blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007 blaöiö Vandfýsnir inn- brotsþjófar Brotist var inn í tvo bíla sem stóðu fyrir utan bílaumboðið Brimborg seinni part dags í gær. Að sögn Iögreglu voru rúður brotnar farþegamegin og geisla- spilarar rifnir úr stæðum sínum en ekki fjarlægðir. Óljóst er hvort þjófunum hugnuðust ekki hljóm- flutningstækin eða hvort þeir hættu við af öðrum ástæðum. mbl.is Hjartveikur um borð Farþegaflugvél af gerðinni DC ío frá hollenska flugfélaginu KLM lenti á Keflavíkurflugvelli laust eftir klukkan 4 í nótt með hjart- veikan flugfarþega. Talið er að far- þeginn hafi fengið hjartaáfall og við það misst meðvitund. Læknir, sem var um borð í vélinni, fylgd- ist með líðan farþegans sem var kominn til meðvitundar þegar vélin lenti á Keflavíkurflugvelli. Farþeginn var fluttur með sjúkra- bíl á Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Flugvélin var á leið frá Montreal í Kanada til Amsterdam. Gistinóttum fjölgaði um 6% Gistinætur á hótelum í júlí síð- astliðnum voru 189.300 en voru 177.800 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 11.400 nætur eða ríflega 6%. Gistinóttum fjölg- aði í öllum landshlutum. Aukn- ingin var hlutfallslega mest á Norðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um tæp 12%, úr 19.400 í 21.700 milli ára. Á höfuðborgar- svæðinu nam aukningin tæpum 6%, en gistinætur þar fóru úr 104.900 í 111.100 milli ára. Vill auka frjálsræði í landbúnaðinum ■ Landbúnaðarráðherra lætur skoða búvörulögin til að einfalda kerfið og auka frjálsræði ■ Ætlar ekki að afnema ákvæði sem undanskilur mjólkuriðnað samkeppnislögum Eftir Þórð Snae Júlíusson thordur@bladid.net Einar K. Guðfinnsson landbún- aðarráðherra er að láta skoða ákveðna þætti búvörulaga með það að leiðarljósi að einfalda landbúnað- arkerfið og auka frjálsræði innan þess. Þeir þættir laganna sem eru til skoðunar lúta meðal annars að verðtilfærslum og verðmiðlunum í kerfinu. Einar segir þessar aðgerðir í takt við það sem sett hafi verið fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar. „Þar er hvatt til þess að við reynum að gera kerfið einfaldara og að auka þar frelsi. Við höfum á und- anförnum vikum verið að fara yfir búvörulögin og ýmsa þætti þeirra. Það hefur meðal annars verið farið yfir þætti sem snúa að verðmiðlun og verðtilfærslum innan landbún- aðarkerfisins sem að mínu mati þurfa einföldunar við. Það gæti þá mögulega haft áhrif á verðlagningu búvara í frjálsræðisátt. Þetta er gert til að einfalda kerfið og gera verð- lagningu gegnsærri." Ákvæðið verður áfram Fyrirtæki í mjólkuriðnaði hafa verið undanþegin samkeppnis- lögum samkvæmt ákvæði í búvöru- lögum sem samþykkt var árið 2004. Fyrir tæpu ári úrskurðaði Samkeppn- iseftirlitið að þessi óskilyrta undan- þága væri á engan hátt eðlileg og að hún hefði alvarlegar samkeppnis- hömlur í för með sér. Eftirlitið hvatti því til þess að búvörulögunum yrði breytt þannig að þetta ákvæði yrði tekið út. Guðni Ágústsson, þáver- andi landbúnaðarráðherra, neitaði þá að beita sér fyrir breytingunum og sagði Samkeppnisyfirvöld hafa sett upp pólitísk gleraugu. Einar segist heldur ekki hafa nein sérstök áform um að fella ákvæðið úr gildi. „Alþingi samþykkti þetta fyrirkomu- lag árið 2004 með tilteknum rökum og ef við ætlum að endurskoða þetta Landbúnaðarráðherra er að láta skoða ákveðna þaetti búvörulag- anna með það að leiðarljósi að „einfalda kerfið og gera verðlagningu gegnsærri". Hann ætlar þó ekki að hrófla við ákvæði sem undanskilur fyrirtæki í mjólkuriðnaði frá samkepþnislögum. BlaöiöBrynjarGauti ákvæði þá verður að gera það að vel yfirlögðu ráði. Það er ekkert sem menn hrapa að.“ Mega ekki misbeita stöðu sinni Samkeppniseftirlitið fram- kvæmdi húsleit í höfuðstöðvum Mjólkursamsölunnar, Osta- og smjörsölunnar og Auðhumlu svf. í júní síðastliðnum vegna grun- semda um að fyrirtækinhefðu gerst sek um undirboð og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Einar segir ekki tímabært að tjá sig um það mál á þessu stigi þar sem það sé enn í rannsókn hjá Samkeppniseftirlitinu. Hann segir þó alveg klárt að þrátt fyrir að fyrirtæki í mjólkuriðnaði séu undanþegin samkeppnislögum megi þau ekki misbeita markaðs- ráðandi stöðu sinni. „Búvörulögin eru sérlög sem taka almennri lög- gjöf eins og samkeppnislöggjöf- inni fram og með þeim er Alþingi að veita undaþágu frá ákveðnum hluta samkeppnislaganna. En þó með þeirri veigamiklu undanþágu að þessi framleiðslufyrirtæki hafa ekki heimild til að misbeita mark- aðsráðandi stöðu sinni.“ BÚVÖRULÖGIN ► Lög um framleiðslu, verð- lagningu og sölu á búvörum, eða búvörulögin, voru sett árið 1993. ► Tilgangur þeirra er meðal annars sá að stuðla að jöfnuði milli framleiðenda f hverri búgrein hvað varðar afurðaverð og markað. ► Beingreiðslur til þeirra sem stunda landbúnað eru til- teknar í búvörulögunum. Strætó bs. Strætó bs. er byggðasamlag í eigu sjö sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hjá Strætó bs. starfa rúmlega 200 manns. Við hjá Strætó sjáum okkar meginhlutverk fólgið í því að veita almenna þjónustu á sviði almenn- ingssamgangna, innan þess fjárhagsramma sem okkur er settur og nýta það fjármagn sem best til að koma til móts við þarfir viðskiptavina. Framtíðarsýn okkar byggist á því að viðskiptavinir kjósi að komast leiðar sinnar með strætó vegna þess að það sé mun hagkvæmari kostur en að nota einkabíl. straeto.is VAGNSTJORAR Strætó bs. óskar eftir að ráða þjónustulipra og samviskusama vagnstjóra. Konur jafnt sem karla. Starfið er vaktavinna og býður upp á sveigjan- legan vinnutíma. Um er að ræða fullt starf, hlutastarf, helgarvinnu og kvöldvinnu á virkum dögum. Starfssvið: Að aka íbúum höfuðborgarsvæðisins og aðstoða þá við að komast leiðar sinnar, dag hvern. Mennta- og hæfniskröfur: Meirapróf, hlýlegt viðmót og þjónustulund. Strætó bs. heiðrar jafnrétti kynja til vinnu og greiðir sömu laun fyrir sömu störf. Því viljum við hvetja konur jafnt sem karia til að sækja um. Til greina kemur að kosta og styrkja umsækjendur til meiraprófs. Nánari upplýsingar veitir Steindór Steinþórsson í síma 540 2700, steindor@straeto.is og á straeto.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.