Sagnir - 01.04.1980, Side 12

Sagnir - 01.04.1980, Side 12
Sagan sem pólitískt; vopn Er hægt tilgangi? þá helst ad nota söguna í pólitiskum Ef svo er, hvernig hefur þacT vericí gert a Islandi? Gunnar Karlsson Norski sagnfræðingurinn Jens Arup Seip hélt því einu sinni fram með sögulegum rökum að hæstiréttur Norðinanna væri póli— tísk stofnun. Á löngu tímabili hefði hann fylgt ákveðnum póli— tískum sjónarmiðum og þjónað ákveðnum pólitískum hagsraunum. Ef þessi niðurstaða Seips er rétt má að mínu viti nota hana sem dæmi upp á tvennt sem hér skiptir máli. 1 fyrsta lagi þarf ekki að koma á óvart þótt sagnfræðifram- leiðsla þjóðar hneigist inn á einhverjar pólitískar brautir, ef þannig er um þá stofnun sem á að vera hlutlausust af öllu hlutlausu. f Öðru lagi er ritgerð Seips um þetta efni að sjálfsögðu pólitískt fratnlag. Hún er fall- in til þess að veikja trú les- enda á virðulega máttarstólpa norska ríkisins. Hún er örlít- ill skerfur til þess að grafa undan norsku ríkisvaldi eða hjálpa fólki til að sjá í gegn- um blekkingar þess, hvora lík- inguna sem þið viljið heldur. Rit Seips þjónar þannig póli- tískum tilgangi, hvort sem höf- undur hefur ætlað því að gera það eða ekki. Það er þannig erfitt að hugsa sér nokkra marktæka sogu sem ekki á sér pólitískt hlut- verk. Jafnvel þótt við segjum að kennslubækur séu skrifaðar og kenndar í þeim tilgangi ein- um að auka skilning ungmenna á gangi þjóðfélagsins, þá er það pólitískur tilgangur. Slíkur skilningur dregur t.d. væntan- lega úr líkum á að pólitískir lýðskrumarar geti náð fylgi þessa fólks með ódýrum blekking- um, þannig spillir hann kannski möguleikum á einræðisstjórn. NÚ er ég vísast að snúa út úr fyrir spyrlum blaðsins. Þeir eru líklega að hugsa um póli- tíska misnotkun sögunnar. Auð- vitað er hægt að skrifa sögu misjafnlega heiðarlega. Sagn- fræðingur sem leynir lesendur sína vitneskju sem hann veit að mundi breyta áliti þeirra á söguefninu er að misnota sög- una. Hann getur auðvitað ekki sagt allt sem hann veit, en hann getur leitast við að velja svo efnisatriði í frásögn sína að hún gefi sömu niðurstöðu, sama siðferðilegt álit á sögu- efninu og öll vitneskja hans sjálfs. Hugsum okkur að sagn- fræðingur kæmist að því að þrír fjórðu hlutar dóma hæstaréttar á ákveðnu tímabili hafi stefnt

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.