Fréttablaðið - 04.05.2012, Page 34

Fréttablaðið - 04.05.2012, Page 34
HELGARMATURINN Veislusalat eða Klettasalat Pera, vínber, jarðarber, agúrka, tómatar, piparostur, ristaðar furuhnetur og valhnetur. Allt skorið smátt og sett út í salatið. Balsamikedik frá Modena og Bal- samiksíróp frá Merchant Gourmet sem ég blanda saman og set út í salatið. Að lokum set ég stundum kjúkling eða nautakjöt yfir þegar ég nota salatið sem aðalrétt. Avókadó- og rækjusalat 2 bollar rækjur 2-3 harðsoðin egg (má sleppa) 1 avókadó (skorinn smátt) 1 msk. sætt sinnep 1-2 msk. tómatsósa 6 msk. grísk jógúrt eða eftir smekk Herbamare sjávarsalt Svartur pipar eftir smekk Allt sett í skál og blandað vel saman. Það er líka gott að skera avókadó í helminga, taka kjarnann úr og setja salatið ofan í holuna þar sem kjarn- inn var. Avókadó er hollt og gott. Má sleppa sinnepi og tómat- sósu – setja karrý í staðinn. Það er ekki hægt að neita því að matarræðið léttist oft á sumrin í takt við léttari lund og bjartari daga. Brynja Nordqvist flugfreyja deilir hér með okkur uppáhalds sumarsalötunum sínum. Stórglæsileg sýning á íslensku handverki, listiðnaði og hönnun fer nú fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og lýkur þann 7. maí. Þetta er í sjöunda sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN stendur fyrir og skipuleggur þennan viðburð en í fyrsta sinn að vori til. Það er óhætt að segja að sýningunni hafi verið vel tekið undanfarin ár og hefur aðsóknin verið mjög mikil. Þetta er kjörið tæki- færi fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun. Það eru listamennirnir sjálfir sem kynna vörur sínar. Gróskan og fjölbreytnin er mikil sem fyrr og að þessu sinni sýna 44 aðilar verk sín. Meðal þeirra eru Þórdís Jóhannesdóttir Wathne með Spunadís og Sveinbjörg Hallgríms- dóttir með hönnun sína Svartfugl. SPENNANDI HÖNNUNARSÝNING Í RÁÐHÚSINU

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.