Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Page 16

Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Page 16
a. Framleiósla hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu. Á árinu 1992 nam verg landsframleiðsla ríflega 383 milljörðum króna, en landsframleiðsla er summa vöru og þjónustu sem framleidd er í landinu á einu ári og notuð er til neyslu, Qárfestingar eða útflutnings. Meginhluti þessarar framleiðslu á sér stað í einka- geiranum, en hið opinbera hefur hins vegar staðið að framleiðslu k 17,7% af landsframleiðslu ársins 1992, og þá einkum þjónustu, eins og réttar-, fræðslu- og heilbrigðisþjónustu. b. Vinnuafl í þjónustu hins opinbera sem hlutfall af heildarvinnuafli. Á árinu 1992 voru heildarársverk í landinu um 124 þúsund. Af þeim voru 23,6 þúsund unnin í þágu hins opinbera eða um 19,1% af heildinni. Mynd 3.3 Umfang hins opinbera 1992, mismunandi mælikvarðar í hlutfalli við VLF. Opinber Opinbert Samneysla Samneysla Heildartekjur Heildargjöld framleiðsla vinnuafl og fjárfesting c. Samneysla og jjárfesting hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu. Þessi mælikvarði sýnir þann hluta landsframleislunnar sem notaður er af hinu opinbera. Á árinu 1992 námu samneysluútgjöldin 78,9 milljörðum króna eða sem svarar 20,6% af landsframleiðslu. Fjárfestingarútgjöld voru hins vegar 4,2% af VLF. d. Heildartekjur og heildarútgjöld hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu. Á árinu 1992 námu heildartekjur hins opinbera rúmlega 138,6 milljörðum króna eða 36,2% af landsframleiðslu. Óbeinir skattar stóðu fyrir um þremur fimmtu hlutum heildartekna, en beinir skattar fyrir þriðjungi teknanna. Á sama ári námu heildarútgjöld um 149,9 milljörðum króna án afskrifta eða 39,1% af VLF. Eins og lesa má af mynd 3.4 hafa tekjur og útgjöld hins opinbera á mann staðið í stað eða dregist saman að raungildi allra síðustu árin miðað við verðvísitölu2 lands- 2 Það er erfiðleikum bundið að finna ásættanlega verðvísitölu sem hægt er að beita við raunvirðingu á útgjöldum og tekjum hins opinbera. Að réttu lagi ætti að raunvirða hvem lið íyrir sig með þeirri verðvísitölu sem lýsir verðbreytingu þess liðar. Iðulega eru svo sundurliðaðar verðvísitölur ekki tiltækar og verður því að grípa til nálgunaraðferða. Oftast eru þá notaðar almennar verðvísitölur eins og vísitala landsframleiðslu. Þá er gengið út frá þeirri forsendu að viðkomandi liðir fylgi almennri verðþróun. Að öðrum kosti verða niðurstöður villandi. 14
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Búskapur hins opinbera 1992-1993

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búskapur hins opinbera 1992-1993
https://timarit.is/publication/1005

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.