Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 6
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR6 KJÖRKASSINN SAMKEPPNISMÁL Meðallengd sjón- varpsauglýsinga í dagskrá Ríkisút- varpsins (RÚV) er rúmlega þriðj- ungur af því hlutfalli sem nýtt frumvarp um starfsemi fyrirtækis- ins takmarkar þær við. Þetta kemur fram í tölum sem teknar voru saman fyrir Fréttablaðið. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menning- armálaráðherra, segir frumvarpið geta tekið breytingum ef athuga- semdir við það gefa tilefni til þess. Meðallengd sjónvarpsauglýsinga- hólfa á kjörtíma, milli 18 og 23, hjá RÚV er 3,7 mínútur á klukkutíma, samkvæmt tölum sem teknar hafa verið saman fyrir Fréttablaðið. Nefnd mennta- og menningarmála- ráðherra um endurskoðun laga um RÚV skilaði af sér drögum að frum- varpi til laga í síðustu viku. Sam- kvæmt því á RÚV að takmarka hlut- fall auglýsinga í dagskrá sinni við tíu mínútur á klukkutíma. Í tölunum kemur einnig fram að meðallengd auglýsingahólfa hjá RÚV á kjörtíma í desember, sem er helsti auglýsingamánuður ársins, var 5,2 mínútur á klukkutíma. Alls fór lengd auglýsinga hjá RÚV yfir tíu mínútur í tíu klukkutíma í mán- uðinum. Lengsta auglýsingahólfið var 11,7 mínútur á milli klukkan 22 og 23 á gamlárskvöld, en útsending Áramótaskaupsins hófst klukkan 22.30 á þeim degi. Takmörkunin mun því ekki hafa teljandi áhrif á sölu RÚV á sjónvarpsauglýsingum nema nokkra klukkutíma á ári. Til viðbótar við ofangreindar tak- markanir verður RÚV gert óheimilt að slíta í sundur dagskrárliði til að koma að auglýsingum, vöruinnsetn- ing verður gerð óheimil í innlendri dagskrárgerð og fyrirtækið þarf að birta gjaldskrá sína opinberlega. Katrín segist gjarnan vilja tak- marka auglýsingaþátttöku RÚV. Hún vill þó gera það án þess að skerða heildartekjur fyrirtækisins. „Nefndin teiknaði upp einhvers konar takmarkanir og vill láta RÚV birta gjaldskrá og öll afsláttarkjör. RÚV metur það sem svo að þessu fylgi skerðing á tekjum upp á 186 milljónir króna. Síðan á eftir að fara yfir þessar tillögur og ég reikna með að þingið eigi eftir að skoða þær. Það sem ég hef alltaf sagt er að ég vil gjarnan takmarka auglýs- ingaþátttöku RÚV, en ekki skerða tekjur fyrirtækisins. Við erum að auglýsa eftir athuga semdum við frumvarpið og þær kynnu að hafa áhrif á það.“ Frestur til að gera athugasemd- ir við frumvarpsdrögin rennur út í dag. Katrín reiknar með að frum- varpið verði lagt fram á Alþingi í byrjun marsmánaðar. thordur@frettabladid.is Takmarkanir hafa lítil áhrif á RÚV Meðallengd sjónvarpsauglýsinga hjá Ríkisútvarpinu er mun styttri en þær takmarkanir sem eru í nýju frumvarpi. Ráðherra segir frumvarpið geta breyst ef athugasemdir gefa tilefni til þess. Það verður lagt fram í byrjun mars. Bókmenntasjóður Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum um útgáfu-, þýðinga-, ferða- og kynningaþýðingastyrki en næsti um- sóknarfrestur fyrir þessa styrki rennur út 15. mars 2012. Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Bókmenntasjóður styrkir meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bók- mennta heima og erlendis og sinnir öðrum verkefnum sem falla undir verksvið sjóðsins. Umsóknareyðublöð og upplýsingar fást á heimasíðu Bókmenntasjóðs, www.bok.is, en einnig á skrifstofu sjóðsins. Bókmenntasjóður Austurstræti 18 101 Reykjavík Frá kr. 69.900 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 28. febrúar á frábæru tilboði. Þú bókar flugsæti og þremur dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Verð kr. 69.900 Netverð á mann. Flugsæti 28. febrúar – 6. mars Verð kr. 89.900 Netverð á mann, m.v. 2 – 4 í studio / íbúð í 7 nætur. Verð kr. 109.900 með allt innifalið Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi á Turbo Club í viku. Frábæ rt tilbo ð! Stökktu til Kanarí 28. febrúar í viku Hefur nýfallinn dómur Hæsta- réttar um gengistryggð lán jákvæð áhrif á fjárhag þinn? JÁ 34,8% NEI 65,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Lætur þú þig komandi biskups- kjör varða? Segðu þína skoðun á visir.is SÝRLAND, AP Sýrlenski herinn hélt áfram þungum sprengjuárásum á íbúa borgarinnar Homs í gær, daginn eftir að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti harðorða ályktun þar sem krafist er afsagnar Bashars al-Assads Sýrlandsforseta. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sögðu nauð- synlegt að uppreisnaröfl í Sýrlandi sameini krafta sína og alþjóðasamfélagið þurfi að hjálpa þeim að verjast stjórnarhernum. „Við getum ekki komið á byltingu í Sýrlandi,“ sagði Sarkozy á fundi sínum með Cameron í París í gær, „ef byltingaröflin í Sýrlandi vinna ekki að því að sameina krafta sína og skipuleggja sig svo við getum veitt þeim betri aðstoð.“ Þeir hvetja Evrópusambandið til að samþykkja nýjar refsiaðgerðir gegn Sýrlandi fyrir næstu mánaða mót og lofa Sýrlendingum veglegri aðstoð ef Assad fer frá völdum. Bæði Ban ki-Moon, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, og Nancy Pillay, mannréttinda- fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segja „nánast öruggt“ að framferði sýrlenskra stjórnvalda undanfarna mánuði megi kallast glæpir gegn mannkyni. - gb Sarkozy og Cameron fordæma framferði Sýrlandsstjórnar: Vilja aðstoða uppreisnarmenn SKRIÐDREKI Í DAMASKUS Sýrlenski herinn á götu eins úthverfa höfuðborgarinnar. NORDICPHOTOS/AFP UMHVERFISMÁL Samorka – samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, samþykkti ályktun á aðalfundi sínum í gær þar sem vonbrigð- um er lýst af stöðu rammaáætlun- ar um vernd og nýtingu náttúru- svæða. Samorka vill að stuðst verði við faglega röðun verkefnis- stjórnar frá því í júní 2011. Þá ítrekaði aðalfundurinn and- stöðu samtakanna við hugmyndir um að færa auðlindarannsóknir og auðlindastýringu undir umhverfis- ráðuneytið. Samorka telur það óeðlilega stjórnsýslu að ráðu neytið hafi bæði yfir rannsóknum og nýtingu að segja ásamt umhverfis- mati og skipulagsmálum. Samtökin telja að í áralöngu starfi verkefnis stjórnarinnar hafi sjónarmið um náttúruvernd mikið vægi þar sem almenningur fékk ítrekuð tækifæri til að setja fram sín sjónarmið. Var það von Sam- orku að vinnan gæti orðið grund- völlur fyrir aukinni sátt um orku- nýtingu og verndun. „Í drögum að tillögu til þings- ályktunar sem kynnt voru í ágúst hafði verið vikið frá faglegri for- gangsröðun verkefnisstjórnar og niðurstöður hennar eru nú staddar öðru sinni í ógegnsæju samninga- ferli á vettvangi stjórnvalda,“ segir í ályktun fundarins. - shá Aðalfundur Samorku lýsir yfir vonbrigðum sínum með stöðu rammaáætlunar: Vinna verkefnisstjórnar gildi URRIÐAFOSS Virkjanir í neðri hluta Þjórsá eru og hafa verið bitbein ólíkra hagsmunaaðila. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON RÁÐHERRA Katrín Jakobsdóttir segir að hún vilji gjarnan takmarka auglýsingaþátt- töku RÚV, en án þess að skerða heildartekjur fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 42% hlutdeild í sjónvarpsauglýsingum RÚV var með 19% hlutdeild á auglýsingamarkaði árið 2010 ef allar auglýsingar eru tilteknar, samkvæmt tölum frá menntamálaráðuneytinu. Hlutdeild fyrir- tækisins hafði þá aukist úr 13,9% árið 2008. Tekjur RÚV vegna auglýsinga á því tímabili jukust um 140 milljónir króna á sama tíma og samanlagðar tekjur annarra fjölmiðlafyrirtækja á auglýsingamarkaði drógust saman um tæpa 2,1 milljarð króna. Auglýsingamarkaðurinn minnkaði því um tæpa tvo milljarða króna næstu tvö árin eftir bankahrun á sama tíma og tekjur RÚV vegna auglýsinga jukust. RÚV bætti mest við sig á sjónvarpsauglýsingamarkaði. Markaðshlutdeild fyrir- tækisins á þeim markaði árið 2008 var tæp 33%. Árið 2010 var hún orðin 42% og tekjur vegna sölu sjónvarpsauglýsinga höfðu aukist um 116 milljónir króna. Hlutdeild 365 miðla, sem meðal annars gefa út Fréttablaðið og reka Stöð 2, á heildarauglýsingamarkaði var um 56% árið 2009. Þar af var 365 með um helming allra tekna af sjónvarpsauglýsingum það ár. MENNTUN Hópur foreldra barna í Hamra- og Húsaskóla í Grafar- vogi óskaði eftir því við Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráð- herra á fimmtudag að hún skoði sameiningu skólanna. Ung- lingadeildir skólanna eiga að sameinast Foldaskóla í haust. Hópurinn telur að ekki hafi verið hlustað á sjónarmið hans, en foreldrarnir í hópnum vilja ekki að af sameiningunni verði. Því óska þeir eftir því að ráðu- neytið taki afstöðu og leitist við að svara lögfræðilegum álitamál- um sem þeir telja til staðar. - þeb Sameiningar í grunnskólum: Vilja að ráð- herra hlutist til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.