsla og Vestmannaeyjar sennilega dregið til sín fólk úr Ámes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Þetta var til staðar á seinna skeiðinu en straumurinn var bara ennþá sterkari. Og á þessu skeiði tapar Gullbringu- og Kjósarsýsla meira að segja fólki, og þá til Reykjavíkur og Hafnarfjarðar líklega. Varðandi Gullbringu- og Kjósarsýslu er þess að geta að landkostir innan hennar vom gagnólíkir því í Kj ósinni 12

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.