Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.06.2011, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 10.06.2011, Blaðsíða 32
4 fótbolti Helgin 10.-12. júní 2011 H ann er hávaxinn, yfirvegaður, naut- sterkur, fljótur og með góða bolta- tækni. Það er ekki nema von að talað sé um Jón Guðna Fjóluson sem einn efnilegasta varnarmann á Íslandi í dag og lykilmann í íslenska U-21 árs landsliðinu. Drengurinn er nýbúinn að skrifa undir þriggja ára samning við belgíska liðið Beerschot og allt bendir til þess að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Fram. Og það er það sem hann hefur stefnt að lengi – að fara í atvinnumennsku. „Ég byrjaði að sparka bolta um leið og ég byrj- aði að ganga,“ segir Jón Guðni sem er fæddur á Ísafirði, bjó fyrstu ár sín í Bolungarvík en flutti síðan til Þorlákshafnar. Ég er nú ekki mikið fyrir að hrósa sjálfum mér en ég var sennilega bestur í mínum flokki í Ægi í Þorlákshöfn. Það var bara sjö manna fótbolti þar þannig að ég spilaði á yngra árinu í þriðja flokki með Hrunamönnum á Flúðum. Ég var keyrður á æfingar – klukkutíma fram og til baka. Eftir það ár fór ég í Fram og var keyrður á hverja æfingu þar til ég fékk bílpróf. Þá keyrði ég sjálfur þar til ég fékk ógeð og ákvað að flytja bara í bæinn. Foreldrar mínir hafa alltaf stutt dyggilega við bakið á mér, sem og reyndar öll fjölskyldan, og það hefur komið sé vel á erfiðum tímum,“ segir Jón Guðni sem kennir sig við móður sína, Fjólu. „Hún stendur mér næst – svo einfalt er það,“ segir Jón Guðni þegar hann er spurður út í ástæðu þess. Frá í ár vegna vaxtarkipps Og hann hefur fengið að kynnast erfiðleikum. Hann spilaði ekkert á yngsta árinu í öðrum flokki árið 2006 vegna meiðsla. „Ég var alltaf frekar lítill en stækkaði um örugglega hálfan metra á þessu eina ári,“ segir Jón Guðni og hlær. Allt fór í klessu – bæði bakið og hnén – vegna álagsins sem vöxturinn olli og hann missti eitt ár úr. „Ég var svo heppinn að hafa Ólaf Þór Guðbjörnsson sem þjálfara sem var líka sjúkraþjálfari og hann skildi alveg hvað var að og leyfði mér að hvíla. Það var auðvitað hundleiðinlegt að vera ekki með en ég efaðist aldrei um að ég myndi ná mér að fullu,“ segir Jón Guðni. Leiðin hefur svo legið upp á við hjá Jóni Guðna og segja má að hann hafi ekki litið um öxl síðan. „Ég kom góður til baka og það var síðan á elsta árinu í öðrum flokki sem ég fann að ég hafði alla burði til að komast langt. Þegar ég fór að spila reglulega með meistaraflokki gerðust hlutirnir hratt. Umboðsmenn fóru að hringja og lið höfðu áhuga. Ég hef hins vegar ekki hugsað mikið um þetta. Ég er frekar rólegur að eðlisfari og hef aldrei talið mig yfir aðra hafinn. Það breyttist ekk- ert þótt einhver lið væru að sýna mér áhuga,“ segir Jón Guðni. Hann er ekki í vafa um hver það er sem hefur mótað hann mest sem knattspyrnumann. „Það er Þorvaldur Örlygsson. Hann hefur hjálpað mér mest og ég hef bætt mig mikið undir hans stjórn. Hann er frábær þjálfari og allt annar karakter en halda mætti af viðtölum sem hann fer í. Hann er mjög hress náungi.“ Skuggi yfir gleðistund Jón Guðni og unnusta hans, Ólöf Þóra Jóhannes- dóttir, eignuðust sitt fyrsta barn 5. apríl síðastliðinn – stúlku sem fékk nafnið Ragnhildur Fjóla. Það bar þó skugga á gleðistundina því fljótlega eftir fæðingu kom í ljós að hún er með sjaldgæfan sjúkdóm. „Hún fæddist og öll sú hamingja sem fylgir því helltist yfir okkur. Maður reiknar alltaf með að allt sé eðli- legt hjá manni sjálfum – að ekkert komi fyrir. Hún greindist með Charge-heilkenni sem leggst misjafn- lega á börn. Það eru engin tvö börn eins. Það fyrsta sem við fengum að vita var að það vantaði tengingu í vinstri þumalfingurinn. Eins og staðan er núna eru sett spurningarmerki við augun og eyrun hjá henni. Það verður að koma í ljós hveru mikið hún kemur til með að sjá og heyra. Henni hefur þó geng- ið vel og þroskast betur en hægt var að vona.“ Jón Guðni segir það hafa verið mikið áfall að fá fréttirnir af dóttur sinni. „Auðvitað var það gríðar- legt sjokk og erfitt að sætta sig við það. Það tók nokkra daga að jafna sig á þessu en síðan fundum við út að það þýðir ekkert að svekkja sig. Þetta er sami leikurinn. Við vorum að eignast barn og það er alveg yndislegt. Ég hef þroskast og styrkst sem persóna við þessa lífsreynslu,“ segir Jón Guðni. Jón Guðni er fyrsti maðurinn til að viðurkenna að hann hafi, líkt og nánast allt Fram-liðið, spilað langt undir getu það sem af er þessu tímabili. „Ég hef fundið fyrir pressunni, bæði vegna sífellds tals um atvinnumennsku og síðan Evrópumótið. Það er ætlast til meira af mér en ég hef sýnt í sumar og ég get alveg viðurkennt að ég hef ekki náð að sýna mitt rétta andlit,“ segir Jón Guðni. Hann dvelur þó ekkert við fortíðina því fram undan eru tvö stórverkefni; fyrst Evrópumótið í Danmörku og síðan byrjun á atvinnumannsferli í Belgíu. Hann vonast til að bæta sig sem leikmaður í Belgíu og segir sig helst skorta meiri talanda og baráttu. „Ég er að vinna í því sérstaklega en auðvit- að er alltaf hægt að bæta sig í öllu sem fótboltamað- ur – það er endalaust hægt að bæta sig. Það er samt skondið að ég var alltaf að fá rauð spjöld í yngri flokkunum. Ég var snarvitlaus krakki sem reif kjaft við alla þegar ekki gekk vel,“ segir Jón Guðni sem ætlar að koma sér hratt og vel inn í hlutina í Belgíu. „Ég lít á Belgíu sem stökkpall í stærri deild. Ég ætla mér lengra en það,“ segir hann. Og markmiðið á Evrópumótinu er klárt: „Það er skýrt markmið hjá okkur að komast upp úr riðl- inum og gæla við sæti á Ólympíuleikunum. Fyrsti leikurinn er mjög mikilvægur. Við þurfum að byrja vel og stefnum að sigri í honum. Það er frábær andi í hópnum, liðið er gott og menn eru klárir í slaginn.“ Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is  Fótbolti EM U-21 árs landsliða Lítur á Belgíu sem stökkpall í stærri deild Jón Guðni Fjóluson er nýjasti atvinnumaður Íslands í fótbolta. Guttinn frá Bolungarvík heldur á vit ævintýranna í Belgíu þar sem hann mun leika næstu þrjú árin með Beerschot í höfuðborg demantanna, Antwer- pen. Óskar Hrafn Þorvaldsson ræddi við hann um uppvöxtinn, fótbolta- ferilinn, föðurhlutverkið og EM sem hefst á morgun, laugardag. Þetta er sami leikurinn. Við vorum að eignast barn og það er alveg yndislegt. Ég er frekar rólegur að eðlisfari og hef aldrei talið mig yfir aðra hafinn. Það breyttist ekkert þótt einhver lið væru að sýna mér áhuga Nafn: Jón Guðni Fjóluson Fæddur: 10. apríl 1989 Hæð: 1,93 m Þyngd: 82 kg Leikir/mörk í efstu deild: 56/11 A-landsleikir/mörk: 4/0 Jón Guðni Fjóluson sést hér í leik með íslenska A-landsliðinu gegn Andorra í fyrra. Ljósmynd Eggert Jóhannsson Jón Guðni handsalar samninginn við Chris Van Puyveldes, yfirmann íþrotta- mála hjá Beerschoot.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.