Heimilisritið - 01.06.1945, Page 58

Heimilisritið - 01.06.1945, Page 58
„Það gleður mig, að þú hef- ur þó einhverja glóru í kollin- um“, sagði hún; varð svo litið á bréfið í hendi Önnu og bætti við: „Ég sé, að þú hefur fund- ið bréfið hans Martins“. „Já, en það stendur ekki í því hvar hann er“. Matilda hnussaði. „Myndirðu verða nokkuð undrandi, ef ég segði þér, að ég hef komist að því hvar hann heldur sig?“ „Hvað ertu að segja?!“ Anna starði á hana. „Hvar er hann? Er hann langt héðan?“ „Hann er farinn að vinna, sem hann hefði átt að hafa gert fyr- ir löngu. — Hann er farinn að vinna eins og maður“, svaraði Matilda. „Hann vinnur við byggingu flóðgarðs — og það sem algengur verkamaður“. „Nú, en hvernig —?“ Anna vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Gamla konan skýrði henni svo frá því, að hún hefði verið í kaffiboði hjá nágranna sínum daginn áður, og að þá hefði einn viðstaddra sagt, að sér hefði verið boðið að skoða nýja flóð- garðinn, sem verið væri að byggja í Hampshire. — Þegar hann gekk eftir stíflugarðinum hefði hann þekkt Martin á með- al verkamannanna, en hann hefði þó forðað sér, þegar sá, er 56 skýrði Matildu frá þessu, ætl- aði að ganga til hans. „Við verðum að fara til hans á morgun!“ hrópaði Anna. „Ég má til með að fá hann hingað. Við höfum verið aðskilin meira en nógu lengi. Ég afber það ekki lengur“. Matilda klappaði á handlegg Önnu. „Ég kem með“, sagði hún vin- gjarnlega. „Þessi vitleysa er bú- in að ganga nógu lengi“. Þær lögðu snemma af stað morguninn eftir. Önnu hafði ekki orðið svefnsamt um nótt- ina. Hún hlakkaði til að vera hjá Martin aftur, hlakkaði til að segja honum, að nú væri engin ástæða til þess fyrir þau að vera aðskilin. Þær óku í gegnum Midchurch og síðan um óbyggðu flákana í áttina að flóðgarðinum. Vegur- inn fór sífellt versnandi, en loks nálguðust þær verka- mannaskýlin og hinn volduga stíflugarð. Skyndilega sneri Matilda höfðinu snöggt til hliðar, eins og hún væri að hlusta. „Hvaða hljóð er þetta?“ Anna staðnæmdi bílinn og stökk út. Það var greinilega hrópað á hjálp í allmikilli fjar- lægð. Svo kom hún auga á dökk- hært höfuð á manni, sem flaut HEIMJLISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.