Læknablaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 93
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
445
Læknir í stjórn ÁTVR, er það eðlilegt?
Opið bréf til Þórarins Sveinssonar yfirlæknis
Get ekki þagað lengur
Það var í september síðast-
liðnum sem ég frétti að einhver
læknir sæti í stjórn Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins. Fyrst
neitaði ég að trúa, því svona
bara gerðu læknar ekki. Þessu
mátti ég þó kyngja og hugsaði
þá sitt af hverju. Ekki þjónar
tilgangi að þrykkja þær hugsanir
á letur enda voru þær barn síns
tíma, augnabliksins. Síðar
þegar ég fékk að vita hvaða
læknir átti í hlut fór ég að hugsa
jákvætt. Gat það verið forvörn-
um í hag að hafa lækni í stjórn
ÁTVR? Hvernig getur fyrirtæki
sem selur eitur haft hag af því að
í stjórn þess sitji maður sem
vinnur gegn því að fólk kaupi og
noti eitrið? Þá kom annað áfall,
ég fékk í hendur tillögur að regl-
um fyrir ÁTVR um innkaup á
tóbaki og báru þær hreint engin
merki þess að stjórn fyrirtækis-
ins hygðist vinna að tóbaks-
vörnum. Svo langt gekk ég í já-
kvæðninni að spyrja hvort
mögulegt væri að læknirinn
stundaði njósnir fyrir tóbaks-
varnir á þessum vettvangi? Það
var á þessu stigi þankagangsins
sem ég hringdi í þig. Tókstu því
vel og gat ég ekki betur skilið en
að með því að taka sæti í stjórn
ÁTVR hefðir þú viljað koma
þar að læknisfræðilegum sjónar-
miðum. Hljómar vel en er
kannski óþörf umhyggja, því í
tóbaksvarnalögum segir bein-
línis „Fjármálaráðuneytið skal
hafa samráð við tóbaksvarna-
nefnd um stefnumörkun varð-
andi innflutning og verðlagn-
ingu tóbaks“ og ennfremur
„Leita skal álits nefndarinnar
um allar reglugerðir sem snerta
tóbaksvarnir og tóbakssölu“. í
tóbaksvarnanefnd hefur jafnan
verið læknir og auk þess hafa
þeir læknar sem það vilja greið-
an aðgang að nefndinni til að
koma skoðunum sínum á fram-
færi. Aftur að símtalinu. Beiðni
minni um frekari skýringar
svaraðir þú með löngu máli.
Innihald þess fannst mér lítið
eiga skylt við læknisfræði og
stakk upp á að þú kynntir sjón-
armið þín í Læknablaðinu, þar
sem margir læknar undruðust
það hlutskipti sem þú hefur val-
ið þér. Ég hefði trúlega ekki
hreyft þessu máli opinberlega ef
ekki hefði birst grein eftir þig í
víðlesnasta dagblaði landsins
nokkru eftir símtal okkar. Inni-
hald hennar krefst viðbragða
ekki síst þar sem ekkert heyrðist
frá þér í Læknablaðinu. Ég vel
Læknablaðið sem vettvang, þar
sem ég tel málið varða túlkun á
siðareglum lækna, hvað lækni
sæmi og hvað ekki.
Moggagreinin
í Morgunblaðsgrein 25.11.
1996 berð þú á borð fyrir lesend-
ur svipað og fyrir mig í síman-
um. Undir greininni ertu titlað-
ur sem yfirlæknir og því líklegt
að hinn almenni lesandi telji að í
skrifum þínum byggir þú á
læknisfræðilegumrökum. Gríp-
um þá niður í Morgunblaðs-
greinina, en þar segir meðal
annars um stjórn ÁTVR; „Eftir
að stjórnin hóf störf hafa verið
settar reglur um hvernig staðið
skuli að innkaupum á tóbaki".
Hver verður helsta niðurstaða
þessara reglna? Jú að fjöldi tó-
bakstegunda á íslandi vex.
Ekki ráða þar ferðinni lækn-
isfræðileg sjónarmið, samanber
næstu tilvitnun. „Meðan tó-
bakssala er leyfð og óbreytt
skipulag er á þeirri verslun, ber
ríkisvaldinu og þar með stjórn
fyrirtækisins að gæta þess að
farið sé að lögum og jafnræðis-
reglu gætt hvað innkaup varðar,
um leið og framfylgt er tak-
markandi reglum er hafa áhrif á
fjölda tóbakstegunda á markað-
inum hér.“ Á að skilja fyrri
hluta þessarar fullyrðingar
þannig að lækninum í stjórn
ÁTVR beri fremur að leitast við
að tryggja að jafnræðisregla
gagnvart tóbaksframleiðendum
sé haldin en að læknisfræðilegar
staðreyndir ráði ferðinni? Ella
yrði, í ljósi læknisfræðilegra
staðreynda, ekkert það lagt til
sem ylli fjölgun á tóbakstegund-
um, heldur hið gagnstæða með
það sem langtímamarkmið að
hætta alveg sölu tóbaks. Vissu-
lega á það eftir að sýna sig hvað
nákvæmlega er átt við með
„takmarkandi reglum“ sem þú
nefnir, en ennþá er það fjölgun
tóbakstegunda og ekki fækkun
sem hlýst af nýju reglunum. Síð-
ar í greininni segir: „Eins og
þekkingu okkar er nú háttað er
mikil þverstæða fólgin í því að
ríkisvaldið skuli annast allan
innflutning og dreifingu tóbaks
til verslana hérlendis um leið og
því er ætlað að vinna að setn-