Sagnir - 01.04.1980, Side 56

Sagnir - 01.04.1980, Side 56
® Að lokum: Hvað getur sagn- fræðinám við H.f. tekið sér til fyrirmyndar að utan? Það er eitt sem ég tel að sé til fyrirmyndar í breskum há- skólum og það er að alveg frá upphafi er lögð áhersla á að nemendur beiti sjálfstæðum vinnubrögðum. Hlutverk kenn- ara er að þjálfa nemendur í að vinna á slíkan hátt. Þetta setur mark á þau verkefni sem lögð eru fyrir nemendur, þ.e. a.s. hvernig bæði ritgerðar- og prófverkefni eru úr garði gerð. Lögð er áhersla á að verkefnin séu krefjandi, þannig að á það reyni að fólk hafi kynnt sér tiltekið efni og síðan tekið ákveðna rökstudda afstöðu til þess. Minna er lagt upp úr framsetningu staðreynda sem fólk getur flett upp í hand- bókum. Að þessu leyti eru al- veg skýr kennslufræðileg mark- mið með náminu . í sagnfræði- kennslu hér tel ég að leggja beri meiri áherslu á kennslu- fræðileg markmið af þessu tagi en gert hefur verið til þessa. Þá fellur mér að mörgu leyti vel hvaða skilningur er lagður í akademiskt frelsi við breska háskóla. Lögð er áhersla á að nemendur hafi sjálfræði um að velja sér viðfangsefni innan einstakra námskeiða. Hins veg- ar er við það miðað að fólk vinni jafnt og þétt og ætlast er til þess að það skili ár- angri. Akademíska frelsið kem- ur þannig fram í því að hafa mikið svigrúm innan einstakra námskeiða. Stefnt er að því að nemendur séu skapendur en ekki eingöngu þiggjendur. MÍn reynsla er sú að margir sagnfræðinemar við H.l. vinni mjög vel en of stór hópur stundar námið í hjáverkum. Margir eru eflaust nauðbeygðir til þess sökum ytri aðstæðna. Þeim þarf því að breyta. SAGA í □ÖNSKUM SKQLUM frh- Margt er þannig óvissu hul- ið, en þó raá nú sjá ýmsa drætti nýskipunarinnar greinilega: færri námsgreinar verða í menntaskólunum en áður, og möguleikar munu gefast á lengri samfelldum vinnutíma með nem- endum en sundurslitnar stunda- skrár með 45 rain. löngum kennslustundum hafa hingað til gert. í þessu sambandi skiptir það verulegu máli, að á þeim atvinnuleysistímum, sem nú ríkja, leita um 5o % hvers ár- gangs yfir í menntaskólana, en það hefur leitt af sér gjör- breytta samsetningu nemenda- hópsins ásamt þeirri staðreynd að minnihluti raenntaskólanema leitar sér æðri menntunar að námi loknu. Grein þessi, sem Sigurður Ragnarsson léði til birtingar, er upphaflega bréf tii Samtaka íslenskra sögukennara frá Foreningen af gymnasie- og hf lærere i historie i Danmark. Nanna Rögnvaldardóttir þýddi.

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.