Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Side 16

Fréttatíminn - 07.09.2012, Side 16
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu Gómsætar, einfaldar og fljótlegar m ú f f u r í h v e r t m á l bbbb „Það er algjör óþarfi að láta íhaldssemina halda sér frá þessari bók því hún er þrælsniðug á allan hátt.“ Sólrún lilja r agnarSdóttir / dV Í leikskóla sagði hann alltaf: Ég ded ekki, ded ekki. Það þýddi ég get ekki. En hann er búinn að sýna núna að hann getur,“ segir Erla Margrét Sverrisdóttir, föðuramma hins rétt tæplega tvítuga Jóns Margeirs Sverrissonar, gulldrengs Íslands. „Hann uppskar eins og hann sáði.“ Hún dáist að syni sínum, Sverri Gíslasyni, sem er á miðjum fimm- tugsaldri. Hann hefur síðustu árin verið einstæður faðir þriggja unglinga í Kópavogi. Jón Margeir er elstur, svo Gísli Freyr og loks Erla Margrét. Það var tilfinninga- rík stund þegar fjölskyldan horfði á þann elsta teygja sig fyrstur í bakkann í ólympíusundlauginni með Ástralann Daniel Fox á hæl- unum. Sá hafði dregið hann uppi. Í áhorfendaskaranum fylgdust faðir, amma, stúpafi, systkinin, móðir og afabarn með ásamt fjölda Ís- lendinga. „Ég, amma hátt á sjötugsaldri, hoppaði og öskraði. Ég hreinlega varð brjáluð. Þetta augnablik þeg- ar hann kom fyrstur að bakkanum, það brjótast allar tilfinningar út. Ég hefði ekki getað ímyndað mér þetta. Þetta er meiriháttar,“ segir hún. „Og tilfinningaflóran þegar pabbi hans kemur með hann labb- andi út úr sundhöllinni. Ég var nú hætt að gráta, en að sjá hann standa þarna. Ég var með ekka. Það brustu allir í grát. Þetta voru hreinar gleðitilfinningar enda ein- stakur viðburður; „Once in a lif- time“.“ Brotnaði saman af gleði Gull á ólympíuleikum fatlaðra. Jón Margeir Sverrisson bætti sig um tvær sekúndur í tvö hundruð Með ekka eftir sigur á ólympíuleikum Jón Margeir Sverrisson, nítján ára Kópavogsbúi, setti heims- og ólympíumet þegar gómar hans gripu í bakkann í London. Fjölskyldan grét af gleði enda hafði pilturinn, sem hafði enga trú á sér í leikskóla, sýnt að hann getur það sem hann ætlar sér. Jón Margeir eyðir 25 klukkustundum á viku í sundlaug. Hann er elstur þriggja systkina sem búa hjá einstæðum föður sínum, Sverri Gíslasyni. Saman hafa þeir lagt allt í sölurnar svo Jón Margeir kæmist á toppinn. Sverrir og móðir hans, Erla Margrét, segja frá leið þessarar samheldnu fjölskyldu að gullinu. Erla Margrét, systir Jóns Margeirs, og móðir hans, Kristjana Jóhanna, fagna hér með Jóni fyrir utan sundhöllina sigrinum og gullverðlaununum í 200 metra skriðsundi. Stundin var mjög tilfinningarík og lýsir amma hans því hvernig hún grét með ekka af gleði. Mynd/Eva Björk Ægisdóttir Myndasería af Jóni litlum og til dagsins í dag. Myndir/Ólafur Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Framhald á síðu 20 16 viðtal Helgin 7.-9. september 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.