Sagnir - 01.06.1994, Side 78

Sagnir - 01.06.1994, Side 78
A dansleiknum í Rcykjavík gengu karlmenn um og hrœktu „ hraustlcga “ á gólfið. þegar við vorum í nágrenninu, og sú mikla ákefð sem hann sýndi á því að flýta sér burt frá staðnum hneykslaði mig. Eg held jafnvel að hann hafi aldrei trúað því að við ætluðum að fara um austurhlíð Heklu. Aður en við komum til Islands lét hann eins og hann þekkti hvern hluta fjallsins. Við komumst hins vegar að raun um að hann hafði ekkert ferðast nema kannski veginn milli fbðurhúsa og Reykjavíkur, þegar hann var í þjón- ustu Klogs læknis.49 Leiðangri Mackenzies var nú brátt lokið, þeir yfirgáfu Island 19. ágúst en Olafur varð eftir. Ingibjörg Jónsdóttir skrifaði bróður sínum aftur þann 18. september 1810: Eftir varð Ólafur Loftsson af þeim enska barón. Honurn þótti hann fant- ur í folíó og gaf honum afskeið, þó ekki i naade. Ólafur er að ég trúi kominn austur að Hallskoti til föður síns.50 Espólin segir að Mackenzie hafi rekið Olaf áður en hann fór aftur til Skot- lands51 og sjálfur segir Mackenzie eftirfar- andi: ég tjáði honum að ég væri reiðubúinn til að standa við heit mitt unr að taka hann með aftur til Skotlands, en að mér þætti rétt að gera honum ljóst að vinir mínir myndu ekki lengur þurfa að þola blekkingar hans, og að ég vildi ekkert meira með hann hafa. Hann tók þann kostinn að verða eftir á Is- landi. . .52 I ferðabókinni gefur Mackenzie reyndar í skyn að honum hafi þrátt fýrir allt verið vel til Ólafs. þó ég hefði næga ástæðu til að vera óánægður með hann hefði ég verið mjög ánægður að heyra, jafnvel eftir að hann hafði fýrirgert öllum rétti sín- um til góðmennsku minnar, að hann hefði getað nýtt sér þau tækifæri sem ég gat veitt honum meðan hann dvaldi í Skotlandi.53 Ekki stóð Ólafur framnri fyrir álitlegum kostum. Hvarvetna voru menn búnir að fá nóg af honum og nú síðast þessir frægu vinir hans frá Skotlandi. Nú lenti Ólafur líka í vafasömum félagsskap. Hann hafði hitt James Savignac við kom- una til Islands 1810 og var hann nú „kostgangur" hjá Savignac um einhvern tíma. Savignac þessi hafði mjög verið viðriðinn Jörundarmál á Islandi og bjó einmitt á þessum tíma með „drottningu“ hundadagakonungsins, Guðrúnu Einars- dóttur. Einnig hafði Savignac hjá sér tvær vinnukonur, Guðrúnu Jónsdóttur og Elínu Tyrfingsdóttur.54 Savignac var væg- ast sagt illa liðinn á Islandi og ekki hefur vinskapur þeirra orðið til að auka hróður Ólafs. I bréfadagbók bæjarfógetans í Reykja- vík segir firá þvi að Ellen (Elín) Tyrfings- dóttir, ein vinnukvenna Savignacs, hafi greinst með kynsjúkdóm og taldi Klog landlæknir mikilvægt að einangra hana55 en ekkert er minnst á að nauðsynlegt sé að einangra Ólaf þótt hann hafi örugg- lega verið smitberinn. I Reykjavíkursögu sinni segir Klemens Jónsson þetta um málið: voru árið 1811 tvær ungar stúlkur, önnur dóttir góðs borgara, „teknar undir cur á opinberan kostnað, sem smitaðar af venerisk sygdom". Svo voru menn hræddir við sjúkdóminn, að enginn þorði að lána svo mikið sem bollapar, meðan verið var að lækna þær einangraðar. Kostnaður við lækn- inguna nam 47 rdl. 51 sk., og varð bærinn seinast að borga hann.56 Vinsældir Ölafs Loftssonar voru um þess- ar rnundir örugglega í algeru lágmarki í Reykjavík! Þau skötuhjú Ólafur og Elín létu krankleikann reyndar ekki eyði- leggja kynlíf sitt þvi um sumarið varð Elín ólétt. Ólafur var þó ekki við eina (jölina felldur frekar en fýrri daginn og laumaði sér einnig upp í hjá Guðrúnu Erlendsdóttur. I apríl 1812 ólu þær báðar drengi, Ólaf og Wilhielm, með tveggja daga millibili!57 r Enginn grætur Islending. . . Eftir síðustu ævintýri sín í kvennamál- um, og framgöngu sumarið 1810, gerði Ólafur sér sjálfsagt ljóst að honum var ekki vært á Islandi. Hann tók því þann kostinn að flýja vandræði sín. Bjarni Thorarensen skrifaði 29. ágúst 1812: „. . .hinn nafnfrægi Ólafur Loftsson er 76 SAGNIR

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.