Sagnir - 01.06.1994, Síða 37

Sagnir - 01.06.1994, Síða 37
þeir sjálfir. Því skipti miklu máli fyrir þingmenn að goði þeirra væri tilbúinn að veija þá með þvi að taka upp mál þeirra. Framganga hans í öðrum málum réð því hvort bændur töldu hann heiðurs verðan og vert að fylgja honum. Ef hann hafði sýnt fram á annað var allt eins lík- legt að þeir leituðu til annars goða og gerðust þingmenn hans. Þessi efi um ágæti goða kemur skýrt fram í Þorsteins þætti stangarhöggs þegar þingmenn Bjarna missa trú á hugdirfsku hans er hann hefnir ekki húskarla sinna. Þeir vilja sönnun þess að hann sé tilbúinn að rækja skyldur sínar við þá og þeir taka að efast um hvaða styrk þeir hafi af hon- um.3í’ Hann verður því að fara á móti Þorsteini eða eiga það á hættu að stöðu hans verði ógnað. Það kemur greinilega fram í orðum konu hans að hann sé að falla í áliti þegar hún segir við hann „at menn þykkjast eigi vita, hvat Þorsteinn stangarhögg mun þess gera, at þér muni þurfa þykkja at hefna. . . . Þykkir þing- mönnum þínum eigi vænt til halds, þar sem þú ert, ef þessa er óhefnt . . ,“37 I Vopnfirðingasögu er þetta jafnvel enn skýrara. Þar deila fornir vinir, þeir Geitir og Brodd-Helgi. Geitir fer halloka í þeim viðskiptum og á endanum finnst þingmönnum hans nóg komið og koma að máli við hann. Höfðu þá margir manna hans gengið Helga á hönd og báru við hugleysi Geitis. Þeir sem fóru á fund Geitis vildu hins vegar ekki gerast þingmenn Helga og kröfðust þess að hann færi á móti honum við fýrsta tilefni ellegar þyrftu þeir að selja býli sín og yf- irgefa héraðið eða jafnvel flytjast af landi brott.38 Viðkomandi varð að rækja þær skyld- ur sem samfélagið lagði honum á herðar til að hljóta sæmd, eða þá í versta falli að láta líta svo út að hann væri tilbúinn til þess. Vanræksla manna á hefndum gat í sumum tilfellum ógnað stöðu þeirra. Heiðurslaus maður gat ekki átt von á því að komast til metorða á þjóðveldisöld. Samfélagið fylgdist grannt með því hvort menn stæðu undir þeim kröfum sem lagðar voru þeim á herðar og voru goðar þá sérstaklega undir smásjá. Þingmanna- fýlgi þeirrajókst í réttu hlutfalli við heið- ur þeirra og á honum byggðust völd þeirra og áhrif. Oflugasta leiðin til að hljóta heiður var að standa i blóðhefnd- armáli þar sem von var að afla sér sæmdar á kostnað andstæðings síns. Því varð blóðhefnd iðulega mikilvægur þáttur í valdabaráttu goða og hálfgert tæki til valda í höndum þeirra. Það var svo sam- félagsins að meta framgang manna að málalokum og ráða hvar í virðingarstig- anum menn höfnuðu. Því var heiður mikilvæg orsök blóðhefndar á þjóðveldis- öld. M Hrefna Margrét Karlsdóttir. Fædd 1969. Leggur stund á B.A.- nám í sagnfræði við HI. Tilvísanir: 1 Sörensen, Preben Meulengracht: Fortœlling og œrc. Studier i Islœnding- esagacrnc. Aarhus 1992, s. 181. 2 Pitt-Rivers, Julian: „Honour and Social Status.“ Honour and Shamc. Thc Valucs of Mediterranean Socicty. Ritstj. J. G. Peristiany. Chicago [vantar ártal], s. 21. 3 Pitt-Rivers, Julian: Honour and Social Status, s. 43. 4 Sörensen, Preben-Meulengracht: Fortælling og ære, s. 181. 5 Sörensen, Preben-Meulengracht: Fortælling og ære, s. 187. 6 Sörensen, Preben-Meulengracht: Fortælling og ære, s. 188. 7 „ . . . the victor in competition for honour fmds his reputation en- hanched by the humiliation of the vanquished.“ Black-Michaud, Jacob: Fcuding Societies. Oxford 1980, s. 179. 8 Miller, William-Ian: Bloodtaking and Peacetnaking. Feud, Law, atid Society in Saga Icelattd. Chicago 1990, s. 30. 9 íslenzk fomrit. XI. bindi. Rvk. 1950, s. 74. 10 Konungsskuggsjá. Speculutn Regale. Magnús Már Lárusson bjó til prent- unar. Rvk. 1955, s. 106. 11 Sörensen, Preben Meulengracht: Fortælling og ære, s. 188-189. 12 Bauman, Richard: „Perfonnance and Honor in 13th-century Iceland.“ Journal of American Folklore 99 (1986), s. 140. 13 Islenzk fornrit, s. 75. 14 Vesteinn Olason: „Islendingasögur.“ Medieval Scandinavia. An Encyclop- cdia. (1993), s. 334. 15 Miller, William Ian: Bloodtaking and Peacemaking, s. 29. 16 Bauman, Richard: Performance and Honor in 13th-century Iceland, s. 138. 17 Islendingasögur og þcettir. Síðara bindi. Ritstj. Bragi Halldórsson, Jón Torfason, Sverrir Tómasson, Ömólfur Thorsson. Rvk. 1986, s. 1417, 1421-1422. 18 Pitt-Rivers, Julian: Honour and Social Status, s. 46. 19 Sörensen, Preben Meulengracht: Fortælling og ære, s. 227. 20 Sturlungasaga. Arna saga biskups, Hrafns saga Svcinbjarnarsaga hin scrstaka. I. bindi. Ritstj. Örnólfur Thorsson. Rvk. 1988, s. 143. 21 Pitt-Rivers, Julian: „Honour and Social Status,“ s. 45. 22 Ólafur Lámsson: Lög og saga. Rvk. 1953, s. 171. 23 Sturlungasaga, s. 146. 24 Islenzk fornrit, s. 72. 25 Islendingasögur og þættir. 1674, s. 1688. 26 íslenzk fomrit, s. 70-71. 27 Merry, Sally Engle: „Rethinking Gossip and Scandal.44 Toward a General Theory of Social Control. I. Fundanicntals. Ritstj. Donald Black. (Studies on Law and Social Control, 1984), s. 85. 28 Bauman, Richard: „Performance and Honor in 13th-century Iceland,“ s. 142. 29 Black-Michaud, Jacob: Feuding Societies, s. 184. 30 Miller, William Ian: Bloodtaking and Peacemaking, s. 29. 31 Miller, William Ian: Bloodtaking and Peacemaking, s. 219. 32 Bauman, Richard: „Performance and Honor in 13th-century Iceland,“ s. 143. 33 Sturlungasaga, s. 185. 34 Sturlungasaga, s. 153. 35 Sturlungasaga, s. 155. 36 Miller, William Ian: Bloodtaking and Peacemaking, s. 71. 37 Islenzk fornrit, s. 74. 38 Islendingasögur. Fyrra bindi. Ritstj. Bragi Halldórsson, Jón Torfason, Sverrir Tómasson, Ömólfur Thorsson. Rvk. 1986, s. 1997-1998. SAGNIR 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.