Sagnir - 01.06.1995, Page 12

Sagnir - 01.06.1995, Page 12
BBSÐ> GAMLA BlÓ ■ BEAU GE§TE Amerísk stórmynd af hinni víðlesnu skáldsögu eftir P. C. WREN. — Aðalhlutverkin leika: GARY COOPER — RAY MILLAND ROBERT PRESTON. Börn fá ekki aðgang.— Sýnd kl. 7 og' Ö, Allir pantaðir aðgöngum. sækist fyrir kl. 6*/,. — Áhorfendum er ráðlagt að kaupa ísl. efnisskrána, þar sem hina venjulegu dönsku skýringartexta vantar í myndina. Æfinlýrið á Hawaii. með BING CROSBY og MARTHA RAYE sýnd kl. 5 í síðasta sinn. Hinn 18. ágúst 1940 vorn myndir með dönskum skýringartexta á þrotum. óánægju meðal Reykvíkinga með textalausu myndimar og yfir þeim var kvartað. Kunnáttu í ensku virtist sums staðar ábótavant og ótti við að skilja ekki það sem fram fór á hvíta þaldinu gerði vart við. Einkum virt- ist tungumálið ve§ast fýrir bömum og unglingum sem vom dyggir aðdáendur kvik- mynda og sóttu bíóin af miklum móð. Og raunar virtust margir í hópi hinna eldri einnig eiga í vandræð- um. Textalausu myndirnar sem komu til sögu á Islandi á styrjaldarárunum drógu þannig ekki úr vanda þeirra sem áttu í erfiðleikum með að skilja ensku. Til þess að reyna að ráða bót á honuni var ákveðið að halda sér- stökum „kvikmyndapró- grömmum“ á íslensku enn- þá stífar að fólki en áður. I „prógrammi“ var sögu- þræði viðkomandi myndar lýst og fólki sem ekki skildi málið var ráðlagt að kaupa eitt slikt áður en það færi i bíó.w Margir létu sér þetta lynda en aðrir kvörtuðu yf- ir því að ekki fylgdu ís- lenskir skýringartextar myndunum, einn sagði t.d. eftir að hafa andskotast út í myndaval bíóhúsanna:20 „Það er fleira en val myndanna, sem þyrfti endurbótar við í kvikmyndahús- unum, og á ég þar fyrst og fremst við þá ósvífni, að bjóða upp á myndir með er- lendum skýringum.“ Og hann bætti við: „Er það sjálfsögð krafa almennings að myndunum fýlgi íslenskar skýringar og ætti forstjórunum síst að vera vorkunn, að kosta til þessara sjálfsögðu endurbóta, þar sem aðsóknin að kvikmyndahúsun- um hefur aukist svo stórkostlega.“ Enn aðrir óskuðu eftir rækilegri prógrömm- um:21 „það [er] mjög slæmt að ekki skuli lengur vera textar með myndum, sem sýndar eru. Dönsku textarnir voru mikil bót, þótt ekki væru þeir fullnægjandi. En ef nú skyldi vera ómögulegt, að koma þvi við, að hafa þá lengur, mætti mikið bæta úr því með því að hafa „pró- grömmin“ mun ítarlegri en þau hafa tíðkast hér.“ „Bíóprógrömm“ voru engan veginn ný af nálinni en upp frá þessu urðu þau fylgirit flestra kvikmynda sem sýndar voru í Reykjavík á rneðan ekki reyndist unnt að láta innlendan skýringartexta fýlgja þeint. Öfáir bíógestir lögðu sig fram við að safna „prógrömmum", flokkuðu þau og röðuðu í möppur enda gat þetta reynst hið besta tómstundagam- an. „Bíóprógrömmin" lifðu raunar leng- ur en textalausu myndirnar gáfu tilefni til því allt fram á níunda áratuginn eimdi eftir þessari venju en tilgangur þeirra varð sífellt óljósari. r Islenskur texti kemur til sögu Þrátt fýrir geysilega fjölgun bíógesta i Reykjavík á árum síðari heimsstyijaldar- innar miðað við fýrri ár treystu forráðamenn kvik- myndahúsanna sér ekki til að ráðast í textun mynda. Svipaðar fjárhagsforsendur og áður lágu þar til grund- vallar en auk þess var orðið flóknara að standa að text- un vegna þess hversu mikið var talað í myndunum. Ekki fór þó hjá því að auk- in aðsókn treysti fjárhags- stöðu bíóanna en hins veg- ar var til þess vísað að markaðsaukningin væri að- eins timabundin, fátt benti til þess að útlendu her- mennirnir yrðu í bænum að eilífu og afkoma kvik- myndahúsanna hefði ávalit byggst á íslenskum sýning- argestum. Svo myndi verða áfram. Bióeigendur vildu því fara varlega og ekki reisa sér hurðarás um öxl með því að fjárfesta í dýr- um tækjum sem erfitt yrði að standa undir, auk þess þurfti að endurnýja sýning- arvélar og ráðast í aðrar framkvæmdir.22 Áhugamenn um textun kvikmynda sátu þó ekki al- veg aðgerðalausir. Þannig gerðu stjóm Gamla bíós og Sigurður Tómasson úrs- míðameistari og uppfinningamaður með sér samning sumarið 1940 um sérstakt „textatæki" sem Sigurður hafði fundið upp. Gamla bíó vildi kaupa tækið af Sig- urði þegar það væri fullbúið. I fýrstu grein samningsins sagði:2’ Sigurður Tómasson lofar að selja h/f. Gamla bíó uppfinningu þá, er hann hefur gert, og sem í því er fólgin, að gera megi tæki - textatæki -, er setja megi í samband við kvikmyndasýn- ingatæki, og sem nota megi til þess að sýna á sýningartjaldinu íslenskan texta af filmu, og komi textinn fram auto- matiskt i fullu samræmi við kvik- myndina sjálfa, allt samkvæmt teikn- inguni, er hann hefur gert, og/eða samkvæmt tæki eða tækjum, er hann hyggst smiða í samræmi við þessa uppfinningu sína. 10 SAGNIR

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.