Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 22
Þjóðaratkvæðagreiðslan 20. október 2012 Vantar þig upplýsingar um kjörstaði eða hvar þú ert á kjörskrá? Upplýsingar um framkvæmd þjóðaratkvæða- greiðslunnar er að finna á kosning.is Í sömu viku og ég fékk að sjá kápuna á nýju bókinni minni, Vígroða, fengum við hjónin að vita að drekinn hafði tekið sig upp aftur,“ segir Vilborg Davíðs- dóttir rithöfundur en á kápu bókarinnar er mynd af drekahöfði sem Vilborgu þótti táknrænt og hún gat ekki annað en brosað yfir því hvað lífið getur verið fullt af tilviljunum. Vilborg hefur verið iðin við skáldsagnaskriftir. Fyrsta bók hennar, Við Urðarbrunn, kom út 1993 og síðan hefur fjöldi bóka komið frá henni. Sumar bókanna hafa komið út í Evrópu og fyrr í ár kom bók hennar, Galdur, út í Bandaríkjunum undir titlinum On the Cold Coast. Vilborg hefur að auki komið víða við á íslenskum fjölmiðlum og var lengi með blaðamannabakteríuna. Enda liggur á bak við bækur hennar oft mikil rannsóknarvinna. Þannig er nýjasta bók hennar sjálfstætt framhald af Auði, bók sem kom út fyrir þremur árum og fjallar um Auði djúpúðgu. Hvað heitir mamma þín? Vilborg er með mastersgráðu í þjóðfræði sem hún lauk að hluta í Edinborg 2006, sama ár og mað- urinn hennar greindist fyrst með heilakrabbamein. Eðlilega urðu við þau tíðindi mikil kaflaskil í lífi fjölskyldunnar. „Þetta var skrítið tímabil en við höfðum haft um það grun að ekki væri allt með felldu í einhvern tíma. Í raun var þetta þannig að við komum heim til Íslands frá Edinborg um sumarið, árið 2006, til þess að gifta okkur. Þá fann ég fyrsta merki um að eitthvað væri ekki í lagi. Björgvin var að setja saman boðskortalistann fyrir veisluna þegar hann spyr mig vandræðalegur hvað móðir mín heitir. Þá fórum við svona að átta okkur á að ekki væri allt eins og það ætti að vera.“ Fjölskyldan flaug aftur til Edin- borgar eftir brúðkaupið og í mjög viðburðaríkri viku í nóvember greinist Björgvin með heila- krabbamein. „15. nóvember greinist Björgvin með heilaæxli, 16. nóvember verð- ur hann 41 árs og 17. nóvember útskrifast hann úr mastersnámi í sálfræði. Þetta var svo undarleg vika,” segir Vilborg. Hún segir að þau hafi verið mjög lánsöm að vera í Edinborg á þessum tíma en Björgvin komst þar undir hendur eins færasta skurðlæknis í Evrópu. Lækninum tókst að fjar- lægja helminginn af æxlinu og geislameðferð átti hefta frekari út- breiðslu meinsins sem eftir sat. „Við vissum mjög fljótlega að þetta væri illkynja,” útskýrir Vilborg: „Heilakrabbamein. Við þorðum samt aldrei að nota það orð á þessum tíma og það var lengi þannig.” Aðspurð hversvegna segir hún ákveðna ógn hvíla á orðinu: „Stöku heilaæxli þurfa ekki að vera krabbamein, það er því þægi- legra að tala um þau þannig.” Húmorinn dregur úr ógninni Meðferðin úti í Skotlandi gekk vel og Vilborg segir Björgvin hafa fengið mjög væg einkenni sjúkdómsins. Fjölskyldan flutti síðan heim til Íslands á Hallveig- arstíginn og í fyrstu átti Björgvin í erfiðleikum með að muna nöfn og slíkt: „Kötturinn okkar heitir til að mynda Hallveig af því við búum hér á Hallveigarstíg. Það er einhvernveginn betra fyrir hann að muna hlutina ef það er eitthvað tvennt sem að tengir þá,” segir Vilborg kímin og útskýrir að það megi alveg hlæja að heilaæxlum og því sem fylgir: „Það dregur máttinn úr ógninni að hafa húmor. Maðurinn minn er endalaust að mismæla sig og við að misskilja hvort annað. Það getur oft af sér mjög spaugileg atvik.” Meinið lá í dvala í sex ár en á því tímabili þurfti Björgvin þó að vera undir ströngu eftirliti lækna. Á þeim tíma lauk hann tveggja ára klínískri gráðu í sálfræði. Það var svo í september síðastliðnum að það kom að því sem Vilborg segir  Vilborg DaVÍðsDóttir er að gefa út nýja bók um auði Djúpúðgu Að berjast við dreka Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur er að gefa út skáld söguna Vígroða, sjálfstætt framhald Auðar sem kom út fyrir þremur árum. Hún hefur lengi haft mikinn áhuga á víkinga tíma bilinu og fornum tímum. Sjálf berst hún við dreka í sínu lífi í 101 Reykjavík. Sá dreki birtist henni og manninum hennar, Björgvin Ingimars syni, í formi heila krabba meins sem tók sig upp aftur nú í september. 22 viðtal Helgin 19.-21. október 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.