Fréttatíminn - 15.10.2010, Síða 12

Fréttatíminn - 15.10.2010, Síða 12
LÍMMIÐA LOTTÓ KANANS, N1 OG SPARK ER Í FULLUM GANGI! KOMDU VIРÁ NÆSTU N1 STÖРOG FÁÐU LÍMMIÐA Í AFTURGLUGGANN  KOMDU Í SIGURLIРKANANS FM100.5 ÞAR SEM ÞÚ ERT NÚMER EITT Í RÖÐINNI  B jörgólfur Guðmundsson er gjaldþrota. Magnús Þor-steinsson er gjaldþrota. Björgólfur Thor Björgólfsson hef- ur sjálfur viðurkennt að hann hafi verið tæknilega gjaldþrota áður en hann gekk frá samkomulagi við lánardrottna sína. Staða Samson- hópsins í dag er því nokkuð önnur en hún var síðla árs 2002 þegar þeir komu eins og stormsveipur inn í ís- lenskt viðskiptalíf með milljarða í koffortinu eftir framúrskarandi vel heppnað ævintýri í Rússlandi. Björgólfur Thor sendi frá sér til- kynningu 21. júlí síðastliðinn þar sem greint var frá því að hann hefði gengið frá samkomulagi um heild- aruppgjör við erlenda og innlenda lánardrottna. Í því felst að hann heldur yfirráðum yfir fyrirtækjum sínum, meðal annarra Actavis, Play og CCP, en allur arður næstu árin gengur til lánardrottna. Jafn- framt felur samkomulagið í sér að ekki verði gengið að persónulegum ábyrgðum sem Björgólfur Thor var í, á meðan það er í gildi. Þetta þýðir með öðrum orðum að ef viðunandi verð fæst fyrir Actavis getur Björg- ólfur Thor komist fljótt aftur á skrið sem viðskiptajöfur. Björgólfur Guðmundsson var úr- skurðaður gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur 31. júlí 2009. Skuldir og persónulegar ábyrgðir Björgólfs námu um 96 milljörðum og er þetta langstærsta persónulega gjaldþrot á Íslandi. Ljóst er að litlar sem engar eignir fást úr þrotabúinu. Magnús Þorsteinsson var úr- skurðaður gjaldþrota í Héraðs- dómi Norðurlands eystra 4. maí 2009. Rúmlega milljarðs krafa frá Straumi-Burðarási keyrði Magnús í þrot en gjaldþrot hans nemur á þriðja tug milljarða. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is  SelfoSS: Svala Möller JónSdóttir (43) og vilMundur SigurðSSon (42) flytJa til danMerkur í náM Seldu húsið og innbúið og láta drauminn rætast Nú þegar börnin eru uppkomin gefst tími til að stunda nám erlendis „Kreppa! Skuldavandi? Nei, alls ekki, við stefnum að því að flytja til Danmerkur og láta drauminn rætast,“ segir Svala Möller Jónsdóttir, þjónustu- fulltrúi á Selfossi. Hún og maðurinn hennar, Vil- mundur Sigurðsson, ætla að stunda nám þar ytra. „Við höfum nú ekki ákveðið hvað við viljum læra, heldur ætlum að skoða hvað er í boði þegar við komum út. Þetta er draumur sem við höfum brætt með okkur í mörg ár, en við höfum ekki viljað hrófla við krökkunum. Nú hafa þau lokið framhaldsnámi og okkur því ekki til setunnar boðið,“ segir hún og hristir ungviðið úr hreiðrinu. Þau hjónin hafa selt húsið sitt og auglýstu innbúið á sölusíðu Barnalands á netinu nú fyrir helgi. „Við seldum allt frá sófasetti niður í teskeið. Við fengum þokkalegt verð fyrir eigurnar enda leyfði ég fólki að bjóða í en hækkaði verðið, vildi ég meira. Húsgögnin runnu út eins og heitar lummur.“ Hjónin stefna á að fara út í nóvember og skila húsinu til nýrra eigenda „korteri fyrir flug“. Þau reikna með dóttur sinni út að ári liðnu en hana dreymir um að verða söngkennari og vill nema í Kaupmannahöfn. Sonurinn fer í háskólanám hér heima. En hvenær koma þau svo aftur heim? „Sú hugsun hefur aldrei komið í kollinn á mér; eftir viku, ár eða bara í kistunni. Við hugsum ekki þannig. Kannski erum við einmitt að flytja heim til Danmerkur.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is „Húsgögnin runnu út eins og heitar lummur.“ Hjónin Svala Möller Jónsdóttir og Vilmundur Sigurðsson láta drauminn rætast. Ljósmynd/úr einkasafni  viðSkiPti Staða SaMSon-ÞríeykiSinS Tveir í tjóni og einn uppi- standandi Björgólfur Thor Björgólfsson gerði samkomulag við lánardrottna sína en hinir tveir meðlimir Samson-þríeykisins eru gjaldþrota. Afdrif eignarhaldsfélaga í eigu Samson-þríeykisins: Landsbanki Íslands gjaldþrota Samson átti rúmlega 40% Samson eignarhaldsfélag gjaldþrota 50% Bell Global/50% Givenshire Bell Global Investments væntanlega gjaldþrota 50% Samson (BG) Givenshire Equites væntanlega gjaldþrota 50% Samson (BTB) Straumur-Burðarás nauðasamningar Samson Global Holdings Sarl rúml. 34% Samson Global Holdings Sarl væntanlega gjaldþrota 50% Rosetta/50% Rainwood Rainwood S.A. væntanlega gjaldþrota BG Rosetta Investors Ltd væntanlega gjaldþrota BTB Hansa ehf. gjaldþrota BG Ólafsfell ehf. gjaldþrota BG Forsíða ehf. gjaldþrota BG Árvakur tæknilega gjaldþrota Ólafsfell og Forsíða West Ham United PLC fjárhagslegir erfiðleikar Hansa HF Eimskipafélag Íslands nauðasamningar 33% Grettir/33% Frontline Holding Icelandic Group tæknilega gjaldþrota 32% Grettir/11% Frontline Holding Flugfélagið Atlanta hf. fjárhagsleg endurskipul. Fjárfestingafélagið Grettir gjaldþrota BG/BTB Grettir Eignarhaldsfélag S.A. gjaldþrota BG/BTB Frontline Holding SA væntanlega gjaldþrota MÞ Jointrace Limited væntanlega gjaldþrota eigandi XL XL Leisure Group plc gjaldþrota Actavis Group fjárhagsleg endurskipul. Novator Pharma Holding Novator Pharma Holding skuldir í hlutafélögum BTB Magnús Þorsteinsson gjaldþrota Björgólfur Guðmundsson gjaldþrota Björgólfur Thor Björgólfsson samkomulag við lánardrottna BG=Björgólfur Guðmundsson, BTB=Björgólfur Thor Björgólfsson, MÞ=Magnús Þorsteinsson Samson-þríeykið Magnús Þorsteinsson er gjaldþrota, Björgólfur Thor er uppistandandi en Björgólfur faðir hans gjaldþrota. 12 fréttir Helgin 15.-17. október 2010

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.