Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.07.2012, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 20.07.2012, Blaðsíða 40
32 bækur Helgin 20.-22. júlí 2012  ritdómur Box 21 Vinsælar heilsuBækur  ritdómur – Ég er á lífi, paBBi s iri Marie Seim Sønstelie var í Útey og bjargaðist. Tilviljun ein réði því að hún og þau sem földu sig með henni í klettaskoru voru ekki tekin af lífi fyrir réttu ári, þann 22. júlí. Í dag fellur dómur yfir rasistanum og öfgamanninum sem sá það sem æðri tilgang í lífi sínu að drepa sem flesta félaga af yngstu kynslóð Verka- mannaflokksins norska og þótt réttarríkinu hjá frændum okkar hafi tekist á þessu ári af mikilli stillingu að halda yfir Breivik rétt- arhöld þá er glæpur hans til sönnunar um vatnaskil í opinberri baráttu gegn hægri- sinnuðum öfgamönnum sem fara mikinn um samfélög hér norðurfrá. Hér á landi er valdboð þeirra bundið við útlendingahatur almennt, en þó einkum gegn lituðu fólki, flóttamönnum og inn- flytjendum, og eru dæmin um það mýmörg. Fæstir þeirra sem finna ótta sínum farveg í útlendingahatri átta sig á því samhengi sem þeir sitja fastir í. Og þótt saga Siri, sem rekur atburði eftirmiðdagsins 22. júlí frá upphafi til enda, og faðir hennar bæti í myndina með sögunni frá sinni hlið, þá óttast þessi lesandi að fordómafullir landar okkar eigi í stökustu vandræðum með að stilla sér upp í hópi hægrisinnaðra öfga- manna álfunnar þótt grunnmiðin í skoð- unum þessa fólks séu af svipuðum toga og eiga sér vissulega sögulegar rætur í gyð- ingahatri síðustu aldar sem er sama eðlis og múslimahatrið nú. Skrif feðginanna eru græðandi: bæði segja þau sögu sína til að losa sig undan martraðarkenndri reynslu. Bókin er læsi- leg, skýr í uppbyggingu og dregur upp ljósa mynd af þeim örlagaríku klukkustundum sem kostuðu á áttunda tug barna og full- orðinna lífið. Undirtitill verksins er Dagur- inn sem breytti okkur — en hversvegna hefur sá dagur ekki megnað að breyta öðrum? Þeim sem hversdagslega hugga sig við — flestir í velsæld vanþekkingar sinnar — hatur á öllum þeim sem eru langt að komnir og eru af annarri trú en trúdaufur fjöldinn. Því hatur er það og brýtur svo skelfilega í bága við manngildishugsjón sem við viljum að ríki hér. Hér starfa póli- tískir flokkar sem þrífast á svona ótta, hér ganga fram stjórnmálamenn sem sveipa sig yfirlæti hins skilningsríka en standa fastir í andúð á Pólverjum, Víetnömum, mús- limum, jafnvel kaþólikkum, og kynda undir slíkum fordómum. Bók eins og þessi kann að megna að fylla fólk ofboði, en verkinu er um megn að vísa á grunninn að þessum ósköpum: sjálfbirgingshátt hins hvíta, það skipulega arðrán sem er grunnurinn undir samfélagi okkar og tryggir okkur lífsgæðin, og um leið hvernig þekkingarmiðlun okkar daga skríður hjá því stóra samhengi sem út- lendingahatur er almennt. Verkið megnar aftur að bregða skýru ljósi á hvað ofbeldis- glæpir draga langan dilk á eftir sér, hvernig ofbeldið setur fórnarlambið ævilangt í fangelsi tilfinninga sinna sem sækja aftur og aftur á hugann í endurliti, stinga upp höfði þegar minnst varir. Ræna það friði um alla tíð. Ég er á lífi er því áminning til okkar hinna að heimta það af samfélagsgerðinni að alltaf sé risið gegn hinni hatursfullu smáborgaralegu afstöðu sem stillir okkur upp sem heild gegn öllum hinum, þeim sem vilja útlendinga burt, flóttamenn burt frá eyju sem er sögulega séð hinsta skjól flóttamanna. Á endanum er það krafa um lífsafstöðu þeirra sem við kjósum að hafa í forsvari: hvað eru þeir tilbúnir að ganga langt í að gera landið að hvítu virki eins og margir forverar þeirra hafa beitt sér fyrir með góðum árangri. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Hundrað og tíu ára tímarit r oslund & Hellström er tvíeyki frá Svíþjóð sem hef-ur á liðnum árum sent frá sér röð spennusagna. Fyrsta sagan þeirra, Ófreskjan, kom út í fyrra hjá Upp- heimum, og var upphaflega gefin út 2004, nú er önnur bók þeirra komin út hjá sama forlagi og Sigurður Þór Salvarsson þýðir. Alls munu þessir skáldbræður eiga sex bækur á markaði, nýjasta sagan þeirra, Tveir bræður, kom út í Svíþjóð fyrir fáeinum vikum. Box 21 rekur nokkrar sögur samtímis: hér eins og í Ófreskjunni er Evert Gren, miðaldra og mæddur rann- sóknarlögreglumaður tengillinn: Forn andstæðingur hans verður látinn laus innan skamms og Grens er staðráðinn í að koma honum aftur bak við lás og slá – hvað sem það kostar. Fanturinn varð þess valdandi að eiginkona Grens hefur verið á hæli, mikið skert andlega eftir lögregluslys sem Grens kennir óvini sínum um. Grens reynir að rekja ferðir fangans þá hann er laus með því að yfirheyra ungan fíkil en án árangurs. Skömmu síðar er Grens kallaður í íbúð þar sem átök hafa átt sér stað og þar er tveimur litháískum konum haldið föngnum sem kynlífsþrælum: þar með eru helstu upphafsþræðir verksins ljósir, en það gerist á nokkrum klukkustundum – þó forsögur og eftirmál skagi út úr sögunni. Roslund & Hellström eru býsna miskunnarlausir í lýsingum sínum, plotta sögurnar vel, og draga hvergi af sér. Grens er brotinn maður, sérstæður ruddi og reynist ekki heilagur þegar á hólminn er komið. Hér skarast áhugasvið löggu og glæpamanna og líkt og í Ófreskjunni ná þeir félagar að snúa á lesandann fram á síðustu andartök sögunnar, búa til hverfipunkt sem er í senn óvæntur og lýsandi. Framvinda sögunnar er mjög spennandi á löngum kafla og mörgum minni persónum bregður fyrir sem eru fagmannlega settar saman og gera plottið og söguumhverfið sannfærandi. Eins og margir norrænir krimmar er Box 21 sam- félagsádeila, kafar ekki djúpt í rætur glæpsins sem hér er í sjónarmiðju: hversvegna leita karlar vísvitandi eftir því að sækja heim fangnar konur og misbjóða þeim kynferðislega, þrátt fyrir að slík hegðun sé utan þeirra hóps talin ósæmileg, lögbrot og geti leitt yfir þá mikla ógæfu. Oftast er bent á karla sem sitja hátt í veldisstiga samfélagsins sem einhverja skýringu á því að svona starfsemi er óáreitt. Sjaldan er litið víðar: hversvegna er samfélögum okkar svo erfitt að uppræta mansal á okkar dögum? - pbb Hvít þrælasala í Svíþjóð  — Ég er á lífi, pabbi Siri Marie Seim Sønstelie og Erik H. Sønstelie Þýðing: Örn Þ. Þorvarðarson Draumsýn - Bókaforlag, 302 bls. 2012.  Box 21 Roslund & Hellström Sigurður Þór Salvarsson þýddi. Uppheimar, 410 bls. 2012. Bók eins og þessi kann að megna að fylla fólk ofboði, en verkinu er um megn að vísa á grunninn að þessum ósköpum. Úr Herðubreiðarlindum Ársfjórðungsritið Herðubreið er komið út á nýjan leik. Lát varð á útgáfunni eftir fyrstu tvo árgangana en nú er hóað í þriðja árganginn. Ritstjóri og útgefandi er sem fyrr Karl Th. Birgisson og er nýja heftið 96 síður að stærð. Árni Páll Árnason skrifar um hagstjórnarverkefni vorra tíma, Valgerður Bjarnadóttir fjallar um persónukjör, birt er erindi eftir Guðmund Andra Thorsson frá vori 2009, herhvöt af landsfundi Samfylkingar- innar. Pétur Tyrfingsson skoðar sagnfræðirit hægri sinnaðra sagnfræðinga, Jóhannes H. Karlsson skoðar hugmyndir um Ísland sem skattaskjól. Þá er palladómur að fornum sið um Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Margt ljósmynda er í heftinu eftir Ara Sigvaldason og aldarafmælis Steins Steinars 2008 er minnst með ýmsum hætti. Þá geymir heftið fjölda merkilegra ritdóma. Vorhefti þessa árs af Sögu, tímariti Sögufélagsins, er komið út í rit- stjórn Sigrúnar Pálsdóttur. Það er 244 síður að stærð og geymir að vanda margt góðra greina. Forsíðu skreytir mynd af verslunarhúsi Nathan og Olsen á horni Austur- strætis og Pósthússtrætis sem auglýst var til sölu fyrr í vikunni en upphafsgrein heftisins fjallar um það og er eftir þýska arkitekt- inn Atla Magnús Seelow sem sendi á síðasta ári frá sér inn- gangsrit um íslenska húsagerðar- list á fyrri helmingi síðustu aldar. Auður Styrkársdóttir skrifar um upphafsár kvennabaráttu á Íslandi og alþjóðlegt samstarf. Már Jónsson segir frá skiptabókum og dánarbúum, Brynja Björnsdóttir skrifar um vansköpuð börn á miðöldum. Magnús Þ. Bernharðsson fjallar um stjórnmál Miðausturlanda og Svanur Kristjáns- son fjallar um Kefla- víkursamninginn 1945-1946. Þá eru í ritinu viðtöl, viðhorfsgreinar, ritdómar og andmæli. Barnamorðin í Útey Heilsuréttir fjölskyldunnar eftir Berglindi Sigmarsdótt- ur er mest selda bók ársins. Í öðru sæti á metsölulista bókaverslana er Heilsuréttir Hagkaups eftir Sólveigu Eiríksdóttur svo það er ljóst að landsmenn eru afar áhugsamir um heilsusam- legt líferni þetta árið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.