Dagfari - 01.12.1961, Blaðsíða 9

Dagfari - 01.12.1961, Blaðsíða 9
sjálfstæði og stjórn bolsévika hafði viðurkennt það, en þýzar hersveitir óðu um landið og hlutuðust til um borgarastyrjöld þá, sem þar geisaði. 1 september- mánuði, sama mánuðinum og alþingi samþykkti sambandslög- in, var þýzkur fursti gerður að þjóðhöfðingja í Finnlandi, þótt hann tæki þar að vísu ekki við völdum vegna uppgjafar Þjóð- verja síðar um haustið. Áður var minnzt á ráðagerðir Þjóð- verja í Eystrasaltslöndunum. Það var því engin furða þótt ís- lenzkir stjórnmálamenn hefðu nokkurn ugg um framtíðina og vildu tryggja svo sem stóð í valdi vopnlausrar smáþjóðar fullveldi og sjálfstæða tilveru íslands. Ef sóknin mikla hefði heppnazt sumarið 1918 er ekki að vita hvað Þjóðverjum hefði dottið í hug í sigurvímunni. 19. gr. sambandslaganna er bauð Dönum að birta það öllum þjóðum, að Island væri full- valda ríki og hlutlaust um alla tíð, er því dæmigerður vitnis- burður um pólitískan þroska þeirra manna, sem fengu að lokum skilað sjálfstæði Islend- inga heilu í höfn. — Mennirnir sem stóðu að sam- bandslögum Islands og Dan- merkur 1918 luku miklu lífs- verki. Að því loknu var sem þeir fengi ekki fótað sig á svið- inu, er tjaldið var dregið frá nýjum þætti í sjónleik Islands- sögunnar. Ný kynslóð stjórn- málamanna tók við hlutverkum sínum. Hinum bláeygðu hjarta- hreinu mönnum sjálfstæðisbar- áttunnar var brátt ofaukið, og nú eru þeir flestir gengnir til feðra sinna. En niðjar þeirra manna, er kenndu sig við land- vörn og sjálfstæði, og tóku við búsforráðum eftir þá, létu það verða sittt fyrsta verk, er þeir höfðu uppskorið það, sem feður þeirra höfðu til sáð, að kasta Islandi út í það „landabrutl stór- veldanna11, sem Bjarni frá Vogi óttaðist mest er hann sá draum sinn rætast um frjálst og full- valda ísland. Hlutleysinu var varpað fyrir borð af fullkomnu blygðunarleysi pólitískra ævin- týramanna. Því var nú með öllu gleymt, að hlutleysisyfirlýsing sambandslaganna var ekki nein aukasetning í þessu frelsisskjali Islendinga, heldur burðarás þess. Hinir íslenzku stjórnmálamenn, sem sömdu sambandslögin skildu vel þann einfalda sannleika, að hlutleysið er blátt áfram lífs- mót íslenzku þjóðarinnar. Hafi það verið svo árið 1918, þá gegn- ir hinu sama í enn ríkara mæli á öld kjarnorkusprengjunnar. íslenzka þjóðin kemst aldrei í sátt við sjálfa sig fyrr en hún hefur hreppt aftur það hlut- leysi, er hún lögfesti við endur- heimt fullveldis síns árið 1918. Því mætti maður ætla, að full- veldisdagur okkar, 1. desember, yrði okkur brýning til að hverfa aftur til hins ævarandi hlut- leysis, er við sórum trú og holl- ustu fyrir 43 árum. En það er ekki því að heilsa. Svo kynvillt er pólitísk tilvera þjóðarinnar orðin, að hin íslenzku börn menntagyðjunnar, sem gert hafa þennan dag að sínum degi, dirf- ast að helga 1. desember aðild Islands í hernaðarbandalagi því, sem kennt er við vestrið og Atl- anzshafið. Þannig er sálmi okkar breytt í lclám, Faðirvorinu snú- ið upp á djöfulinn. Og því er það ekki kinroðalaust að vera íslenzkur stúdent á þessum degi árið 1961. Sverrir Kristjánsson. — Sprengingar Framhald af baksíðu. ust, var einróma samþykkt mótmælaályktun. Þetta var hinn 6. september. Eftir að Ráðstjórnarríkin höfðu tilkynnt, að þau hygðust sprengja á næstunni 50 mega- tonna risasprengju, var enn um þessi mál fjallað á fundi mið- nefndar hinn 22. okt. Var þar einróma samþykkt mótmæla- orðsending til sovézkra vald- hafa. Auk þessarar orðsendingar var samþykkt ályktun, sem beint var til íslenzku þjóðar- innar. Er þar m. a. komizt svo að orði: „Jafnframt vilja samtökin eindregið vara íslenzku þjóðina við þeirri viðleitni ábyrgðar- manna hernáms íslands að not- færa sér hin geigvænlegu átök á alþjóðavettvangi til að hlekkja land okkar og þjóð enn fastar öðrum aðila hins kalda stríðs, þeim sem einn hefur gerzt sek- ur um beitingu kjarnorkuvopna og flestar og mestar tilraunir með þau gert. Samtökin ítreka eindregið þá afstöðu sína, að vopnlausri friðarþjóð sem ís- lendingum sæmi það hlutverk eitt að skipa sér á alþjóðavett- vangi í sveit hlutlausra þjóða, er standa utan hernaðarbanda- laga stórveldanna og leitast í dag við að lægja þær ógnir, sem rísa af átökum herbanda- laga.“ NÝJAR BÆKUR Vér leyfum oss að vekja athygli bókamanna á því að meðal útgáfubóka vorra í ár eru eftirtalin rit: Rit Jóns Sigurðssonar I, blaðagreinar. Bréf frá Islandi eftir Uno von Troil, með yfir 60 menn- ingarsögulegum myndum frá 18. öld. Síðustu þýdd ljóð, áður óprentaðar ljóðaþýðingar Magnúsar Ásgeirssonar. Við opinn glugga, Laust mál, eftir Stein Steinarr. Undir vorhimni, bréf Konráðs Gíslasonar. BÓKAÍTGÁFA MEMIMIMGARSJÓÐS DAGFARI 9

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/967

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.