Búskapur hins opinbera 1980-1989 - 01.03.1991, Page 28
Mynd 2.4
Breytingar á umfangi hins opinbera
Vísitölur 1980 = 100
■150
■140
•130
■120
■110
■100
...............................................-90
1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989
21% umfram hagvöxt samkvæmt þessum mæli-
kvarða og er þá yfirtaka orkuskulda ekki reikn-
uð með. Opinber útgjöld voru 31,6% af vergri
landsframleiðslu í upphafi áratugarins en 39,3%
á árinu 1989 eins og áður greinir, eða 38,1% af
VLF séu yfirteknar orkuskuldir dregnar frá.
2.3 Starfsemi og afkoma hins opinbera.
Til eru ýmsir mælikvarðar sem notaðir eru til
að mæla afkomu hins opinbera. Algengastir
þeirra eru rekstrarjöfnuður, tekjuafgangur/halli
og lánsfjárþörf. Samhengi þeirra má sýna með
eftirfarandi yfirliti:
Tekjur............................................ (1)
- Rekstrargjöld .................................. (2)
Rekstrarjöfnuður.......................... (l)-(2)=(3)
(Hrein sparnaður)
-Fastafjárútgjöld................................. (4)
Tekjuafgangur/halli ....................... (3)-(4) = (5)
- Kröfu og hlutafjáraukning........................ (6)
Hrein lánsfjárþörf......................... (5)-(6) = (7)
- Lántökur, nettó................................... (8)
Greiðslujöfnuður ........................ (7)-(8)=(9)
(Breyting sjóðs og bankareikn.)
Rekstrarjöfnuður eða sparnaður mælir mis-
mun rekstrartekna og rekstrargjalda, og gefur til
kynna hversu mikið hið opinbera hefur afgangs
úr rekstri til fastafjárútgjalda og kröfu- og hluta-
fjáraukningar. Tekjuafgangur/halli mælir mis-
mun tekna og rekstrar- og fastafjárútgjalda, eða
m.ö.o. peningalegan sparnað hins opinbera.
Þessi jöfnuður gefur til kynna hvort hið opin-
bera leggur öðrum aðilum hagkerfisins til
fjármagn nettó eða tekur til sín fjármagn. Hrein
lánsfjárþörf mælir svo mismun heildartekna og
heildarútgjalda. Hún mælir hversu mikið fé hið
opinbera þarf að taka að láni frá öðrum aðilum
hagkerfisins til að geta staðið straum af öllum
útgjöldum sínum, þar með talinni aukningu
kröfu- og hlutafjár, eða m.ö.o. hina hreinu
eftirspurn hins opinbera eftir lánsfé. Hvaða
jöfnuður er valinn til að mæla afkomu hins
opinbera ræðst yfirleitt af tilgangi slíkrar af-
komumælingar.
Afkoma hins opinbera á tímabilinu 1980 til
1989 samkvæmt ofangreindum mælikvörðum
kemur fram á mynd 2.5 og í töflu 2.1. Þar sést að
rekstrarafkoma hins opinbera hefur verið mjög
góð á þessum árum eða um 6% af vergri lands-
framleiðslu að meðaltali. Afkoman hefur þó
versnað frá byrjun áratugarins er hún var um
7'/2% af vergri landsframleiðslu í um 414% nú í
lok hans. Tekjujöfnuðurinn sýnir að um tekjuaf-
Mynd 2.5
%
Afkoma hins opinbera
Hlutfall af vergri landsframleiðslu
%
19801981 198219831984 1985 19861987 1988 1989
S5S Rekstrafafkoma m Tekjuafkoma
26
1