Fréttablaðið - 28.12.2012, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 28.12.2012, Blaðsíða 32
KYNNING − AUGLÝSINGFlugeldar FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 20122 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s. 512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Leikarinn góðkunni Örn Árna-son er mikill áhugamað-ur um flugelda eins og flest- um ætti að vera ljóst. Hann hefur um árabil rekið f lugeldasöluna Bomba.is en þar sérhæfir hann sig í sölu á tertum af öllum stærðum og gerðum. „Sérstaða mín felst í því að ég hef enga fjölskyldupakka heldur einblíni eingöngu á sölu á tertum. Ég blanda mér því ekki inn í smásölumarkaðinn og er þar af leiðandi ekki í samkeppni við björgunarsveitirnar. Það má segja að ég haldi mig við þungavöruna.“ Bomba.is býður upp á þrjá- tíu tegundir af tertum og eru þær minnstu nokkuð stórar að sögn Arnar. „Þannig að þær stærstu eru voðalega stórar. Ég hef reynt að hafa hönd í bagga með útlit þeirra. Þannig hef ég fengið að raða litum og „effektum“ niður eftir mínu höfði inn í hverja tertu og því er hver terta í raun sýning út af fyrir sig. Ég mæli því ekki áhrifin af tert- unni í mínútum heldur í upplifun- inni sjálfri.“ Örn selur ekki eingöngu tertur hannaðar af honum sjálfum, sumar þeirra segir hann óþarft að eiga við enda séu þær góðar frá hendi framleiðandans. „Í fyrra lét ég meðal annars framleiða tertu fyrir mig sem hét Ísland og var hún blá, hvít og rauð. Hún kom mjög vel út.“ Jöklar prýða himininn Terturnar í ár bera að stærstum hluta nöfn jökla. Sú fallegasta að sögn Arnar heitir Eyjafjalla- jökull. Aðrar framleiða meiri há- vaða en litadýrð, eins og tertan Vatna jökull. „Sumir vilja tertur sem gefa frá sér mikinn hávaða en enga eða litla liti. Þá get ég fóðrað þá á þeim. Stærsta tertan okkar inniheldur 100 skot og tveggja tommu rör. Þetta er stór terta sem teygir sig eins langt og má strekkja sig löglega. Aðrir vilja mikla litadýrð og jafnvel f lotta blöndu af alls konar áhrif- um. Þá er nóg í boði fyrir þann hóp hér hjá okkur.“ Aðrar tertur bera nöfn eins og Snæfellsjökull, Drang jökull, Brúar jökull, Skjald- breiður og Sólheimajökull. Örn segir algengt að viðskipta- vinir kaupi þrjár tertur hjá honum. Margir byrji á einni lítilli tertu, færi sig síðan ofar í styrkleika og lita- dýrð og svo sé endað á einni stórri tertu. „Eyjafjallajökull er mjög vinsæl terta til að enda sýningu kvöldsins. Við hófum sölu á henni í fyrra og hún var mjög vinsæl.“ Bomba.is er staðsett í Víkur- hvarfi 6, 203 Kópavogi og verður opnuð í dag, 28. desember. Nánari upplýsingar má finna inn á www. bomba.is. Bestur í þungavörunni Bomba.is er leiðandi í innflutningi á skottertum sem allar eru magnaðar flug eldasýningar. Boðið er upp á tertur sem framkalla mikla litadýrð og hávaða. „Ég mæli því ekki áhrifin af tertunni í mínútum heldur í upplifuninni sjálfri,“ segir Örn Árnason leikari. MYND/PJETUR Hver kannast ekki við að eiga í vandræðum með að mynda flugelda? Hér eru nokkur góð ráð við ljósmyndun flugelda. 1 Ákveddu stað og umhverfi myndanna fyrir fram. 2 Notaðu þrífót. Þegar teknar eru myndir af flugeldum er notaður lengri lokunarhraði. Með lengri lokunarhraða næst hreyfing flugeldana betur en um leið hreyfing vélarinnar sem krefst þess að hún sé kyrr. Þá er kostur að nota fjarstýringu sem kemur í veg fyrir hreyfingu. 3 Á litlum vélum er oft stilling sem heitir „fireworks mode“ sem gott er að stilla á. Sé hún ekki til staðar og ef ekki er hægt að slökkva á sjálf- virkum fókus verður vélin ringluð við að vera beint út í myrkrið og nær illa að fókusera. Til að komast hjá þessu er hægt að stilla hana á „land- scape mode“. Með þeirri stillingu er hægt að komast hjá þessu vanda- máli. Að öðrum kosti er best að nota handvirkan eða „manual focus“. 4 Notaðu mestu mögulegu gæði á myndavélinni. 5 Við myndatöku flugelda er mælt með að opnunartími ljósops sé frá einni sekúndu og upp í fjórar. Sé ekki hægt stjórna lokunarhraðanum handvirkt eru oft stillingar á myndavélum þar sem hægt er að velja fastan tíma. Til dæmis eina sekúndu, tvær og svo framvegis. 6 Mælt er með eftirfarandi ljósopsstillingum: ISO 50 =ljósop f/5,6-11, ISO 100 = ljósop f/8-16 ISO 200 = ljósop f/11-22 Heimild: www.nyip.com Flugeldar á ljósmynd Það er vandasamt að ná góðri mynd af flugeldum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.