Sagnir - 01.04.1980, Side 44

Sagnir - 01.04.1980, Side 44
Tafla 'l Afstaða smáflokkanna samkvsemt hægri/vinstri skiptingu gagnvart þingflokkunum. Sós.f1. Alþ.bl. Alþ.fl. Fr.fl. Sj.fl. '42v Frjálsl.v.m. Þjóðveldism. '42h Þjóðveldism. '46 Frams.m. '49 '53 Þj óðvarnarf1. '56 Þj óðvarnarf1. '59v Þj óðvarnarf1. '59h Þj óðvarnarf1. '63 Þjóðvarnarf1, , Mýneshr. '67 Utan fl. Alþ.b.l. öh.lýðr.fl. '71 SFV Framb.f1. '74 KSML/Fylk. SFV Lýðr .fl. Rvík/Rnes/N. Lýðveldisf1 einn þátt, eða eitt málefni ein- göngu. Svo er til dæmis um þá flokka sem hafa boðið fram næstum í þeim einum tilgangi að krefjast eða vekja athygli á ákveðinni stefnu varðandi kjör- dæmaskiptinguna eða breytingar á stjórnarskránni s.s. .Þjóðveldis- menn og síðar Lýðveldisflokkur- inn. Þjóðvarnarflokkurinn lagði, a.m.k. í fyrstu, lítið upp úr öðru en brottför hersins. Lý cfveld isstof n un °3 stjórnarskrárdeilur I meginatriðum hafa framboð smáflokkanna snúist um fjögur atriði. Það fyrsta er lýðveld- isstofnunin og stjórnarskráin og krafa um breytingu á henni. Þetta mál hefur verið í deigl- unni allt umrætt tímabil. Þjóð- veldismenn tóku það fyrst upp við umræður fyrir lýðveldisstofn- un varðandi fyrirhugaða lýðveld- isstjórnarskrá og kjör forsetans. Stjórnskipunarhugmyndir þeirra hafa nokkra sérstöðu, en þær fólust m.a. í því, að lýðveldið hefði endurreisn hins forna þjóð- veldis að grundvelli, eins og nafn flokksins bendir til. Vildu þeir að stjórnarskráin yrði sett á þjóðfundi á Þing- völlum í samræmi við tillögur Sveins Björnssonar og að forseti yrði þjóðkjörinn, en þeir fengu hvorugu framgegnt. Ríkisstjórn Ölafs Thors 1944-'46 setti þó á stofn sérstaka nefnd er endur- skoða skyldi stjórnarskrána, en hvorki hún né aðrar þingnefndir síðar hafa skilað drögum að nýrri stjórnarskrá. Krafan um endurskoðun var næst tekin upp af Lýðveldisflokknum 1953, en sam kvæmt hans hugmyndum skyldi auka vald forseta og Hæstaréttar og jafnframt skipta landinu niður í fjórðunga með sjálfstjórn. Kraf- an um aukið vald forseta var síðan aftur tekin upp af Öháða Lýðræðisflokknum 1967 og enn af Lýðræðisflokki Norðurlandi eystra 1974. Þjóðvarnarflokkur setti einnig fram kröfu um endurskoðun stjórnarskrárinnar, í samræmi við þá yfirlýsingu Alþingis 1944 að

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.