Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.2011, Blaðsíða 27

Andvari - 01.06.2011, Blaðsíða 27
andvari JAKOB BENEDIKTSSON 25 Önnur störf í Kaupmannahöfn Ekki er allt upp talið sem Jakob fékkst við á Kaupmannahafnarárunum. Það er eins og honum hafi aldrei fallið verk úr hendi og hann nýtt hverja stund sem gafst til fræðilegra iðkana. Hér verða talin helstu verk Jakobs fram að heimförinni. Ekki er viðlit að nefna allt sem hann skrifaði. Til dæmis er sleppt greinunum sem birtust í Fróni og eru rétt tæplega fjörutíu ef allt er talið, stuttar greinar og lengri og ritdómar. Vísast í ritaskrá Jakobs sem prentuð var með afmælisriti hans 1987.22 Jakob kom að nokkrum útgáfum á Kaupmannahafnarárum sínum. Hin fyrsta þeirra kom út á vegum Hins íslenska fræðafélags 1939 að hvatningu Jóns Helgasonar sem þá var orðinn forseti félagsins. Um var að ræða ævisögu, bréf og ritgerðir Gísla Magnússonar sýslumanns, sem oft hefur verið nefndur Vísi-Gísli. Kom ritið út í röðinni Safn Frceðafélagsins um ísland og íslendinga.23 Gísli var uppi 1621-1696, menntaðist vel í Danmörku, Hollandi og Englandi og var lærdóms- maður á sinni tíð með mikinn áhuga á búfræði og viðreisn Islands. Jakob sagði með þessu riti ekki með öllu skilið við Gísla en gaf 1979 út bréf24 sem sendiherra Dana í Haag skrifaði Kristjáni IV. Danakonungi þar sem fram komu hugmyndir Gísla um ýmsar fram- kvæmdir á Islandi, m.a. um brennisteinsvinnslu, vinnslu saltpéturs og saltvinnslu úr sjó. I afmælisræðu um Jakob fimmtugan fjallaði Ásgeir Blöndal Magnús- son sérstaklega um þessa bók sem hann hafði eitt sinn lesið eftir ungan fræðimann sem hann þekkti ekki þá: En bókin snart mig, ýtti harkalega við mér. Efnistökin voru ný og sterk, blærinn ferskur, föng voru dregin víða að og heimildir traustar og kyrfilega raðað. Ég sá allt í einu þennan kafla íslandssögunnar í nýju ljósi: andstæðufullt líf inn- lendrar framvindu og víxláhrif þess við erlenda menningarstrauma.25 Nokkrum árum síðar gaf Jakob út tvær greinar um ísland eftir biskup- ana Brynjólf Sveinsson og Þorlák Skúlason undir heitinu Two Treatises °n Iceland from the 17th Century. Birtust þær í ritröðinni Bibliotheca Arnamagnœana árið 1943. Nefndist ritgerð Þorláks Responsio subi- tanea en Brynjólfs Historica de rebus Islandicis relatio. Ritgerðunum fylgir ítarlegur formáli um forsögu þeirra, höfundana og heimildir þeirra en lokakafli inngangsins er um handritin, sem Jakob gaf út, og hvernig að útgáfunni var staðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.