Fréttablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 58
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR38 bio@frettabladid.is Auk myndarinnar Wrath of the Titans, sem er fjallað um hér að neðan, eru tvær kvikmyndir frumsýndar í bíó- húsum landsins um helgina. Fyrst ber að nefna Dr. Seuss-teikni- myndina The Lorax þar sem stór- stjörnurnar Danny DeVito, Zac Efron og Taylor Swift eru meðal þeirra sem ljá persónum myndarinnar rödd sína. The Lorax fjallar um hinn 12 ára gamla Tedda sem þarf að finna tré sem gerir honum kleift að vinna hug og hjarta draumastúlkunnar sinnar, Audrey. Til þess að finna tréð þarf hann þó fyrst að hafa uppi á skógar- verðinum Lorax, appelsínugulri veru sem berst fyrir því að vernda heiminn. Myndin er sýnd á íslensku og ensku og í 3D. Roman Polanski-myndin Carnage er einnig frumsýnd, en hún er byggð á bók Yasminu Reza, God of Carnage. Um er að ræða svarta kómedíu um tvenn hjón sem koma saman til að ræða hegðun sona sinna sem höfðu lent í slagsmálum í skólanum. Það sem fyrst átti að verða stuttur og vin- samlegur fundur snýst þó yfir í and- hverfu sína og áður en við vitum af eru makar farnir að snúast hvor gegn öðrum. Með helstu hlutverk fara Jodie Foster, Kate Winslet, Christoph Waltz og John C. Reilly. - trs Appelsínugul vera og svört kómedía THE LORAX Stórleikarinn Danny DeVito ljáir appelsínugula og einkennilega skógarverðinum Lorax rödd sína í Dr. Seuss-myndinni The Lorax. Stórmyndin Wrath of the Titans verður heimsfrumsýnd annað kvöld. Kvikmyndin er framhald Clash of the Titans sem sýnd var árið 2010. Wrath of the Titans og segir frá Perseus, hálf- mannlegum syni guðsins Seifs, sem lifir nú rólegu lífi í litlu sjávarþorpi, stundar fisk- veiðar og sinnir uppeldi tíu ára gamals sonar síns. Á sama tíma ríkir mikil ólga milli guð- anna og títananna og nær títaninn Krónos að hneppa Seif í ánauð. Perseus ákveður í kjöl- farið að bjarga Seifi, föður sínum, úr klóm Krónosar og um leið binda enda á stríðið. Sam Worthington fer með hlutverk Perseusar en með önnur stór hlutverk fara Ralph Fiennes, Liam Neeson, Danny Huston og Rosamund Pike. Leikstjóri kvik- myndarinnar er hinn suður-afríski Jonathan Liebesman, en næsta verkefni hans er að leik- stýra nýrri kvikmynd um erfðabreyttu skjald- bökurnar Teenage Mutant Ninja Turtles. Á vefsíðunni Rotten Tomatoes eru gagn- rýnendur sammála um að samtölin í kvik- myndinni séu þurr og leikurinn stirð- busalegur en að hasaratriðin séu stórgóð. Gagnrýnandi hjá ABC Radio segir til að mynda að Wrath of the Titans sé skemmtileg- ust þegar persónurnar sjálfar hætta að tala og láta verkin tala, og á þar við hasar- og bar- dagaatriðin. - sm Hasar á heimsmælikvarða ALÞJÓÐLEGUR LEIKARAHÓPUR ■ Leikarahópurinn er nokkuð alþjóðlegur. Fiennes, Huston, Pike, Toby Kebbell og Bill Nighy eru öll bresk að uppruna, Worthington er ástralskur, Neeson er írskur og Édgar Ramírez er fæddur í Venesúela. ■ Louis Leterrier leikstýrði Clash of the Titans en afþakkaði boð um að leikstýra Wrath of the Titans. Hann vann þó sem framleiðandi við gerð nýju myndarinnar. ■ Tökur fóru að mestu fram í kvikmyndaveri rétt fyrir utan London. Útitökur fóru fram í Surrey, suðurhluta Wales, á Kanaríeyjum og á Tenerife. > LINDSAY LOHAN Svo gæti farið að leikkonan Lindsay Lohan bætist í hóp frægra er hafa leikið gestahlutverk í sjónvarps- þáttunum Glee. Lohan mun leika sjálfa sig í þáttunum og stað- festi talsmaður hennar frétt- irnar við vefsíðuna Gossipcop. com. Leikkonan Chloe Moretz hefur fengið tilboð um að fara með aðal- hlutverkið í endurgerðinni á hroll- vekjunni Carrie. Kvikmyndaverið MGM ætlar að endurgera kvikmyndina Carrie sem er byggð á samnefndri bók rithöfundarins Stephens King. Hinar ungu og efnilegu Dakota Fanning, Bella Heathcote og Lily Collins voru einnig orðaðar við hlutverkið en samkvæmt Deadline stendur valið helst á milli Moretz og Haley Bennett. Hin fimm- tán ára gamla Moretz er líklega þekktust fyrir leik sinn í kvik- myndunum Kick-Ass og Let Me In þar sem hún leikur vampíru. Bennett vakti verðskuldaða athygli fyrir leik sinn í kvikmynd- inni Kaboom. Leikstjórinn Kimberly Peirce hefur tekið að sér að leikstýra endur gerðinni en hún hlaut ein- róma lof fyrir kvikmyndina Boys Don’t Cry árið 1999. Leikkonan Sissy Spacek fór með hlutverk Carrie White í uppruna- legu myndinni sem frumsýnd var árið 1976. Carrie snýr aftur NÝ CARRIE Leikkonan Chloe Moretz hefur fengið tilboð um að leika aðalhlutverkið í endurgerð hrollvekjunnar Carrie. NORDICPHOTOS/GETTY ★★★★★ FRIENDS WITH KIDS „Lítið merkilegt en ekki leiðinlegt. Leikararnir halda þessu á floti.“ ★★★★★ MARGIN CALL „Spennandi fjármáladrama, drekk- hlaðið úrvalsleikurum.“ ★★★★★ ACT OF VALOR „Hermennirnir geta nánast ekkert leikið og samtölin þeirra á milli eru svo klaufaleg að hliðstæðu þeirra má helst finna í klámmyndum.“ ★★★★★ PROJECT X „Hressilegt partý en fremur mis- heppnuð mynd.“ - hva KVIKMYNDARÝNI BARÁTTUGLÖÐ Leikkonan Rosamund Pike fer með hlutverk drottningarinnar Andrómedu sem aðstoðar Perseus í baráttu sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.