Læknablaðið - 15.02.1999, Side 95
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
181
Læknaskop
Fræðslustofnun LÍ býður upp á
læknaskop (medisinskan húmor) föstudaginn 5. mars næstkomandi ki. 20:00 í Hlíða-
smára 8, Kópavogi.
Fundarstjóri: Sigurður Guömundsson landlæknir.
Efni:
1. Kynning á nýstofnuðum norrænum samtökum um læknaskop (Nordisk Selskap for
Medisinsk Humor): Bjarni Jónasson.
2. Rímskop: Hjálmar Freysteinsson.
3. Skopmyndir úr starfi lækna: Bjarni Jónasson.
4. Svensk medisinsk humor, finns den?: Mats Falk heimilislæknir frá Smálöndum í Svíþjóð.
5. Frjáls innlegg fundarmanna, allt að tveimur mínútum á mann, sem tilkynnist fundarstjóra
á staðnum.
Allir læknar velkomnir meðan húsrúm leyfir. Menn þurfa ekki að telja sig til húmorista
til að mæta á fundinn. Boðið verður upp á veitingar í lok fundarins.
Undirbúningsnefndin
Sameiginlegt þing
Skurðlæknafélags íslands
og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags
íslands 1999
verður haldið á Hótel Sögu fimmtudaginn 8. og föstudaginn 9. apríl. Ágrip erinda berist
fyrir 1. mars 1999. Þau ágrip sem samþykkt verða af vísindanefnd félaganna til flutnings á
þinginu verða birt í Læknablaðinu. Ágripin skulu send í tölvupósti sem viðhengi til Gunnhildar
Jóhannsdóttur, sjá netfang hér að neðan. Ágrip sem ekki er unnt að senda þannig skulu
send á disklingi til ritara þingslns.
Við lok þingsins verða verðlaun afhent fyrir bestu erindin eins og verið hefur.
Eftirtalin atriði komi fram í þeirri röð sem hér segir:
- Titill ágrips, nöfn og vinnustaðir höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður og
ályktanir.
- Nafn flytjanda skal feitletrað.
- Hámarkslengd ágripa er 1.800 letureiningar (characters).
- Höfundar skulu láta þess skýrt getið hvaða útbúnað í fundarsal þeir óska eftir að nota við
flutning erindisins.
Nánari upplýsingar um þingið veita:
Bjarni Torfason Landspítalanum Aðalbjörn Þorsteinsson Landspítalanum
Magnús Kolbeinsson Sjúkrahúsi Akraness Kristinn Sigvaldason Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Margrét Oddsdóttir Landspítalanum Ástríður Jóhannesdóttir Landspítalanum
Aron Björnsson Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Ritari þingsins er Gunnhildur Jóhannsdóttir handlækningadeild Landspítalans, sími: 560
1330, bréfsími: 560 1329, netfang: gunnhild@rsp.is