Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Side 41
Starfsferill Einar fæddist í Bolungarvík 2.12. 1955 og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MÍ 1975 og BA- prófi í stjórnmálafræði frá University of Essex í Bretlandi 1981. Einar var blaðamaður við Vísi 1975-77, skrifstofumaður hjá Einari Guðfinnssyni hf. 1979-80 og 1981- 83 og útgerðarstjóri þar 1983-91. Hann var varaþm.fyrir Sjálfstæðis- flokkinn á Vestfjörðum 1980, 1984, 1985, 1988, 1989 og 1990, alþm. Sjálf- stæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi 1991-2003 og alþm. Norðvestur kjör- dæmis frá 2003, var formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins 2003- 2005, sjávarútvegsráðherra frá 2005 og er sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra frá 2007. Einar sat í stjórn SUS 1975-77, í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1981- 91, var ritstjóri Vesturlands 1977-91, var formaður fræðsluráðs Vestfjarða 1982-90, sat í ýmsum nefndum Bol- ungarvíkurkaupstaðar á árunum 1983-91, var fulltrúi á Fiskiþingi frá 1985, í stjórn Útvegsmannafélags Vestfjarða 1983-88, var formaður Fjórðungssambands fiskideilda á Vestfjörðum um nokkurra ára skeið frá 1988, formaður stjórnar Fiskifé- lags Íslands 1994-98, í stjórn Byggð- arstofnunnar frá 1995, var formað- ur byggðanefndar forsætisráðherra 1998-99, í hafnarráði frá 1999, sat í Fjárlaganefnd 1991-95, félagsmála- nefnd 1991-99, landbúnaðarnefnd 1991-95, samgöngunefnd 1995-99 og var formaður hennar, kjörbréfanefnd 1995-2005 og formaður hennar 1999- 2005, sat í utanríkismálanefnd 1999- 2005, sjávarútvegsnefnd 1999-2005 og formaður hennar 1999-2003, sat í sérnefnd um stjórnarskrármál 1999- 2003 og formaður hennar 1999-2000, sat í efnahags- og viðskiptanefnd 2000-2003 og formaður hennar 2003. Hann sat í Íslandsdeild Alþjóðaþing- mannasambandsins 1991-2005 og var formaður hennar 1998-2005 og sat í Íslandsdeild þingmannaráð- stefnunnar um Norðurskautsmál 2004-2005 og var formaður hennar. Fjölskylda Einar kvæntist 12.9. 1981, Sig- rúnu Jóhönnu Þórisdóttir, f. 28.12. 1951, kennara. Hún er dóttir Þóris Sigtryggssonar, f. 22.6. 1919, d. 15.12. 2004, sjómanns, og Sigrúnar Jóhann- esdóttur, f. 9.9. 1915, d. 12.8. 1980, húsmóður. Börn Einars eru Guðfinnur Ólafur, f. 11.6. 1982, viðskiptafræð- ingur í Reykjavík; Sigrún María, f. 4.2. 1987, stúdent frá Kvennaskólanum í Reykjavík; Pétur, f. 27.12. 1990, versl- unarskólanemi. Systkini Einars eru Haraldur, f. 25.11. 1957, sölustjóri í Hafnarfirði, kvæntur Önnu Rós Bergsdóttur kennara og eiga þau fjögur börn; Guðrún, f. 8.7. 1961, iðjuþjálfi, MA í Health Administration, og starfs- maður við Landlæknisembættið, bú- sett á Álftanesi. Foreldrar Einars: Guðfinnur Ein- arsson, f. 17.10. 1922, d. 27.8. 2000, forstjóri í Bolungarvík, og k.h., María Kristín Haraldsdóttir, f. 17.4. 1931, húsmóðir, nú búsett í Hafnar- firði. Ætt Guðfinnur var sonur Einars, út- gerðarmanns og forstjóra í Bolung- arvík Guðfinnssonar, útvegsb. við Djúp Einarssonar, smiðs á Hvíta- nesi, bróður Helga sálmaskálds og forstöðumanns Prestaskólans, föð- ur Jóns biskups; Álfheiðar, ömmu Sigurðar prófessors og Páls ráðu- neytisstjóra Líndal, og föður Tóm- asar læknis, afa Ragnhildar Helga- dóttur, fyrrv. ráðherra. Einar var sonur Hálfdánar, prófasts á Eyri Einarssonar og Álfheiðar Jónsdótt- ur, lærða, pr. á Möðruvöllum Jóns- sonar. Móðir Guðfinns var Kristín Ólafsdóttir Thorberg, systir Bergs Thorberg landshöfðingja og Hjalta, langafa Jóhannesar Nordal seðla- bankastjóra, föður Beru listfræð- ings, Ólafar bókmenntafræðings, Salvarar heimspekings og Mörtu leikara. Kristín var dóttir Ólafs Thorberg, pr. á Breiðabólstað. Móð- ir Einar Guðfinnssonar var Halldóra Jóhannsdóttir, b. á Rein í Skagafirði Þorvaldssonar og Ingibjargar Guð- mundsdóttur. Móðir Guðfinns var Elísabet Hjaltadóttir, sjómanns í Bolung- arvík Jónssonar, af Ármúlaætt við Djúp. Móðir Elísabetar var Hildur Elíasdóttir, af Eldjárnsætt við Djúp. María Kristín er dóttir Haralds, kaupmanns á Sauðárkróki, bróð- ur Olgeirs, bakara á Akureyri, föð- ur Einars alþm. og formanns Sósí- alistaflokksins. Haraldur var sonur Júlíusar, keyrara í Barði á Akureyri Kristjánssonar, b. á Kroppi Jóhann- essonar. Móðir Haralds var María Flóventsdóttir, b. á Syðri-Leik- skálaá í Köldukinn Jónassonar, og Guðrúnar Sigurðardóttur. Móðir Maríu Kristínar var Guðrún, syst- ir Magnúsar, kennara og bæjar- fulltrúa á Sauðárkróki. Guðrún var dóttir Bjarna, járnsmiðs á Sauðár- króki Magnússonar, b. á Lýtings- stöðum Bjarnasonar, b. á Halldórs- stöðum Jónssonar, b. á Marbæli Jónssonar. Móðir Bjarna járnsmiðs var Guðrún, systir Þorsteins, nálar- smiðs í Miklagarði, langafa Bjarna Th. Rögnvaldssonar, pr. og skóla- stjóra. Guðrún var dóttir Arnþórs, b. á Krithóli Arnþórssonar, b. í Ás- búðum á Skaga Björnssonar. Móð- ir Guðrúnar var Kristín Jósefsdóttir frá Strandhöfn á Vopnafirði. DV Ættfræði föstudagur 8. júní 2007 41 Framvegis mun DV birta tilkynning- ar um stórafmæli, afmælisbörnum að kostnaðarlausu. Tilkynningarnar munu birtast á ættfræðiopnunni sem verður í helgarblaði DV á föstudög- um. Með stórafmælum er hér átt við 40 ára, 50 ára, 60 ára, 70 ára, 75 ára, 80 ára, 85 ára, 90 ára, 95 ára og 100 ára afmæli. Þær upplýsingar sem hægt er að koma á framfæri í slíkum tilkynn- ingum eru nafn afmælisbarnsins, fæðingardagur þess og ár, starfsheiti, heimilisfang, nafn maka, starfsheiti maka, nöfn barna (án fæðingardags, starfsheitis eða maka), nöfn foreldra afmælisbarnsins og tilkynning um gestamóttöku eða önnur áform varð- andi afmælisdaginn. Á hverjum föstudegi verða birtar slíkar tilkynningar um þá sem eiga afmæli á föstudeginum sem blaðið kemur út á til fimmtudags í vikunni á eftir. Þannig verða tilkynningarnar um afmæli á sjálfum útgáfudeginum og næstu viku fram í tímann. Senda skal afmælistilkynningar á netfangið kgk@dv.is. Tilkynningarn- ar verða að berast blaðinu eigi síðar en kl. 15 á miðvikudegi. Það er afar brýnt að þeim fylgi skýr andlitsmynd af afmælisbarninu. AfmælistilkynningAr á ættfræðisíðu MAÐUR VIKUNNAR Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Veisla í miðborginni Veislukompaníið er alhliða veislu- og fundaþjónusta, nýr og spennandi valkostur í miðborginni. Þú gengur að fyrsta flokks húsnæði með öllum tæknibúnaði, frábærum veitingum og þjónustu á besta stað í bænum. Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnað- ar-ráðherra, hefur mikið verið í fréttum að undanförnu og á eftir að vera í sviðsljósi fjöl- miðlanna á næstunni, vegna hinnar svörtu skýrslu Hafrann- sóknarstofnunnar. Hann hefur kvatt til þverpólitískrar um- ræðu og samráðs um viðbrögð við skýrslunni en getur þess í leiðinni að hann hljóti að bera hina pólitísku ábyrgð á endan- legum viðbrögðum. Ýmislegt bendir því til þess að hann eigi eftir að sigla krappan pólit- ískan sjó milli skers og báru á næstunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.