Fréttablaðið - 08.09.2012, Side 8

Fréttablaðið - 08.09.2012, Side 8
8. september 2012 LAUGARDAGUR FRÉTTASKÝRING Hvernig verður bílastæðamálum við Háskóla Íslands háttað? Reiknað er með því að samgöngu- áætlun Háskóla Íslands (HÍ) verði samþykkt á næstu dögum, en sam- kvæmt henni á að minnka mengun sem tengist háskólanum. Gerður verður samgöngusamningur við Strætó og dregið úr umferð einka- bíla við byggingar skólans. Stefnt er á að gjaldskylda verði tekin við allar byggingar árið 2014. Ingjaldur Hannibalsson, for- maður skipulagsráðs HÍ, segir að með stefnunni eigi að taka tillit til umhverfisins og að bæta heilsu starfsmanna. Þá vilji skólinn kom- ast hjá fjárfestingum í dýrum bíla- stæðahúsum eða -kjöllurum. Eitt verði látið yfir alla ganga og þegar fyrsta húsið með bílastæðakjall- ara verði tekið í notkun sé stefnt að því að taka upp gjaldskyldu í öllum stæðum. Unnið er að byggingu Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, en undir henni er 38 stæða bílakjallari. Ingj- aldur segir kostnað við hann nema rúmlega 100 milljónum króna. Stofnunin mun taka til starfa árið 2014. „Það er ekkert fast í hendi en stefnan er þessi, að við ætlum ekki að fjölga stæðum á lóðinni. Það kemur að því að gjaldskylda verður tekin upp sem mun tengjast útgjöld- um skólans vegna bílastæðamála. Okkur finnst óeðlilegt að nýta það fé sem við fáum til kennslu og rann- sókna í að byggja upp rándýr bíla- Gjaldskylda árið 2014 Stefnt er að því að gjaldskyldu verði komið á í öllum bílastæðum við Háskóla Ís- lands árið 2014. Hrunið breytti engu um fjölda þeirra sem koma á einkabílum. Um 60% nemenda og starfsmanna við Háskóla Íslands koma á einkabíl í skólann. Um 14 þúsund nemendur eru við hann, fastir starfsmenn eru um 1.300 og stundakennarar um 2.000 og því um 17 þúsund manns sem eiga erindi í hann reglulega. „Það er athyglisvert að við gerðum könnun fyrir hrun og einnig eftir hrun og hlutfall þeirra sem komu á einkabíl lækkaði um 3%. Það var nú ekki meira,“ segir Ingjaldur, en kannanirnar voru gerðar árin 2007 og 2010. Til stendur að gera samgöngusamning við starfsmenn um að þeir auki vistvænar samgöngur. Þá er stefnt að samgöngusamningi við Strætó sem gefur starfsmönnum um 20% afslátt á árskorti. Hrunið fækkaði ekki einkabílum stæði fyrir starfsmenn og nemend- ur,“ segir Ingjaldur. Til þess að stefnan gangi eftir þarf aðkomu margra aðila. Skól- inn er starfræktur í tæplega 40 byggingum og við þær eru 2.200 bílastæði. Sum húsin eru í íbúða- hverfum og við þau þurfi Reykja- víkurborg að gefa út bílastæðakort fyrir íbúana. Þá þurfi samvinnu við Land- spítalann, því ekki gangi að rukka aðeins í stæði háskólans á lóð spít- alans.„Síðan teljum við mikilvægt að samtímis batni þjónusta Strætós við svæði skólans. Það hefur ekki verið staðfest, en líklegt er að aðal- skiptistöðin færist frá Hlemmi að BSÍ. Það ætti að gera það mögulegt að bæta samgöngur við svæðið við Suðurgötuna og spítalalóðina veru- lega. Það er því margt sem hangir saman til að þetta sé raunhæf áætl- un.“ kolbeinn@frettabladid.is Hringbraut Kr in gl um ýr ar br au t Sn or ra br au t NOREGUR Ungliðahreyfing norska Verkamannaflokksins ætlar að eyða sextíu milljónum norskra króna í uppbyggingu í Útey. Það eru um 1,2 milljarðar íslenskra króna. Eskil Pedersen, formaður ung- liðahreyfingarinnar, tilkynnti þetta í gær. Hann sagði að sumarbúðir þeirra myndu halda áfram í eyj- unni, það væri besta leiðin til þess að heiðra minningu þeirra 69 ung- menna sem voru myrt þar í fyrra. Um fjörutíu milljónir norskra króna hafa safnast í sjóð ungliða- hreyfingarinnar síðan í fyrra. Samkvæmt uppbyggingartillög- um á að byggja nýja aðalbyggingu í eyjunni. Þar verður fyrirlestrar- salur, fundarherbergi, matsalur og eldhús meðal annars. Þá verður gerð ný strönd og ýmislegt verður lagfært, eins og knattspyrnu- og blakvellir. Þá verða gerðar breyt- ingar á tjaldsvæðinu og lýsingu þar verður breytt. Nýjar byggingar verða byggðar með svefnaðstöðu. Að auki er gert ráð fyrir að í eyj- unni rísi útisvið fyrir tónleika og aðra viðburði. Bygging sem hýsti matsal eyjunnar verður rifin. Gert er ráð fyrir því að fram- kvæmdir hefjist í haust. - þeb Ungliðahreyfing Verkamannaflokksins ætlar að snúa aftur með sumarbúðir: Milljarður í uppbyggingu í Útey ÚTEY 1.200 milljónir fara í uppbyggingu í Útey en framkvæmdir hefjast í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Starfsemi HÍ Reykjavíkurtjörn www.volkswagen.is Frelsi til að ferðast Volkswagen Tiguan Komdu og reynsluaktu Volkswagen Tiguan Tiguan Sport & Style kostar aðeins frá 5.790.000 kr. Fullkomið leiðsögukerfifyrir Ísland Volkswagen Tiguan sportjeppi eyðir aðeins 5,8 l á hverja 100 km. www.endo.is endo@endo.is www.facebook.com/endometriosa Í samstarfi við Samband samtaka um endómetríósu á Norðurlöndum og Kvennadeild Landspítala, Reykjavík
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.