Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 20

Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 20
Neutral.is Fáðu góð ráð við oFnæmi neutral.is Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum frá NeutralDönsku astma- og ofnæmissamtökin ÍS LE N SK A S IA .I S N AT 6 06 55 0 8. 20 12 okkur finnst mikilvægt að ýta við ykkur og vekja ykkur til meðvit- undar um að þetta er hluti af menn- ingu ykkar og arfleifð.“ Sagnaþulir segja Íslendinga- sögurnar Íslendingasögurnar eru Andy að vonum ofarlega í huga og hann ber mikla virðingu fyrir Íslend- ingum fyrir að hafa varðveitt þær sögur sem hann og félagar hans byggja ekki síst víkingatilveru sína á. Og ljóst er að hann er vel að sér og þekkir þær betur en margur mörlandinn enda eru þeir Egill Skallagrímsson, Gunnar á Hlíðarenda og Grettir nánast sprelllifandi í samtölum víking- anna í Jórvík. En merkilegt nokk hefur Andy ekki lesið neina Ís- lendingasögu. „Ég læt lesa þær fyrir mig,“ segir hann og skellir upp úr. „Sagna- þulirnir okkar segja okkur þessar sögur,“ segir hann og slær síðan um sig með því að rekja söguna að baki þess að Egill orti konungi sína Höfuðlausn. Og aðdáunin á þessum mikla víkingi leynir sér ekki í aug- um hans. „Ég fór á fæðingarstað hans og tók myndir. Sagnaþulirnir mínir eiga eftir að verða ofboðslega afbrýðisamir.“ Grasræktun og borgarastríð á Írlandi En hvað varð til þess að Andy hvarf aftur í aldir og festist í heimi vík- inganna? „Ég hef alltaf haft áhuga á sögunni og hún er áþreifanleg á heimaslóðum mínum. Ég var í breska hernum í þrjú ár og gegndi herþjónustu á ýmsum stöðum og hugsaði mikið á meðan. Þegar ég hætti í hernum var ég bara eitthvað að slæpast og hjóla um á mótorhjóli en fann alltaf fyrir þessari víkinga- taug í mér og fannst ég tengjast þessum tíma,“ segir Andy sem lagði síðan mótorhjólinu, setti upp fornari hjálm og gerðist víkingur. Andy þjónaði meðal annars á Norður-Írlandi þegar allt var þar í járnum og víkingurinn setur í brýrnar þegar talið berst þangað. „Maður upplifði margt þar,“ segir hann hugsi. „Sumt gott og sumt slæmt en við vorum þarna til þess að vernda borgarana og styðja við lögregluna. Það var okkar verk- efni og þannig upplifðum við það. Núna er ég í góðu sambandi við víkingana á Írlandi og við förum þangað til þess að berjast og fáum okkur síðan í glas,“ segir hann og skellir upp úr. Andy er hálærður garðyrkusér- fræðingur og vann lengi vel á til- raunastofu á vegum hins opinbera þar sem gerðar voru rannsóknir á byggi og öðrum uppskrerugróðri. „Ég ræktaði líka marijúana fyrir ríkið,“ segir hann og hlær. „Og meðal annars var gras sem ég bjó til notað í bíómyndinni Saving Grace.“ Myndi fjallar um ekkju á virðulegum aldri í smábæ sem tekur upp á því að drýgja tekj- urnar með grasrækt sem verður að mjög umfangsmiklum ólögleg- um landbúnaði. „Grasið mitt var notað í bakgrunninum og í öllum senum myndarinnar,“ segir Andy, greinilega ánægður með þetta sér- kennilega dagsverk. „En núna er ég atvinnulaus vegna niðurskurðar þessarar undarlegu nýju ríkis- stjórnar. Ég hef engar tekjur og sé fram á að missa húsið mitt á Eng- landi.“ Andy hefur unnið við nokk- urn fjölda bíómynda og sjónvarps- þátta, leikið og verið til ráðgjafar og komið fram sem víkingur og sjálft þrumugoðið Þór. Flytur konungi bón frá Íslandi Þegar Andy kemur næst fyrir konung sinn á Englandi mun hann flytja honum bón frá Einherjunum í Reykjavík um að þeir fái að ganga til liðs við hið öfluga The Vikings félag. Einherjarnir gera sér vonir að með 1200 manna styrk The Vikings og öllu því sem þeir eiga í fórum sínum aukist líkurnar á því að hægt sé að halda stóra víkingahátíð í Reykjavík í júlí 2014. „Við erum að reyna að byggja brýr,“ segir Andy. „Öll erum við líka víkingar og viljum veg Íslands sem mestan. Enda er landið sláandi fagurt og hér mætir sagan manni ljóslifandi. Þetta er alveg frábært.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Sverð er árásarvopn og hjá okkur verður þú að hafa lokið þjálfun og staðist próf til þess að mega sveifla sverði og taka þátt í bardögum. Vel fór á með Jóni Gnarr borgarstjóra og Andy sem útskýrði möguleikana sem Reykjavíkurborg hefur til þess að verða miðstöð víkingamenningar í heiminum. 20 viðtal Helgin 24.-26. ágúst 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.