Sagnir - 01.04.1989, Blaðsíða 112

Sagnir - 01.04.1989, Blaðsíða 112
Halldór Bjarnason Stundum virðist nefnilega vera rugl- ingur á því hvort fólk er talið niður- setningar, vinnufólk eða fósturbörn. Hef ég ein fjögur dæmi um það. Það er auðvitað lítið þegar litið er til þess að íbúar sóknarinnar voru hátt á áttunda hundrað. En þetta skiptir meira máli en svo, því að e.t.v. hef- ur eitthvað af tökubörnunum/fóstur- börnunum í raun verið niðursetn- ingar. Ástæða þess að mér dettur þetta í hug er sú að Helga nokkur Steingrímsdóttir (12 ára) í Knud- senshúsi er sögð verða tökubarn,13 en í sóknarmanntalsbókinni er hún sögð niðursetningur.14 Þetta skiptir töluverðu máli því fósturbörnin/ tökubörnin skiptu tugum í Reykja- vík. Gísli Ágúst Gunnlaugsson at- hugaði lítillega fjölda niðursetninga í Reykjavík árið 1816 í bók sinni Ómagar og utangarðsfólk.15 Þessi ruglingur á stöðuheitum gæti hugsan- lega haft áhrif á talningu hans. Eitt og annað smálegt má netna sem ekki hefur verið lögð alúð við. Gerðum manntalsins ber stundum ekki saman um fjölda heimila, þ.e. hvort heimilin eru eitt eða fleiri. Á þetta hefði útgefandi manntalsins átt að benda því þetta skiptir máli þegar verið er að rannsaka fjölda heimila og fjölskyldustærð. Býlið Helgakot er líka ranglega nefnt Helgukot í manntalsútgáfunni og hefði mátt koma í veg fyrir það með samanburði frumritanna.16 Tilvísanir 1 Manntal á íslandi árið 1703, Rv. 1924^17. - Manntal á íslandi 1801, Rv. 1978-80, 3 bindi. - Manntal á ís- landi 1845, Rv. 1982-85, 3 bindi. 2 Hér hefur verið stuðst við eftirmála Bjarna Vilhjálmssonar að manntals- útgáfunni, sjá Manntal á íslandi 1816, Ak. og Rv. 1947-74, 1071-6. 3 Þjskjs., Prestþjónustubækur og sókn- armanntöl, VII Kjalarnesprófast- dæmi, 5 Reykjavík, Prestþjónstubók 1816-31. 4 Þjskjs., Prþjb. og smt., VII. 5, Sóknar- manntöl Reykjavíkur 1805-24. 5 Einna verstir eru e.t.v. þessir mis- lestrar: kennari fyrir þénari, 430; Jó- hannesson fyrir Jóhannsson, 428 og 438. Að lokum skal minnst á fæðingar- staðina. Samkvæmt formála að manntalsútgáfunni var ætlunin að allar viðbætur umsjónarmanns yrðu auðkenndar með skáletri.17 Það er hins vegar mjög á reiki og er aldrei hægt að treysta því að farið sé eftir þeirri reglu. Stundum er skáletrað þar sem það á ekki að vera og svo öfugt. Þetta hefur þær afleiðingar að maður veit ekkert hvað stóð í frum- ritinu og hvað útgefandi hefur sjálf- ur fundið. Heimilda fyrir fæðingar- stöðunum er hvergi getið en auðséð er að útgefandi hefur þó fengið ýms- ar upplýsingar úr þeirri gerð mann- talsins sem hann notaði ekki. Hver er þá niðurstaðan af þessu öllu saman? Greinilegt er að um- sjónarmaður manntalsins hefur að nær öllu leyti farið eftir því frumriti eða þeirri gerð sem hann notaði. En er þá ekki allt í lagi? Jú, þá er allt í lagi ef menn gera sér enga rellu út af því hvort þetta frumrit var sæmilega rétt eða ekki. Og þar sem það hlýtur að vera aðalatriðið verður að líta nánar á þá hlið málsins. Sóknarmanntalið 1816 í sóknar- manntalsbókinni veitti einstakt tækifæri til að ganga úr skugga um áreiðanleika gerðarinnar í prest- þjónustubókinni, en það gerði um- sjónarmaðurinn ekki. Hefði hann átt að gera það? Því verður að svara ját- andi því við viljum umfram allt hafa rétt og áreiðanlegt manhtal, jafnvel 6 Hallfríður í Grjóta var húskona/tómt- húskona (bls. 425) og Kristen Jensen í Súnchenbergshúsi var þénari (bls. 428). 7 Manntal á íslandi 1816, 425. 8 Klemens Jónsson: Saga Reykjavíkur 1, Rv. 1929, 190. 9 Þjskjs., Prþjb. og smt., VII. 5, Sóknar- manntöl Reykjavíkur 1805-24, 298. 10 Þjskjs., Prþjb. og smt., VII. 5, Sóknar- manntöl Reykjavíkur 1805-24, 303. 11 Þjskjs., Prþjb. og smt., VII. 5, Sóknar- manntöl Reykjavíkur 1805-24, 291. 12 Þjskjs., Prþjb. og smt., VII. 5, Sóknar- manntöl Reykjavíkur 1805-24, 300. 13 Manntal á íslandi 1816, 429. Mér sýnist að í frumritinu standi „f.b.“, þ.e. fósturbarn, en ekki tökubarn. Sjá þó það kosti svolítið meiri vinnu. Mér dettur ekki í hug að væna sagn- fræðinga eða ættfræðiáhugafólk um að vera alveg sama um það hvort manntölin séu rétt eða röng, svo ég gef mér að flestir hljóti að svara þessu játandi. Þrátt fyrir það veit ég að ómögu- legt var að gera manntalið 1816 í heild villulaust, það var ófram- kvæmanlegt við þáverandi aðstæð- ur. En mér finnst að sjálfsagt hefði verið að nota tækifærið þegar til voru tvær gerðir sóknarmanntala úr sömu sókninni og sama ári til að fækka villunum eitthvað. Af Reykjavíkursókn að dæma er útgáfa fjögurra fyrstu hefta mann- talsins ekki nógu góð. Er þar bæði við umsjónarmann að sakast og forsvarsmenn Ættfræðifélagsins. Um- sjónarmanninn skorti kunnáttu og nákvæmni til verksins enda var hann ómenntaður á þessu sviði. Formað- ur Ættfræðifélagsins „hafði aðal- umsjón með útgáfu fjögurra fyrstu heftanna" að sögn Bjarna Vilhjálms- sonar í eftirmála manntalsútgáfunn- ar18 og svo mikið er víst að ekki skorti hann menntunina. Formaður og/eða umsjónarmaður hefðu átt að gera grein fyrir vinnubrögðum sínum við útgáfuna og birta, eins og þykir til heyra um slík verk. Sýnist mér því að stjórn félagsins eða formaður hafi ekki síður borið ábyrgð á útgáf- unni en umsjónarmaður hennar. Þjskjs., Prþjb. og smt., VII. 5, Prest- þjónustubók Reykjavíkur 1816-31, 10 (nr. 326). 14 Þjskjs., Prþjb. og smt., VII. 5, Sóknar- manntöl Reykjavíkur 1805-24, 306. Reyndar er fyrst skrifað „vk“, vinnu- kona, en strikað yfir það og „ns“ skrifað, niðursetningur. 15 Gísli Ágúst Gunnlaugsson: Ómagar og utangarðsfólk. Fátœkramál Reykjavíkur 1786-1907 (Safn til sögu Reykjavíkur), Rv. 1982, 34. 16 Manntal á íslandi 1816, 426. - Þjskjs., Prþjb. og smt., VII. 5, Sóknar- manntöl Reykjavíkur 1805-24, 301. 17 Manntal á íslandi 1816, III. 18 Manntal á íslandi 1816, 1071. 110 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.